Leita í fréttum mbl.is

Um misnotkun á hugtökum !

 

 

Ţegar siđferđilegir mćlikvarđar eru ekki lengur metnir sem skyldi, og mannfrelsiđ virđist ađ stćrstum hluta skilgreint út frá réttindum til siđleysis, fer ekki hjá ţví ađ almennt skyn á gildi hins góđa raskast frá ţví sem áđur var. Allt ţarf sína undirstöđu og ţegar engin slík er til stađar, standa menn ekki á neinu og sökkva í svikafen sjálfskaparvítanna !

 

Fegurđ er eitt af ţví sem flestallir hafa lofađ í aldanna rás og er vissulega jákvćtt fyrirbćri, en á okkar tímum er tjáning manna um fegurđ orđinn vitnisburđur um brenglađ hugtaka-viđhorf ţar sem talađ er um hluti sem eru t.d. sagđir ógeđslega fallegir !

Ađ sjálfsögđu getur ekkert sem er í rauninni fagurt um leiđ veriđ ógeđslegt og ţađan af síđur er eđlilegt ađ nota neikvćtt hugtak sem aukna áherslumeiningu á jákvćtt hugtak. Slík tjáning er ţví vottur um ruglingslega og uppreisnarkennda hugsun !

 

Eftir síđustu áramót sagđi einn helsti handboltamađur ţjóđarinnar í viđtali í fjölmiđlum, um Frakka fyrir leikinn 21. janúar : “ Ţeir mega vera međ jákvćđan hroka, ţeir hafa efni á ţví, ţeir hafa unniđ fyrir ţví !”

 

Ţetta ţótti mér undarlega mćlt. Í fyrsta lagi er jákvćđur hroki ekki til. Hroki er alltaf neikvćđur. Ađ tala um ađ menn hafi efni á ţví ađ sýna hroka er einkennilegur framsetningarmáti og segir kannski meira um persónuleika ţess sem viđhefur slík ummćli en ţađ sem hann er ađ tala um. Ţađ vinnur heldur enginn fyrir ţví ađ fá ađ vera međ hroka. Slíkt framferđi er engum manni til ávinnings og sérhver mađur tapar á ţví ađ viđhafa hroka. Sagan sýnir okkur ţađ gegnumsneytt ţó fćstir vilji draga réttan lćrdóm af reynslunni og sama ferliđ endurtaki sig ć ofan í ć !

 

Hroki er í rauninni höfuđsynd og hinar gömlu forréttindastéttir sem viđhöfđu hann sem ótćpilegast á öldum áđur, töpuđu stöđu sinni fyrst og fremst vegna hrokafullrar framkomu sinnar viđ ađra og einkum ţá sem undir ţá voru settir. Ađ lokum fengu ţeir sem yfirgangurinn bitnađi á meira en nóg og gerđu uppreisn og byltu plágunni af sér og tóku völdin - en fóru svo ţegar tímar liđu sjálfir ađ sýna öđrum hroka !

 

Mađurinn virđist alltaf eiga í vandrćđum međ sjálfan sig og ţađ á ekki hvađ síst viđ ţegar hann er í sífelldri uppreisn gegn Skapara sínum og öllum ţeim höfuđreglum sem skilađ geta honum trúverđugu og tilgangsríku lífi !

 

Ţeir sem hafa viljađ halda í hrokann hafa notađ alllengi annađ orđ sem segja má ađ hafi veriđ silkisaumađ utan um hrokaferliđ og ţá er talađ um stolt !

Stoltiđ sem dulbúiđ hrokahugtak er hugsađ til ţess ađ virka á alla á jákvćđan hátt, og gerir ţađ reyndar oft – einkum ţó ţegar ţađ er notađ á vćgari stigum umrćđu. Menn segjast vera stoltir af sínum, stoltir af ţessu og hinu og ţar fram eftir götunum !”

En hvar endar stoltiđ, ţađ sem kalla má grímuklćtt hrokaferli, og hvar tekur ţađ grímulausa viđ, veit ţađ nokkur ?

 

Og hvernig er hugsunarlegri stöđu mála komiđ ţegar menn eru farnir ađ tala um jákvćđan hroka ? Er ţađ ekki skýr ábending um ótrausta hugtaka-undirstöđu og vöntun á siđlegum mćlikvarđa, sem er reyndar tímanna tákn í hinum hátt uppspennta og allsráđandi nútíma ?

 

Hvenćr byrjađi slíkur hugtakaruglingur, var ţađ kannski ţegar menn fóru í kvenréttindabaráttunni ađ tala um jákvćđa mismunun ? Eiga menn eftir ađ fjalla á sama hátt um jákvćđa grimmd, jákvćtt ofbeldi, já, og jafnvel jákvćđa nauđgun ?

 

Hvar getur rangsnúinn skilningur á réttum hugtökum, sem hlýtur ađ valda sálarlegu undirstöđuleysi, endađ annarsstađar en í sjálfheldu siđleysunnar ?

 

Viđ ţurfum ađ skilja hugtökin sem viđ notum og beita ţeim rétt í máli okkar međ ţeim hćtti ađ ţau séu jafnan á hreinu og auđskilin – bćđi okkur sjálfum og öđrum - eftir inntaki sínu !

Ţannig viđhelst ekki hvađ síst rétt undirstađa undir heilbrigt samfélag !

 

 

 

 

 

 


Bloggfćrslur 13. maí 2017

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 318
  • Sl. sólarhring: 332
  • Sl. viku: 1414
  • Frá upphafi: 315319

Annađ

  • Innlit í dag: 287
  • Innlit sl. viku: 1108
  • Gestir í dag: 276
  • IP-tölur í dag: 276

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband