Leita í fréttum mbl.is

Innrásin í Evrópu !

 

Undanfarna áratugi hefur Evrópa kynnst miklu aðstreymi fólks frá Afríku og Asíu og allra síðustu árin hefur bókstaflega verið í gangi neyðardulbúin innrás í álfuna.

Börn eru jafnvel send ein í hundraðatali til Evrópu vegna þess að þau þykja líkleg til að fá mildari móttökur. Svo er hugmyndin að fjölskyldurnar komi á eftir !

 

Margir ala þann grun - að ýmsar múslimskar öfgahreyfingar og jafnvel yfirvöld í vissum löndum, standi á bak við þjóðflutninga þessa að einhverju leyti. Stýring á neyð er ekkert nýtt fyrirbæri í sögunni og ávinningurinn er oftast mikill í augum þeirra sem þar kunna að vera að baki. Það eru fleiri en Játvarður I. Englandskonungur sem hafa gælt við þá hugmynd að hægt sé að leggja lönd undir sig alfarið með því að skapa í þeim nýjan meirihluta, “ Breed Them Out “ !

 

Það er nú orðin ómótmælanleg staðreynd að múslimar, sem alist hafa upp á Vesturlöndum, hafa í hundraðatali farið til Miðausturlanda til að berjast þar með islamska ríkinu og öðrum öfgahreyfingum múslima sem stunda hryðjuverk. Þeir hafa margir hverjir jafnvel þótt þar öðrum hatursfyllri og blóðþyrstari í garð Vesturlanda !

 

Þar höfum við skýr dæmi um múslima sem hafa kynnst vestrænum gildum, alist upp við þau, þekkja lýðræði og mannréttindi viðkomandi landa, en virðast samt ekki hafa meðtekið neina hollustu til þeirra sem borgarar þar, heldur þvert á móti. Var ekki einhverntíma sagt “ sjaldan launar kálfur ofeldi “ !

 

Það er hrollvekjandi vitnisburður sem í slíkum dæmum hefur komið fram um það hvernig “ open doors “ stefna Evrópuþjóðanna er launuð. Þar er sífellt gengið á lagið og innrásar-afæturnar verða því frekari sem meira er undan þeim látið !

En þrátt fyrir að staðreyndirnar varðandi það ættu að vera orðnar öllum ljósar, virðist sumt fólk ákveðið í því að halda áfram að vera blint og trúa því að evrópsk gildi viðhaldist í sérhverri mynd sinni, og konur með meirapróf í akstri fái að stunda vinnu sína áfram, þegar álfan er orðin full af múslimum !

 

Það segir sig sjálft hverjir koma til með að ná völdum í Evrópu ef fer sem horfir. Ef við verndum ekki okkar menningar-arfleifð gerir það enginn. Ef við tryggjum ekki áframhaldandi stjórnvald okkar í þeim löndum sem við teljum okkur eiga með réttu og er arfur til okkar frá kynslóðum forfeðra okkar og formæðra, geta yfirráðin farið til nýs meirihluta sem hefur alist upp í löndum Evrópu - eins og snákur við brjóst okkar !

 

Það eru margir í Arabaheiminum sem fagna því að múslimum fjölgar í Evrópu og sennilega fagna þeir mest sem síst skyldi. “Breed Them Out” stefnan er í fullum gangi - undir stjórn eða án stjórnar - og Evrópuríkin eru rétt farin að rumska gagnvart vaxandi hættu þess ástands sem er að skapast í álfunni !

 

Það hefur ekki verið talað mikið um vissa hluti sem engu að síður eru ógnvekjandi staðreyndir veruleikans. Olíuauðlegð Araba hefur leitt af sér gífurlegar fjárfestingar þeirra í fjármála og fjölmiðlaheimi Evrópu, einkum þó eftir 1970.

 

Þessvegna hefur t.d. áróður fyrir málstað Araba í deilumálum fyrir botni Miðjarðarhafs öðlast nýtt og endurunnið vægi. Ýmsir gamlir evrópskir fjölmiðlar eru nú í höndum nýrra eigenda sem gefa tóninn í þeim efnum. Bankar og fjármálasamsteypur í Evrópu sem eru í raun í eigu Araba, hafa líka stuðlað að hagnaðartengdri hugarfarsbreytingu hjá mörgum og líklegt er að þau tengsl risti mun dýpra en flesta gæti grunað !

 

Það er löngu orðið tímabært fyrir ríki Evrópu að taka í taumana og setja því skorður sem er og hefur verið að gerast.

Eða halda menn að það verði hlynnt að þýskum menningararfi í Þýskalandi ef tyrknesk viðhorf verða þar komin í valdastöðu eftir svo sem 50 ár, sáu menn ekki hvar hollusta Tyrkjanna í Þýskalandi lá í Erdogan-einræðis kosningunum síðustu ?

 

Halda menn að frönsk menning verði einhvers metin þegar Frakkland er komið með múslimskan meirihluta ? Þarf reyndar ekki meirihluta til þegar undanlátssemin er í líkingu við það sem hún hefur verið !

Sjá menn ekki ástandið í Bretlandi, þar sem hin dæmigerðu ensku gildi eru að þynnast út í ekki neitt vegna þess að þjóðin er stöðugt að af-enskast og verða að innihaldslausri fjölþjóðasúpu !

 

Fjöldi þjóða sem til var á öldum áður er horfinn og hvað varð af þeim ? Þær blönduðust öðrum þjóðum, glötuðu menningu sinni og sögu, hættu að erja sinn garð og gleymdu hverjar þær voru og urðu að engu.

Jafnvel heimsdrottnarar eins og Rómverjar úrkynjuðust, gátu ekki varið ríki sitt og fengu öðrum það hlutverk í hendur, vesluðust upp og dóu af innanskömm !

 

Látum ekki álfuna okkar af hendi til nýs meirihluta, stöndum vaktina í nafni þeirra þjóða sem enn byggja Evrópu. Verjum menningu okkar og allan okkar arf fyrir öllum þeim aðstreymis-öflum sem vilja útrýma vestrænum gildum og okkar veruheimi !

 

Segjum já við evrópskri menningu en nei við öllum Evrabíu-hugmyndum !

 

 

 

 

 


Bloggfærslur 3. júní 2017

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 27
  • Sl. sólarhring: 118
  • Sl. viku: 1057
  • Frá upphafi: 309949

Annað

  • Innlit í dag: 27
  • Innlit sl. viku: 930
  • Gestir í dag: 27
  • IP-tölur í dag: 27

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband