Leita í fréttum mbl.is

Siđferđisstađa Framsóknarflokksins ?

 

Ţađ hendir víst margan manninn ađ ćtla sér ýmislegt sem svo reynist óframkvćmanlegt. Ţađ var meining mín ađ skrifa pistil um ţađ sem felst í fyrirsögninni, en svo áttađi ég mig á ađ í ţví sambandi virđist lítiđ sem ekkert efni til.

Ţađ er einfaldlega ekki hćgt ađ skrifa um eitthvađ sem virđist ekki lengur vera fyrir hendi eđa finnast áţreifanlega í umrćđu dagsins !

 

Ţađ sýnist ţó blasa viđ ađ Framsóknarmenn í Norđausturkjördćmi hafi tapađ einhverju frá sér sem öllum mönnum hefur hingađ til veriđ nokkuđ annt um ađ hafa í sínum fórum. Ţetta nauđsynlega fararefni á lífsleiđinni virđist hafa orđiđ alveg viđskila viđ hugarfar manna ţeirra sem funduđu nýlega á flokksins vegum í Mývatnssveit og vonandi er ţađ ekki ávísun á meira af slíkum ófögnuđi !

 

Manni sem ekki var stćtt á ţví ađ vera forsćtisráđherra, vegna ţess ađ orđ og gerđir fóru ekki saman hjá honum, og neyddist til ađ segja af sér, er gefin traustsyfirlýsing og ţeir sem ţađ gerđu virđast telja allt í lagi fyrir Framsóknarflokkinn ađ ganga til kosninga undir forustu hans.

Ţađ segir ljóslega sitt um ýmislegt sem áđur var bara óljós grunur manna og margir vildu ekki trúa og opinberar jafnframt óvenju kaldrifjađan og tćkifćrissinnađan tvískinnung !

 

Ef Framsóknarflokkurinn fćr góđa útkomu í vćntanlegum kosningum mun ţađ líklega gefa sterkar vísbendingar um ţađ ađ nokkur hluti kjósenda sé ekki betur staddur í vissum efnum en meirihluti Framsóknarmanna í áđurnefndu kjördćmi, og vissulega vćri ţađ dapurlegt í andlegum skilningi hvađ ţjóđina varđar ef ţađ kćmi á daginn. Ef Framsóknarflokkurinn fer hinsvegar illa út úr komandi kosningum, undir óbreyttri forustu, ţurfa menn ekki ađ fara í grafgötur međ ástćđuna !

 

Ţađ skiptir auđvitađ heilmiklu hvađa kröfur viđ gerum sem kjósendur í ţessu landi til kjörinna fulltrúa okkar á ţingi sem og ţeirra sem starfa fyrir okkur annarsstađar í ríkiskerfinu. Ef viđmiđ okkar í siđferđilegum efnum ganga til baka skapar ţađ óhjákvćmilega gildisfall sem skađar samfélagiđ allt – ekki síst til lengri tíma litiđ.

 

Framsóknarflokkurinn getur ekki fremur en ađrir flokkar – ţó ekki vćri nema sjálfs sín vegna – haldiđ áfram međ sama formann viđ stýriđ eftir ţađ sem á undan er gengiđ, ţví ţađ mun kalla á viđvarandi innanskömm í flokknum. Ţetta er sumum flokksmönnum ljóst, einkum ţeim sem annt er um flokkinn í raun og veru !

 

En menn sem eru í flokknum sem 99,9% innanklúbbsmenn og horfa á öll mál í gegnum ţröngt skráargat flokkslegra eiginhagsmuna og sérhyggju, sjá ţetta ekki. Ţeir virđast ekki skilja ađ Framsóknarflokkurinn er og á ađ vera hluti af íslensku samfélagi og hefur siđferđilegar skyldur í ţví sambandi. Ef siđagildi flokksins eru verđfelld mun ţađ hafa sín áhrif á samfélagiđ í heild og ekki til góđs !

Flokkurinn hefur síđustu mánuđina veriđ undir forustu tveggja manna, annar virđist hafa alla burđi til ađ veita flokknum ţá forustu sem eđlileg ţörf er á, en hinn er persónulega laskađur vegna trúnađarbrests og sú löskun getur auđveldlega fćrst yfir á flokkinn ef flokksmenn ćtla sér međ hrokafullum hćtti ađ lúta forustu hans áfram !

 

Annađhvort stíga menn til hliđar eđa ekki !!!

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 223
  • Sl. sólarhring: 264
  • Sl. viku: 1480
  • Frá upphafi: 316481

Annađ

  • Innlit í dag: 189
  • Innlit sl. viku: 1193
  • Gestir í dag: 185
  • IP-tölur í dag: 183

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband