Leita í fréttum mbl.is

Nokkur orđ um íslenskuđ Biblíunöfn !

 

 

Erfitt er ađ segja hvađan nöfn manna koma, hvert upphaf ţeirra er. Í raun er líka alltaf veriđ ađ búa til ný nöfn međ einhverjum hćtti. En ţađ fer auđvitađ oftast ţannig ađ sum festast í sessi en önnur detta fljótlega út. Margt er sérkennilegt viđ nafnagerđ og ţjóđlegar hefđir ţar mjög sérstćđar. Til dćmis er ólíklegt ađ menn fengju nafniđ Jóhannes skírari hér, en í Frakklandi hafa ótaldir menn fengiđ ţađ nafn – Jean Baptiste !

 

Athyglisvert er samt, ađ ţrátt fyrir ţađ sem margir vilja kalla afkristnun ţjóđarinnar, virđast nöfn úr Biblíunni alltaf nokkuđ vinsćl hver sem ástćđan kann ađ vera. Hjá okkur eru nöfnin Adam og Eva til, ekki síđur en Askur og Embla, og geta menn velt vöngum yfir ţví hvađ ţar er um áţekk nöfn ađ rćđa. Líklega tengjast ţau sitthvorri útgáfunni af sama upphafinu !

 

Oftast virđist nú sem fólk hafi heldur kosiđ ađ láta heita eftir nöfnum hinna betri manna úr Ritningunni, má ţar nefna nöfn eins og Enok, Nói, Ísak, Samúel, Daníel, Jónatan o.s.frv., en ţađ er ţó ekki einhlítt. Ekki hefur nafniđ Abel til dćmis náđ festu hér, en önnur nöfn orđiđ nokkuđ algeng svo sem Jakob (hćlhaldari), Aron, Davíđ og Benjamín. Sérlega algengt hefur nafniđ Jósef orđiđ, enda voru ţeir menn sem ţađ tengist helst í Biblíunni miklir mannkostamenn !

 

Aronsnafniđ hefur orđiđ mjög vinsćlt á seinni árum og miklu algengara en nafniđ Móse (s). Kannski ađ ţađ sé vegna ţess hvađ margir virđast helst af öllu vilja steypa og tilbiđja gullkálfa í dag ? Aron var auđvitađ enginn leiđtogi eins og Móse og ađ ţví er virđist heldur veikur fyrir tíđarandanum. Ţađ er ţví ekkert undarlegt ţó nafni hans sé hampađ nú á tímum.

 

Spámannanöfn eru nokkur ţekkt hérlendis, Elía (s), Jóel, Jónas, Daníel, Hósea (s), Natan, Sakaría (s), og nöfn engla eins og Mikael og Gabríel !

 

Ekki höfum viđ tekiđ upp nöfnin Sem og Kam ( eđa Ham), en Jafet höfum viđ hinsvegar vakiđ til lífs hér. Synir Jakobs eđa Ísraels eru til í nöfnunum Leví, Jósef og Benjamín (Sonur Suđurlandsins, hamingjusonur). Sá síđastnefndi var reyndar nefndur Benóní (hryggđarsonur) af deyjandi móđur sinni og ţađ nafn höfum viđ líka međtekiđ !

 

Nöfn guđspjallamannanna eru öll til í okkar nafnaflóru, en nafniđ Lúkas er ţó einna sjaldgćfast. Viđ höfum reyndar lagt út nafniđ Jón á fleiri en einn veg, svo sem Jóhann og Jóhannes. En nafnmyndin Jón hefur ţó orđiđ langsamlega algengust hérlendis af ţeim útfćrslum !

 

Hafa ţeir sem heitiđ hafa Jón, og jafnframt veriđ Jónssynir, veriđ svo margir á Íslandi til ţessa, ađ stundum hefur ţađ valdiđ ćttfrćđisinnuđu fólki töluverđum erfiđleikum ađ greina ţar á milli manna !

 

Nöfn postulanna eru sum alţekkt á íslenska vísu svo sem Símon og Pétur, Andrés, Jóhannes, Jakob, Tómas, Filippus og Páll. Önnur Biblíunöfn eru svo til hér, misjafnlega algeng ţó, Salómon, Elí, Betúel, Bóas, Esra, Jósafat, Gamalíel, Job, Tímóteus, Samson, Metúsala (Methúsalem), Ebeneser (hjálparhella), o.fl. Nokkrir menn hafa fengiđ nafniđ Abraham, en ţađ hefur aldrei orđiđ algengt nafn á Íslandi !

 

Allmörg kvenmannsnöfn hér eiga líka ađ öllum líkindum rćtur ađ rekja til Biblíunnar og ţar ber nafniđ María hćst. Einnig má nefna nöfnin Eva, Sara, Rebekka, Rakel, Rut, Marta, Ester, Anna, Hanna, Elísabet, Debóra o.fl. Nafniđ Salóme er líka ţekkt hérlendis !

 

Ţađ ţykir augljóslega öllu vinsćlla á Fróni ađ halda uppi nafni Söru en Abrahams. Rakel er líka orđiđ nokkuđ algengt nafn hér en Leu er nánast hvergi getiđ. Alltaf virđist hún blessunin sett hjá. Margt er hćgt ađ hugleiđa í ţessum efnum út frá hverju nafni fyrir sig !

 

Líklegt má telja ađ um eđa yfir 50 karlmannsnöfn hérlendis séu komin úr Ritningunni og sennilega um 20 kvenmannsnöfn. Mestur hluti ţeirra nafna á sér hliđstćđur í öđrum kristnum löndum á sömu forsendum !

 

Í arabískum heimi eru ćttfeđranöfnin líka mjög algeng, Ibrahim, Ishaq, Yaqub, Yussef, enda uppruni ţjóđanna sá sami ţó friđsamlegra mćtti vera innan ţeirrar stórfjölskyldu. En máltćkiđ segir víst ,,frćndur eru frćndum verstir ” og er ţađ víst eitthvađ sem flestir ţekkja – ţví miđur.

Međ ţeim orđum lćt ég svo ţessum pistli lokiđ !

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 83
  • Sl. viku: 1098
  • Frá upphafi: 315003

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 822
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband