Leita í fréttum mbl.is

Ađ loknum tvö hundruđ pistlum

Frá ţví ég hóf ađ rita hugleiđingar mínar í pistilformi á bloggsíđu ţessari 3. apríl áriđ 2007 hef ég  -  ađ međtöldum ţessum pistli birt tvö hundruđ slíka.

Skiljanlega hafa pistlar ţessir fjallađ um ýmis efni og mjög margir um ţćr hamfarir sem skekiđ hafa íslenskt samfélag, eftir ađ andvaralaus yfirvöld settu hér allt um koll međ margföldu ofeldi á alikálfum.

Ég býst viđ ađ ţeir séu allnokkrir sem hafa ţá skođun, ađ umfjöllun mín um ţá sögu hafi veriđ býsna neikvćđ, ţví ţađ er landlćgur ósiđur á Íslandi ađ hafa  helst samúđ - annađhvort međ sjálfsköpuđum aumingjum eđa gjörspilltum glćframönnum.

En sannleikurinn er hinsvegar sá, ađ ég hef ekki getađ skrifađ nógu harđa pistla um ţá hluti sem hér gerđust, ţví til ţess brestur mig hreinlega orđaforđa.

Ţađ sem gerđist og allt svikrćđiđ viđ ţjóđarhagsmuni í ţví sambandi er líka ólýsanlegt í hćsta máta. Ţar var djöfullinn sannarlega í essinu sínu.

Ţađ munu í ţađ minnsta líđa 50 ár áđur en menn munu gera sér grein fyrir öllum skítnum sem stjórnvöld hrúguđu hér upp á Davíđstímanum - ef ţađ verđur ţá nokkurntíma hćgt ađ skilja ţađ skađrćđi til fulls.

En ađalástćđan fyrir pistilskrifum mínum er ţađ sjónarmiđ sem kemur fram í einni af snilldarvísum Káins sem hljóđar svo :

 

" Fyrir ţví lítiđ hef ég haft

heimsku minni ađ flíka.

En ţegar ađrir ţenja kjaft

ţá vil ég tala líka ! "

 

Og ţađ er ein af gjöfum frelsisins, hins lýđrćđislega frelsis - ađ menn hafa málfrelsi. Menn eiga ađ geta sagt skođun sína skýrt og skilmerkilega og ţađ hef ég alla tíđ gert í mínu lífi. Ţađ skiptir svo miklu ađ menn séu sjálfum sér samkvćmir og níđist hvorki á eigin manndómi né rétti annarra.

Ţađ er nefnilega ekki mikils virđi fyrir menn ađ standa á löppunum, ef ţrćlseđliđ rćđur hugarfari ţeirra og blóđmark ţess er á sál ţeirra. Ég hef séđ og hitt nokkra sem ţannig er ástatt međ og mér hefur jafnan fundist ţađ vera eitt af ţví ömurlegasta sem ég hef upplifađ.

Menn sem gera sjálfa sig ađ söluvöru eru meinvörp allrar mannréttindasóknar.

Sjónarmiđ mín hafa aldrei veriđ föl og ég hef stađiđ á sannfćringu minni alla tíđ af fremstu getu. Ég hef einfaldan smekk og vil bara fylgja ţví sem rétt er.

Pistlar mínir sýna hvernig ég er og ţeir eru ekki lagađir ađ geđţótta eins eđa neins - ég vil bara fá ađ segja mína skođun ţegar ađrir eru međ kjaft !

Ég hef líka einfalt ráđ til handa ţeim sem hafa lesiđ pistla mína og orđiđ illir út af ţeim sumum hverjum, eins og ég hef dćmin um. Ţeir eiga bara ađ hćtta ađ lesa ţá - ţeir eru ekki skrifađir fyrir slíka lesendur, ekki fyrir neina heilaţvegna áhangendur pólitískra pestarflokka,  - ţeir eru skrifađir međ lesendur í huga sem hafa manndóm í sér til ađ geta hugsađ frjálst og lagt sjálfstćtt mat á  málflutning. Ég legg mína tvö hundruđ pistla fúslega í hendur slíkra lesenda og treysti ţeim til ađ meta rök mín og rćđur međ vitrćnum og sanngjörnum hćtti.

Fólk af ţví tagi er fólkiđ sem varđveitir íslenska andann í brjósti sér og mun bjarga ţessari ţjóđ okkar frá afleiđingum hins langa valdatíma Stóra Ţjóđarógćfuflokksins ef einhver getur gert ţađ.

Ég er ţakklátur slíkum lesendum ţví ég veit ađ manneskjur af ţví tagi dýrka ekki Mammon og halda tryggđ viđ allt sem gott og göfugt er í mannlífinu.

Og mannkyniđ á von međan slíkar manneskjur eru til og Ísland ţar af leiđandi líka.

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 203
  • Sl. sólarhring: 257
  • Sl. viku: 1224
  • Frá upphafi: 309918

Annađ

  • Innlit í dag: 186
  • Innlit sl. viku: 1052
  • Gestir í dag: 185
  • IP-tölur í dag: 183

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband