Leita í fréttum mbl.is

Um séríslensk vandamál

Í sjónvarpsviðræðum í Kastljósi milli fulltrúa stjórnmálaflokkanna 14. apríl sl. sagði Þór Saari að alþingi yrði að byrja hreingerningu þjóðfélagsins innan sinna veggja, axla ábyrgð og sýna gott fordæmi. Bjarni Benediktsson brást við þessum orðum Þórs með því að fara að tala um vitleysuna sem hefði viðgengist út í þjóðfélaginu og um leið hvessti hann augun gegn Þór eins og hann héldi að það væri nóg til að þagga niður í honum,. En Þór lét sér hvergi bregða og svaraði honum einfaldlega með því að eftir höfðinu hefðu limirnir dansað.

Þór fór í þætti þessum nokkrum viðurkenningarorðum um Vinstri græna og sagði að þeir hefðu stöðugt varað við og reynst hafa haft á réttu að standa.

Jóhanna Sigurðardóttir vildi nú meina að hún hefði líka varað við, en ekki bar nú mikið á því í þetta eina og hálfa ár sem hún sat stillt og prúð í ríkisstjórn með sjöllum, altekin þeirri hugsun eins og hinir kratarnir að senn yrði lagt í ferðina til Brussel.

En það er þetta með að axla ábyrgð. Það virðist séríslenskt vandamál að slíkt sé  ekki gert. Og ef það er gert þá er það yfirleitt með þeim hætti að það hefur í raun ekki verið gert. Bjarni Benediktsson sagði eftir að rannsóknarskýrslan kom út að Geir Haarde hefði beðist afsökunar á landsfundi flokksins. Það var náttúrulega ekki alls kostar rétt hjá Bjarna frekar en margt annað, því sú afsökunarbeiðni var til flokksins en ekki þjóðarinnar. Og þó Sjálfstæðisflokkurinn telji sig stóran þá er hann ekki þjóðin. Hreiðar Már Sigurðsson bað fjárfesta afsökunar í Kastljósþætti en sá enga ástæðu til að biðja þjóðina afsökunar, en nú hefur Björgólfur Thor fyrstur útrásarforkólfanna gert það. Spurningin er hinsvegar - liggur einhver iðrun að baki eða er þetta bara enn eitt klókindabragð hins alþjóðlega fjárfestis ?

Það er margreynt mál að fólk fær iðulega samúð með röngum aðilum og oft frekar gerendum en þolendum. Þetta veit Björgólfur Thor efalaust og kannski er hann einmitt að róa á slík mið með afsökunarbeiðni sinni. Fjölmiðlarnir virðast líka í ýmsum tilfellum vinna að því að vekja samúð með röngum aðilum og vekur það kannski enn og aftur spurningar um það hver eigi þá og hverjum þeir þjóni ?

Við höfum séð 7 hægri manninn með barn sitt í fanginu, við höfum séð tvær  þungavigtarkellingar úr pólitíkinni grátandi af iðrun og játandi mistök og svona sviðsetningar eru auðvitað ömurlegt sjónarspil. Kannski á allt útrásarliðið og kerfislegir fylgifiskar þess eftir að koma fram með ýmsum hætti og reyna að sleikja sér út samúð næstu vikurnar og svo á eftir eiga væntanlega allir að vera vinir og standa saman í hörmungunum.

En meinið er að hörmungarnar eru fyrst og fremst að lenda á okkur, almennum borgurum þessa lands  - en ekki þessu þjóðarógæfuliði, sem þó er gerandinn að þeim og hruninu. Við erum hinsvegar þolendurnir !

Og eigum við að hafa samúð með þessu fólki, er virkilega ætlast til þess - t.d.

í fjölmiðlum sem þeir eiga ef til vill ennþá ?

Hversu líklegt er t.d. að Morgunblaðið geti fjallað um hrunið og ástand mála með frambærilegum og trúverðugum hætti - undir ritstjórn Davíðs Oddssonar ?

Eru engar vanhæfisreglur til þegar þannig stendur á að aðalleikarar þjóðmálahrollvekjunnar sem leiddi til hrunsins  eru við stjórnvöl fjölmiðla ?

Væri ekki nauðsynlegt í ljósi aðstæðna að koma fram með fjölmiðlafrumvarp sem tæki á slíkum hlutum ?

Það vantaði ekki hrokaháttinn í þessar manneskjur þegar þær veltu sér í völdunum og horfðu smáum augum á allt og alla, meðan tveggja, þriggja kynslóða erfiði íslensku þjóðarinnar var gert því sem næst að engu.

Og halda menn að opinbert snökt í tveim pólitískum kellingum geti þvegið allt svínaríið á burt sem að baki er ?

Nei, það er satt sem Þór Saari segir - alþingi er ekki fært um að vera Alþingi Íslendinga með stórum staf fyrr en það hefur hreinsað ærlega til í sínum ranni.

Og það þarf meira efni til þeirrar hreingerningar en krókódílatár í ræðustóli !

Þjóðfélagsleg endurreisn getur einfaldlega ekki orðið að veruleika meðan þingið er eins og það er !


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 292
  • Sl. sólarhring: 326
  • Sl. viku: 1481
  • Frá upphafi: 314768

Annað

  • Innlit í dag: 236
  • Innlit sl. viku: 1150
  • Gestir í dag: 225
  • IP-tölur í dag: 224

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband