Leita í fréttum mbl.is

Bresk kaldastríđs sagnfrćđi !

 

Nýveriđ las ég bók breska sagnfrćđingsins Antony Beevor um Stalíngrad. Ekki get ég sagt ađ ég hafi veriđ sérlega hrifinn af ţví hvernig eldađ var til efnisins. Höfundurinn Antony Beevor var áđur liđsforingi í breska hernum og ég leyfi mér ađ efast um ađ sú stađa hafi aukiđ honum víđsýni til hlutlausrar sögukönnunar !

 

Svo mikiđ er sagt frá Ţjóđverjum í bókinni ađ Sovétmenn eru ţar nánast í einhverjum aukahlutverkum. Lengi framan af eru lýsingar af svo miklum aumingjadómi, skipulagsleysi, heimsku og klaufagangi af hálfu sovésku herforustunnar ađ ţađ hálfa vćri nóg. Mađur spyr sjálfan sig, ef ţetta var svona, hvernig í ósköpunum fóru Sovétmenn ađ ţví ađ sigra í ţessari meginorustu sem stóđ í marga mánuđi ?

 

Lýsingar af gangi mála ţeirra megin hljóđa nánast í einu og öllu upp á stórfelldan vopnaskort, rangar ákvarđanir og algjört tillits og tilfinningaleysi yfirvalda gagnvart eigin mannfalli. Ţađ er ţví enn og aftur komiđ inn í sviđsmynd áróđurs og dellumyndarinnar Enemy at the Gates og túlkunina ţar. Erfitt er ađ trúa ţví ađ mađur sé ađ lesa efni eftir - “virtan og viđurkenndan” - sagnfrćđing. Ţađ eina sem virđist fćrt Rauđa hernum til tekna er ađ sovéski skriđdrekinn T 34 hafi veriđ betri en skriđdrekar ţýska hersins !

 

En ţađ er stöđugt klifađ á ţví ađ Rússar hafi haft ţvílík ógrynni af mannskap ađ ţeim hafi svo sem ekkert munađ um blóđtökuna. Nýjum og nýjum herjum hafi bara veriđ dćlt inn á sviđiđ, sumum án nokkurrar ţjálfunar. Ég spyr bara, ef hćgt er ađ sigra allt međ ţví ađ hrúga mannskap – jafnvel vopnlausum - í verkiđ, og hversu vitlaust sem stađiđ er ađ málum, - af hverju eru Kínverjar ţá ekki búnir ađ leggja undir sig allan heiminn - ekki vantar ţá mannfjöldann ?

 

Áriđ 1940 var íbúatala Sovétríkjanna áćtluđ međ breytilegum hćtti allt frá 162 milljónum upp í 190 milljónir, sennilegast er ađ hún hafi í raun veriđ rúmlega 170 milljónir. Á sama tíma var Nazista-Ţýskaland međ Austurríki, Súdetahéruđum Tékkóslóvakíu og öđrum hjálendum líklega međ íbúatölu upp undir 90 milljónir. Bandaríkin á ţessum tíma voru međ 132 milljónir íbúa. Hinn óendanlegi mannfjöldi Sovétríkjanna er ţví nokkuđ umdeilanleg stćrđ á ţessum tíma, enda sýnilega oft ýkt og notuđ til ađ skýra sigra sem annars hefđu víst ekki átt ađ geta unnist !

 

Nokkur fjöldi hersveita frá fylgiríkjum Ţjóđverja börđust međ ţeim á austurvígstöđvunum og viđ Stalíngrad. Rúmenar voru ţar til dćmis međ tvo heri, auk ţeirra voru ţar Ungverjar, Ítalir og Króatar međ nokkurn herafla. Ţar til viđbótar voru einstakar liđssveitir víđa ađ sem börđust međ nazistum af ýmsum ástćđum, líklega ađallega í nafni krossferđar gegn heimskommúnismanum !

 

Ég held satt best ađ segja ađ ţađ sé ekki á fćri vestrćnna sagnfrćđinga ađ skýra međ hlutlausum hćtti ţađ sem gerđist viđ Stalíngrad. Ţeir hafa einfaldlega ekki hugarfarslegan skilning á ţví. Aftur og aftur falla ţeir í gryfjur áróđurslegrar umrćđu og viđhafa klisjukenndar stađhćfingar sem draga úr trúverđugleika ţess sem ţeir eru ađ segja.

 

Antony Beevor fellur sýnilega nokkuđ oft í slíkar gryfjur. Oftast ţegar hann nefnir eitthvađ af hálfu Sovétmanna hnýtir hann neikvćđum lýsingarorđum viđ efniđ. Ţađ er honum sýnilega svo eđlislćgt ađ hann áttar sig ekki á ţví hversu hlutdrćgt ţađ virkar. Ţađ hugarfarslega viđhorf sem veldur ţví lýtir allt ritverkiđ og sýnir ađ hlutlaus međferđ efnisins er ekki til stađar og raunar mćtti halda út frá ýmsu ađ höfundurinn sé eiginlega meira og minna á bandi Ţjóđverja.

 

Ţó er ađ finna í bókinni, ef vel er ađ gáđ, umsagnir sem undirstrika veigamikil atriđi, svo sem varđandi ábyrgđ ţýska hersins á stríđsglćpum. Hin illrćmda tilskipun Walter von Reichenaus marskálks til 6. hersins í október 1941 sýnir glögglega ađ ţýski herinn bar fulla ábyrgđ á ódćđisverkum gegn Gyđingum og óbreyttum borgurum í Úkraínu. Sú tilskipun var til dćmis studd af yfirbođara von Reichenaus Gerd von Rundstedt marskálki, sem oft hefur veriđ málađur upp sem herforingi andstćđur nazistum. En ţarna sýndi hann eđli sitt. Von Rundstedt og Rommel og ađrir ţýskir hershöfđingjar ţjónuđu nazistastjórninni og ţađ segir ţađ sem segja ţarf.

 

Samkvćmt ţýskum vitnisburđi gaf von Reichenau marskálkur einnig ţá fyrirskipun snemma í júlí 1941 ađ 3000 Gyđingar skyldu skotnir í hefndarađgerđum. En sjálfur lifđi hann ekki lengi eftir ţađ, hann fékk hjartaáfall í janúar og fórst svo í flugslysi í kjölfariđ.

 

Međal ţeirra stríđsglćpa sem Ţjóđverjar frömdu á ţessum tíma voru fjöldamorđin á 33771 Gyđingi í Babi Jar gljúfrinu viđ Kiev og morđin á 90 Gyđingabörnum, kornabörnum og upp í 7 ára, viđ Belaya Tserkov. Áđur höfđu foreldrar ţeirra barna veriđ myrtir. Úkraínskir hjálparmenn Ţjóđverja skutu börnin en fyrirmćlin voru ţýsk og ábyrgđin af glćpnum fellur á Ţjóđverja.

 

Ćđstu foringjar ţýska hersins á umrćddu svćđi hljóta sem sagt ađ hafa vitađ af ţví sem fram fór og samţykkt ađgerđirnar á sína vísu. Fullyrđingar ţeirra sem alltaf hafa reynt ađ hvítţvo ţýska herinn af slíkum glćpum eru ţví algjörlega úr lausu lofti gripnar og lýsa í raun annarlegum viđhorfum viđkomandi manna gagnvart gjörđum sem enginn mađur ćtti ađ leyfa sér ađ verja.

 

Ţetta verk Antony Beevors bćtir ađ minni hyggju – og ţađ finnst mér miđur - engu sérstöku viđ ţađ sem áđur var vitađ um átökin í Stalíngrad. Ţarna er hrúgađ saman persónulegum umsögnum, ađallega ţýskum, um ţetta og hitt, og margt af ţví efni virđist bara til uppfyllingar í ritverkinu og kemur oft kjarna málsins harla lítiđ viđ.

 

Mér finnst ýmislegt segja mér eftir lestur ţessarar bókar, ađ ţađ ađ hafa ţjónađ sem liđsforingi í breska hernum sé ekki góđur skóli fyrir ţann sem ćtlar sér ađ verđa trúverđugur sagnfrćđingur !

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 24
  • Sl. sólarhring: 293
  • Sl. viku: 1274
  • Frá upphafi: 316664

Annađ

  • Innlit í dag: 23
  • Innlit sl. viku: 1002
  • Gestir í dag: 23
  • IP-tölur í dag: 23

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband