Leita í fréttum mbl.is

Burt með spillinguna og afætukerfin

Íslenska ríkiskerfið breyttist til hins verra í mörgu eftir innreið frjálshyggjunnar upp úr 1980 og gerðist þaðan í frá stöðugt meira skálkaskjól falskra starfshátta.

Svokölluð uppbyggingarstarfsemi fór að taka sífellt meira mið af sérhagsmunum svo að í raun var um að ræða stórfellt niðurrif ofmenntaðrar valdsstéttar á gömlum gildum sem kom mest fram í því að níðst var á heildarhagsmunum þjóðarinnar.

Pólitísk velferðarstefna fyrir þjóðfélagsheildina varð brátt alls staðar í algjöru skötulíki. Flokkarnir höfðu svo sem allir lengi haft almenna velferðarstefnu sem  opinbert stefnumið, en það var fyrst og fremst verið að því í blekkingarskyni, því enginn þeirra hefur fylgt þeim forskriftum eftir með ærlegum hætti.

Ríki og sveitarfélög hafa verið rekin að miklu leyti eftir þrælmögnuðum sérhagsmuna leiðum. Hyglingar og mismunun hafa verið svo til daglegt brauð og allt hefur þetta gerst fyrir atbeina stjórnmálaflokkanna sem hafa gerst æ spilltari. Ríkiskerfið allt er löngu orðið sannnefnd gróðrarstía fyrir spillingu.

Þrýstihópar hafa makað krókinn þar og í viðskiptalífinu og almenn velferð hefur jafnan verið látin lönd og leið þegar því er að skipta. Allt hefur snúist um að "aðallinn"  gæti lifað hátt á kostnað almenningsheilla.

Utanríkisþjónustan hefur t.d. verið með ýmsar senditíkur og eflaust annað flottræflalið á háum launum, án þess að sögur færu þar af verkefnum og vinnuframlagi. Þar fer skattpeningurinn fyrir lítið sem og víðar í kerfinu.

Ég las einu sinni að spillingin innan Sameinuðu þjóðanna væri komin á það stig að það væri dæmi til um hálaunaða embættismenn  á vegum þeirra sem dveldu árin út í Sviss og víðar, þægju sín laun og gerðu ekki nokkurn skapaðan hlut nema taka þátt í kokkteilboðum og samkvæmislífi. Og þessi lýsing yrði áreiðanlega enn ógeðslegri ef málin væru rannsökuð í dag.

Svipað virðist þetta hafa verið innan íslenska ríkisins. Embættismannakerfið þar er löngu staðnað og ófærugjá milli þess og þjóðarinnar sem það þykist vera að þjónusta. Vofa Sir Humphrey Appleby gengur ljósum logum um alla sali þar með sín kerfisáhrif.

Þar er allt stöðuglega í síhækkandi gír varðandi laun og hlunnindi og ekkert sem dregur úr sporslum og spreðeríi, hvernig svo sem efnahagsástandið er á hverjum tíma. Menn mæta líka þar í sínar kokkteilveislur, með sínar fálkaorður og riddarakrossa, og hégóminn og vitleysan er í algleymingi, meðan almenningur berst við það að hafa í sig og á. Það er engin hugsjón fyrir þjóðfélagslegri velferð lengur til í þessum " upper class " hópum, allt miðast við að komast betur á jötuna, komast betur að kjötkötlunum, komast betur inn í eitthvert afætukerfið sem nagar grunnstoðir þjóðfélagsins.

Sumar af stoðunum þeim hafa reyndar þegar verið nagaðar alveg í sundur af - mér liggur við að segja - þessum Homo Sapiens meindýrum.

Þar á ég við siðleysingja sem hrækja með fyrirlitningu á alla mannfélagslega hugsun, gera gys að réttlæti og sannleika, og sjá ekkert að mismunun svo framarlega sem hún þjónar þeirra hagsmunum.

Það er nefnilega til fólk sem sýnir á sér afskaplega andfélagslegar hliðar og við þekkjum sjálfsagt flest - því miður - dæmi um slíkt. Þannig er fólkið sem fyllir afætukerfi þjóðfélagsins, ríkiseiningarnar margar hverjar, viðskiptalífið, kvótahirðina og yfir höfuð allar þær spensuguleiðir sem fyrirfinnast og kostaðar eru af almenningi.

Lífsmottóið hjá þessu liði virðist vera " Það er svo flott að hafa það gott !" En það er ekkert flott við að vera afæta - það er bara skammarlegt !

Nýja Ísland þarf að vera laust við afætukerfin - þau hafa skaðað land og þjóð meira en flestir geta í raun gert sér grein fyrir. Þau hafa stundað niðurrif þjóðfélagslegra verðmæta um árabil og valdið nær óbætanlegu tjóni á samfélagsbyggingu sem átti að hafa fulla burði til að skila sér sem skjól fyrir alla. En Ísland eftir 1980, eftir að frjálshyggju-viðbjóðurinn yfirtók Sjálfstæðisflokkinn og gerði hann að því sem varð svo Þjóðarógæfuflokkurinn stóri, var fyrst og fremst hannað sem skjól fyrir fáa útvalda - gæðinga og gróðapunga sem höfðu aldrei neina þjóðhollustu til í sínum fórum.

Ríkisstjórnin sem nú situr og kennir sig við félagshyggju, hefur rótast í því að endurfjármagna bankana með skattpeningum okkar, hefur ötullega byggt undir fyrirtæki og fjármagnseigendur eins og hver blámannastjórn hefði gert í hennar sporum, en að slá skjaldborg um heimilin í landinu - það hefur hún ekki gert þrátt fyrir fögur orð og fyrirheit um slíkt.

Þar hefur hún svikið öll sín orð fram að þessu og er verri fyrir vikið en nokkur hægri stjórn, því hún hefur með því framferði rekið rýting í bakið á fjölskyldunum í landinu.

Jóhanna Sigurðardóttir var sett á forsætisráðherrastólinn og margir litu á hana sem einhvern erkiengil réttlætis og mannréttinda, en sú mynd hennar mun fljótlega breytast í andstæðu sína í augum fólksins í landinu, ef hún gengur áfram veginn inn í sérhagsmunabjörgin. Og hún virðist sannarlega vera á leiðinni þangað !

Hún virðist hreint ekki vera að smala saman þeim félagshyggjuöflum sem slegið gætu skjaldborg um heimilin í landinu, hún sýnist miklu frekar vera að smala saman villiköttum viðskiptalífsins og afætukerfanna til að þau öfl geti varið sína sérhagsmuni gegn félagslegum almannalausnum.

Það er hvorki rétt né sanngjörn stefna, að afskrifa endalaust skuldir, og það ekki svo litlar skuldir, hjá fyrirtækjum svikahrappa og fjárglæframanna, en skilja heimilin í landinu eftir varnarlaus í klóm sama auðvaldsins og steypti hér öllu í strand.

Sú ríkisstjórn sem nú situr fékk ekki brautargengi út á slíka stefnu - fólk vænti þess að hún myndi standa fyrir almenningsvænum lausnum í hvívetna, en þær væntingar virðast nú hjá mörgum vera að renna út í sand örvæntingar og reiði. Það er ekki furða þó mikið sé talað um " fjórflokkinn ", að hin pólitísku öfl séu jafnspillt yfir línuna og það sé enginn munur þar á.

Við vitum hvernig hægri öflin notuðu valda-aðstöðu sína til að flá efnahagshúðina af almenningi í þessu landi og ef núverandi vinstri valdaöfl ætla að láta þá fláningu standa eru þau síst betri.

Burt með afætukerfin og tökum upp raunverulegt lýðræði í þessu landi !


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 134
  • Sl. sólarhring: 135
  • Sl. viku: 1384
  • Frá upphafi: 316774

Annað

  • Innlit í dag: 81
  • Innlit sl. viku: 1060
  • Gestir í dag: 76
  • IP-tölur í dag: 76

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband