Leita í fréttum mbl.is

Ţjóđin verđur sjálf ađ hreinsa til - kerfiđ gerir ţađ ekki !

Í tengslum viđ landsdómsmáliđ kom berlega í ljós ađ allt of fáir menn hérlendis eru tilbúnir ađ hugsa um ábyrgđ pólitíkusa út frá ţjóđlegum heildarhagsmunum.

Ţeir eru hinsvegar allt of margir sem hugsa fyrst og fremst um flokkslega hagsmuni. Hollustan viđ ţjóđina er ţannig greinilega minni hjá mörgum en hollustan viđ flokkinn. Ţađ er t.d. slćmt til ţess ađ hugsa

- ađ menn sjái sig frekar sem flokksmenn í Sjálfstćđisflokknum en sem íslenska ríkisborgara !

- ađ menn sjái sig frekar innan Samfylkingarinnar sem ađila ađ Evrópusambandinu en sem sjálfstćđa Íslendinga !

- ađ menn sem eiga ađ stýra málum okkar séu kannski öllu frekar í sumum tilfellum ađ vinna gegn íslenskum ţjóđarhagsmunum en međ ţeim !

Sankti Jóhanna Sigurđardóttir, sem er ţví miđur forsćtisráđherra Íslands sem stendur, talađi fyrir nokkru úr rćđustóli á Alţingi og rakkađi ţar niđur gjaldmiđil landsmanna ! Ég hélt ađ ţađ vćri starfsskylda hennar ađ gćta hagsmuna Íslands og í ţví fćlist ţađ međal annars ađ tala ekki gjaldmiđil ţjóđarinnar niđur ? Ţessi manneskja er sjáanlega ekki hćf til ađ skila starfi sínu eins og henni ber ađ gera  !

Sér einhver fyrir sér forsćtisráđherra annars lands hegđa sér međ slíkum hćtti ?

Efnahagsleg veltistađa Íslands og veik stađa krónunnar er ekki hvađ síst afleiđing af vanhćfri međferđ pólitíkusa ţessa lands á öryggismálum ţjóđarinnar. Ţeir drógu ţjóđina fram af hengiflugi hruns og hryllings međ gjörsamlega óábyrgri stjórn efnahagsmálanna.

Ţeir voru gerendur hrunsins ásamt útrásarvíkingunum sem voru búnir til og gerđir út af ţeim. Í dansinum um gullkálfinn fyrir hruniđ var Ólafur Ragnar međ í leiknum, öll ţáverandi ríkisstjórn var međ í leiknum - ađ međtalinni Sankti Jóhönnu og mikill meirihluti ţingsins !

Svo heldur ţetta yfirslekti ađ fólk muni ekki hvernig ţađ hegđađi sér !

" Eftir höfđinu dansa limirnir " segir spakmćliđ og höfuđskepnur ţjóđfélagsins voru hreint ekki í lagi og stóđu enganveginn sína plikt gagnvart ţjóđinni !

Rannsóknarskýrslan er himinhrópandi vitnisburđur um vítaverđa frammistöđu kerfisins á vaktinni fyrir ţjóđarhag. Ţar var enginn vakandi á vaktinni !

Og svo má ekki draga neinn til ábyrgđar, ţá fara menn ađ tala um ofsóknir, pólitískar nornaveiđar og tilraunir til ađ sverta ákveđna flokka ! Hvar og hvernig eru menn staddir gagnvart almannahagsmunum á Íslandi ţegar ţeir tala ţannig, hvađa gildi og vćgi hefur ţjóđarheildin í hugum ţeirra ?

Ég held ađ ţeir sem stunda slíkan málflutning séu yfirleitt ekki mjög áhyggjufullir út af hagsmunum ţjóđarinnar, en horfi ţeim mun meira ofan í eigin vasa og ţykist gjörla vita hvern ţeir eigi ađ styđja svo ţađ skili sér sem best í prívat-ágóđa úr lukkupotti sérgćskunnar !

Viđ getum ekki lengur búiđ viđ ţetta forustuliđ sem sýnir lítiđ sem ekkert af ćrlegri manndáđ og virđist aldrei geta unniđ neitt af heilindum fyrir fólkiđ í landinu  -

 

Ţó ţađ gangi gleitt um sviđ

geđs međ sveiflur rammar,

allt er ţetta óhćft liđ,

Íslandi til skammar !

 

Ţađ gildir ţađ sama varđandi fyrir og eftirhruns klíkuna í Stóra-Ţjóđarógćfuflokknum, Evrópusambands-dáleidda Samfylkingarónefnuna, Ný-Framsóknar vćlukórinn og Vinstri grćn í veltigír sitt á hvađ  - lýsum fullu frati á allt ţetta óhćfa og löngu úr sér gengna liđ !

Viđ ţurfum nýtt fólk til forustu, heiđarlegt og gott fólk - til ađ leiđa ţjóđina  inn á veg sannleikans, réttlćtisins og  mannúđarinnar, inn á veg lagasetninga sem hćgt er ađ virđa  og hafa ţjóđarhag ađ leiđarljósi - inn á brautina helgu !

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 361
  • Sl. sólarhring: 374
  • Sl. viku: 1550
  • Frá upphafi: 314837

Annađ

  • Innlit í dag: 294
  • Innlit sl. viku: 1208
  • Gestir í dag: 276
  • IP-tölur í dag: 273

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband