Leita í fréttum mbl.is

“The Great President “ !!!


Eitt af helstu kosningaloforđum núverandi forseta Bandaríkjanna var ađ gera Bandaríkin mikil aftur, to make America great again ! Eitthvađ hefur karli nú fundist hafa fjarađ undan stjörnuríkinu á seinni árum úr ţví hann sá ástćđu til ađ taka ţannig til orđa. En ţađ hafa fleiri fundiđ en hann og líklega ţó međ nokkrum öđrum hćtti !

 

Virđing Bandaríkjanna međal annarra ţjóđa er alls ekki slík sem hún var. Og ţađ á sínar eđlilegu skýringar ef menn vilja leita ţeirra. Um langt skeiđ hafa Bandaríkin grafiđ undan öllu trausti sem boriđ hefur veriđ til ţeirra, međ stórveldishroka sínum og yfirgangi gagnvart réttindum annarra ţjóđa. Ţađ nýtur enginn virđingar til lengdar sem hagar sér ţannig. Sumar ţjóđir fylgja nú Bandaríkjunum ađ málum af hundslegri auđmýkt fyrir valdinu en ekki međ virđingu eđa í trú á góđan málstađ !

 

Bandaríkin trođa nú svipađan feigđarveg og Rómaveldi forđum. Kerfisbundnir ,,kjörkeisararnir” koma stöđugt fram međ útţynntar túlkunar-útfćrslur á ákvćđum sjálfstćđis-yfirlýsingar Bandaríkjanna og enginn virđist sjá hvert stefnir. Senatorarnir á ţinginu sitja bara í sinni deild í huglćgum, hvítum skikkjum, viđ einskisnýtar, yfirborđskenndar umrćđur, fullir af sívakandi sjálfumgleđi !

 

Ekki virđist hin ţingdeildin burđugri og ţingmenn sýnast yfirleitt vera lítiđ annađ en rislágir kerfiskarlar. Valdiđ er löngu stađsett annarsstađar en hjá ţeim. Bandaríska ţingiđ er orđiđ lítiđ annađ en táknmynd einhvers sem var, einhvers sem ţyrfti ađ vera en er ekki lengur til stađar. Hvergi finnast ţar skörungar á viđ Clay, Benton og Webster eđa nokkrir ţeirra líkar. Horfin er vegsemdin sem var !

 

Núverandi forseti hefur sýnilega enga hćfni til ţess ađ skapa samstöđu um góđ mál. Og ţađ sem hann telur góđ mál er trúlegast eitthvađ sem flestir ađrir myndu telja hiđ gagnstćđa. Viđhorf mannsins til ţess hvađ er rétt og rangt virđist afar undarlegt.

Hann rćđur starfsmenn og rekur ţá jöfnum höndum. “ You´re fired ! “ virđist vera hans lausn á hlutunum ţegar allt er komiđ í óefni – oftast fyrir hans eigin tilverknađ !

 

Kannski er nú kominn sá tími, sem enginn hefđi búist viđ ađ ćtti eftir ađ koma, ađ Warren G. Harding teljist ekki lengur sá lakasti međal forseta Bandaríkjanna. Núverandi forseti virđist á góđri leiđ međ ađ múra sig inni í eigin delluköstum og virđing Bandaríkjanna rýrnar ađ sama skapi !

 

Sá mađur sem ćtlar í alvöru ađ gera Ameríku mikla aftur verđur auđvitađ ađ hafa einhvern mikilleika til ađ bera sjálfur, en ţví virđist ekki ađ heilsa. Ljóst virđist ţví vera ađ áhrif valdatíma núverandi forseta á bandaríska ţjóđfélagiđ geta ekki orđiđ til ţess ađ hefja ţađ til meiri vegs á nokkurn hátt. Ţađ er einna líkast ţví ađ núverandi forseti sé bara einhverskonar Dump president og ekki til langtíma nota !

 

Síđustu hálfa öldina eđa svo hafa forsetar Bandaríkjanna ekki ţótt sérlega merkilegir persónuleikar, enda virđast litlar atgervis-kröfur hafa veriđ gerđar til ţeirra um slíkt. Kosning núverandi forseta er ekkert nema bein afleiđing ţess sem á undan hefur gengiđ. Hafi hann veriđ besta atgervisvaliđ sem hćgt var ađ fá úr 300 milljón manna ţjóđfélagi sjá menn líklega ađ ekki er viđ miklu ađ búast.

 

Lengi hefur vont veriđ ađ versna í forsetavali í stjörnuríkinu stóra og vesturheimsvitleysan aukist ađ sama skapi, – eđa kannski ćttum viđ ađ segja – stjörnuvitleysan !

 

Afar ólíklegt verđur ţví ađ teljast ađ einhver umrćđa eigi eftir ađ skapast um núverandi forseta sem The Great President heldur öllu heldur The Late President og ţađ orđalag gćti ţessvegna átt viđ – miđađ viđ framvindu mála - fyrr en flesta grunar, ţví dramb er falli nćst !


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 132
  • Sl. sólarhring: 133
  • Sl. viku: 1382
  • Frá upphafi: 316772

Annađ

  • Innlit í dag: 80
  • Innlit sl. viku: 1059
  • Gestir í dag: 76
  • IP-tölur í dag: 76

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband