Leita í fréttum mbl.is

Skurđgođin snúa til baka !

Nú á tímum ţykir víst flest meira spennandi og skemmtilegra en ađ vera kristinn. Og ţeim virđist fara fćkkandi sem ađhyllast kristindóm og ţora ađ kannast viđ ţađ. Ţjóđfélag okkar í dag er orđiđ svo frjálslynt og víđsýnt og fordómalaust, ađ ţeim virđist stöđugt fjölga sem hafa enga fordóma – nema ţá gagnvart kristinni trú !

Ţjóđin okkar sem hefur fram undir ţađ síđasta sent kristnibođa til ţriđja heims landa til ađ bođa ţađ sem kallađ hefur veriđ fagnađarerindiđ, ţjóđin sem átt hefur gegnheila menn eins og Ólaf Ólafsson og fleiri slíka á trúbođsakrinum, virđist nú í mörgu telja ţađ best sér til vaxtar og viđgangs ađ ađhyllast á ný trú á stokka og steina.

Ţjóđin okkar hlćr og gerir grín ađ myrkhrćđslu fólks á liđnum tímum, draugatrú og hindurvitnum, galdrafári og geggjun á ýmsum sviđum, en allt ţetta á sér fulla samsvörun í yfirstandandi tíma, sem á ţó vera svo upplýstur ađ aldrei hafi svo „menntađ mannkyn“ tórt á ţessari jörđ !

Hvađ međ orkusteinana sem seljast grimmt og eiga ađ fela í sér allskyns krafta fólki til hjálpar í lífinu ? Hvađ međ öll húđflúrin sem eiga ađ vernda fyrir illum öndum og ég veit ekki hvađ ? Hvađ međ sambandiđ viđ geimverurnar og orkuna frá Snćfellsjökli ? Hvađ međ kaup á fokdýru lituđu vatni sem á ađ lćkna öll mein ? Hvađ međ svokallađa Ásatrú sem virđist í einhverri uppsiglingu hér og talar fyrir ţví sem var aflagt fyrir ţúsund árum vegna ţess ađ ţađ ţótti ekki lengur forsvaranlegt í siđuđu mannfélagi ? Hvađ međ Harry Potter delluna og galdrafáriđ í kringum ţá einskisverđu uppdiktun ? Hvađ međ trú á álfa og tröll, trú á kýklópa og kentára löngu liđinna alda – Tolkien-átrúnađinn allan ?

Hvađ međ alla heilunarsérfrćđingana og reikimeistarana sem bjóđa lausnir á nánast öllu ţví sem stendur fólki fyrir ţrifum ? Hvađ međ yogaafbrigđin sem eiga ađ vera allskonar aflstöđvar fyrir fólk og gera ţađ ađ gangandi kraftaverkum ? Hvađ međ Búddista-kenningarnar sem eiga ađ friđa og gera fólki fćrt ađ slaka algerlega á ? Hvađ međ indversku leiđirnar sem Gunnar Dal og fleiri hafa bođađ sem kraftbirtingu nýrra hluta í mannlífinu o.s.frv.o.s.frv.o.s.frv. Af hverju er Indland ţá ekki fyrir löngu búiđ ađ taka sér afgerandi forustu í andlegum málum heimsins fyrir tilverknađ slíkra kraftbirtinga - í stađ ţess ađ vera úthrópađ um allar jarđir fyrir svívirđileg nauđgunarmál ?

Ţetta allt og margt fleira hefur veriđ innleitt á síđustu árum í íslenskt mannlíf í áđur óţekktum mćli og ef ţađ vćri ţađ sem ţađ er sagt vera, til gildis og góđs fyrir alla, ćtti ţjóđfélag okkar líklega ađ vera nánast frítt viđ alla óvćru í dag ! En hvar sjást merkin um ađ öll ţess mikla innspýting ćtlađra gćđa í okkar ţjóđmenningu hafi orđiđ til góđs ?

Hjátrú varđandi orkusteina og húđflúr er ađ mínu viti bara endurtekning sögunnar á gömlum, blindum kennisetningum sem aldrei hafa haft neitt í farteskinu nema blekkingar og kaupmennsku. Og allt ţađ sem hefur veriđ upp taliđ hér ađ framan eru í raun stykki í ţađ púsluspil afvegaleiđingar sem fariđ hefur hamförum um Vesturlönd á síđustu áratugum undir merki Laodíkeu – undir mannréttindasóknar-merkinu mikla, sem er ekkert nema gunnfáni ţess tíma sem opnar ađ fullu glötunarleiđina til hins endanlega dauđa !

Og rétttrúnađur nútímans, sem á yfirborđinu er sagđur helgađur frjálslyndi, víđsýni og fordómaleysi, er auđvitađ langt frá öllum ţessum – í sjálfu sér - ágćtu viđmiđum. Yfirlýstur rétttrúnađur er aldrei neitt af ţessu. Hann felur ţađ alltaf í sér ađ vera afturhaldssamur, ţröngsýnn og umburđarlaus. Hann er alltaf stefna sú sem hyllir óbreytt ástand – status quo.

Rétttrúnađarelíta hvers tíma hefur alltaf hrópađ út yfir samtíđ sína í upphöfnum hroka sjálfsins: „ Viđ höfum náđ hćsta punkti mannlegs ţroska, viđ höfum stađsett okkur nákvćmlega ţar og verđum ţar áfram !“ En ekkert af mannsins hálfu - eins og sér - er eđa getur veriđ varanlegt. Ţađ liggur í sjálfu sér ljóst fyrir ţví mađurinn er ekki varanlegt fyrirbrigđi og getur aldrei orđiđ ţađ í eigin mćtti. Tilvera mannsins er honum jafn mikill leyndardómur í dag og hún hefur alltaf veriđ. Hann veit ekkert međ vissu um tilgang tilveru sinnar !

Hann kemur og veit ekki hvađan, hann er og veit ekki hversvegna, hann fer og veit ekki hvert ?

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 129
  • Sl. sólarhring: 503
  • Sl. viku: 1538
  • Frá upphafi: 315519

Annađ

  • Innlit í dag: 125
  • Innlit sl. viku: 1251
  • Gestir í dag: 125
  • IP-tölur í dag: 125

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband