Leita í fréttum mbl.is

HVAĐ VARĐAR MIG

Hvađ varđar mig um ţjóđfélag sem ţrífst á eignaránum

og ţreifar sig í blindni ađ myndinni á skjánum.

Sem siđleysinu fylgir á sviđum öllum núna

og svívirđir ţađ góđa og einkum kristnu trúna ?

 

Hvađ varđar mig um hrokann sem stjórnvöld stöđugt sýna

og stefnu ţá sem ţćtti ekki bjóđandi í Kína.

Um spillinguna miklu í feitum skálka skrokkum,

um skítmennskunnar eđli í pólitískum flokkum ?

 

Hvađ varđar mig um lífiđ í landi sem er dáiđ

og liggur úti á klaka sem fölnađ sinustráiđ.

Um glćpina sem lögđu hér hverja von ađ velli,

um vítissprengju bankanna sem sprakk međ háum hvelli ?

 

Hvađ varđar mig um allt ţađ sem eitt sinn var til prýđi

fyrst endalokin sjást nú í ţjóđar minnar stríđi.

Fyrst allt er bundiđ dauđa og öllu rćnt og stoliđ

og ekkert lengur til sem í mönnum styrkir ţoliđ ?

 

Hvađ varđar mig um kosningar kringum lygi tóma

og klćkjarefaspiliđ sem snýst um falska dóma.

Ţá skítalykt sem angar af öllum landsins flokkum

og yfirráđafrekju í spilltum drullusokkum ?

 

Hvađ varđar mig um allt ţađ sem eyđilagđi ríkiđ

og óţverrann sem fyllir nú kerfis-syndadíkiđ.

Ţađ niđurbrot á öllu sem aliđ var á hreinu

fyrst yfirvöldin sýna ekki bótavilja í neinu ?

 

Ég ţjóđ og land hef elskađ af öllu mínu skyni,

af alúđ ţeirri er skapast í rćktarfullum syni.

Og ţó ég yrki svona ég syrgi og andinn grćtur

og sálin í mér ţjáist og tregar horfnar rćtur.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 197
  • Sl. sólarhring: 250
  • Sl. viku: 1606
  • Frá upphafi: 315587

Annađ

  • Innlit í dag: 170
  • Innlit sl. viku: 1296
  • Gestir í dag: 167
  • IP-tölur í dag: 166

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband