Leita í fréttum mbl.is

Guðleysingjar prestaskólanna !

 

Nýlega las ég bloggumsögn eftir mjög pólitískan mann sem sendir oft frá sér athyglisverðar umsagnir um menn og málefni. Í umsögn þessari ræðir höfundur um Stalín sem mér finnst að sé honum reyndar afskaplega hugleikið umræðuefni. Segir hann að Stalín hafi gerst guðleysingi strax á öðru ári í prestaskólanum í Gori í Georgíu. Viðkomandi maður er guðfræðingur að mennt og þekkir því sennilega nokkuð vel til prestaskóla og þeirrar starfsemi sem þar fer fram !

 

Heimild höfundar er byggð á bókinni Stalín ungi sem er eftir breska sagnfræðinginn Simon Sebag Montefiore, en sá Simon er nú að minni hyggju enginn dýrlingur sagnfræðilegs sannleika. Bók hans um Stalín ber til dæmis skýrt með sér til hvers hún hefur verið samin. Það þarf enginn að búast við bók frá Montefiore þessum um Hitler, Franco, Salazar, Pinochet og Somoza - eða aðra harðstjóra af því taginu !

 

Því hver skyldi hann vera, þessi Simon Sebag Montefiore ? Menn geta flett því upp á netinu. Hann er breskur Gyðingur af auðugum ættum. Í föðurætt hans eru menn sem störfuðu innan Rothschild-ættarveldisins og í móðurætt er hann kominn af Gyðingum sem flýðu Rússland í byrjun 20. aldar.

Skyldulið hans hefur verið mjög hægrisinnað eins og auðugir Gyðingar eru oftast og sagnfræðileg skrif hans bera slíkum skoðunum skýrt vitni. Staðreyndavillur í bókum hans hafa vakið harða gagnrýni svo hann er enganveginn óumdeildur. Kannski má Montefiore kallast nokkurskonar Hannes Hólmsteinn þeirra Bretanna !

Santa kona Montefiores er einnig þekktur rithöfundur og þau hjónin eiga marga háttsetta vini í breska Íhaldsflokknum og allt upp í konungsfjölskylduna.

Þannig er nú þessi heimildamaður og að mínu mati ekki trúverðugur sem slíkur !

 

Nú, en þó hægri menn séu alltaf að reyna að koma höggi á kommúnismann með því að fjalla um Stalín og grimmdarverk hans, sönn sem login, er samt í umræddri umsögn nokkuð sem vekur mann til umhugsunar. Þar vil ég einkum staldra við það atriði að menn gerist guðleysingjar í prestaskólum !

 

Það er nefnilega nokkuð víst að Stalín er ekki einn um það að hafa hugsanlega tekið ranga stefnu á prestaskóla. Hérlendis hefur það stundum gerst að innilega trúað fólk hefur farið með eldinn í sér til náms í guðfræði og fengið hann algerlega slökktan þar. Hið fræðilega hefur tekið yfir og gert lifandi trúaðar manneskjur að steingervingum kirkjulegrar skipulagningar og kreddufestu !

 

Afleiðingin hefur svo orðið sú að við höfum fengið guðfræðilega menntaða guðleysingja út á meðal okkar sem presta – menn sem eiga að hafa það hlutverk að leiða fólk á vegi trúarinnar, en eru gersamlega ófærir um það. Þessir menn eru þá oft orðnir svo kyrfilega pakkaðir inn í kirkjulegar kreddur og stofnunarlegan þjónustu-anda, að þeir vita það allra síst sjálfir að þeir eru í raun og veru orðnir guðleysingjar !

Er það nokkur furða þó ýmislegt fari nú afvega í sannri kristindómsfræðslu, þegar andlausir umskiptingar eiga að sjá um hana ?

 

Í athyglisverðri bók sinni Leysið lýð minn segir sænski kristniboðinn Sten Nilsson að Satan hafi verið “fyrsti frjálslyndi guðfræðingurinn !” Hann hafi komið efanum inn í hjarta mannsins með því að segja - Er það satt að Guð hafi sagt o.s.frv ?

En menn geta náttúrulega haft ýmsar skoðanir á því hvaðan guðfræðin sé komin, en það er sannfæring mín að hún hafi litlu sem engu áorkað til góðs fyrir kristindóminn. Hún hefur miklu frekar ruglað málin þar og gert einfaldan, kærleiksríkan boðskap að fræðilegri flækju !

 

Í raun og veru er svokölluð guðfræði ekki frjálslynd fræðigrein, hún er þvert á móti mjög íhaldssöm og kredduföst eins og guðfræðingar sýna og sanna best sjálfir. Hinsvegar er frjálslyndishugtakið notað þar eins og í svo mörgu á okkar dögum, í blekkingarskyni, til að láta fólk halda að eitthvað sé eitthvað betra en það í raun er !

 

En guðfræðingur þarf á engan hátt að vera nær Guði en annað fólk og að minni hyggju er því öfugt farið, því lærdómshroki og Faríseaframganga opnar engum manni leiðir að hjarta Guðs. Fagnaðarerindi guðfræðinnar er aðeins umbúðamikið núll !

 

Prestaskólar og guðfræðideildir gera með þurrum fræðum sínum meira af því að slökkva trúareld í mönnum en flestir gætu ímyndað sér. Þannig verður yfirlýst nám í raun að andstæðu sinni og skilar í flestum tilfellum eingöngu frystum afurðum !

 

Það er því líklegt að prestaskólinn í Gori í Georgíu hafi á sínum tíma átt sínar hliðstæður býsna víða í hinum nafnkristna heimi og ekki hafa mál batnað síðan.

Guðfræðin er og verður eins og manngjörður eldvarnar-veggur milli Guðs og manna og vafalítið hefur hún oft slökkt vakningarloga þar sem þeir hafa viljað blossa upp.

 

Trú manna á ekki að vera bundin í viðjar fræðimennsku og menntunardrambs, hún á að búa í hverjum manni við frelsi hjartans. En guðfræðin vill fá að ráðskast með hana til að geta búið til litla páfa út um allar jarðir !

Það eru fáar leiðir líklegri til að skapa guðleysingja en einmitt þessi svokallaða guðfræði – ein og sér !

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 214
  • Sl. sólarhring: 255
  • Sl. viku: 1471
  • Frá upphafi: 316472

Annað

  • Innlit í dag: 180
  • Innlit sl. viku: 1184
  • Gestir í dag: 177
  • IP-tölur í dag: 176

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband