Leita í fréttum mbl.is

" Brusselhannađ bland í poka " !

Ţađ er ljóst ađ Samfylkingin varđ ekki guđbjartur flokkur, enda í engu viđ ţví ađ búast ađ flokkur sem hefur ţađ sem höfuđmál ađ selja sjálfstćđi okkar úr landi hafi eitthvađ ljós yfir sér. Reyndar hef ég ekki skiliđ hvernig Guđbjartur Hannesson getur veriđ í ţeim flokki eđa til dćmis Jóhann Ársćlsson ?

Kannski eru einhverjar sérađstćđur á Skaganum ţess valdandi ađ menn vita ekki hvađ ţeir gjöra ? Ragnheiđur Ríkarđsdóttir, sem líka er af Skaganum, vildi mörgu breyta og virtist sjá ţörfina fyrir slíkt ţegar hún var í Bandalagi Jafnađarmanna á sínum tíma. En svo var hún skyndilega hlaupin yfir til afturhaldsins og síđan hefur hún unađ hag sínum vel og er löngu orđin sátt viđ ađstćđurnar í ţjóđfélaginu, ţó ţćr hafi versnađ mikiđ síđan hún vildi mörgu breyta ! Svona getur nú sumt af ţessu fólki veriđ sem telur sig hafa miklar hugsjónir um mannréttindi og jöfnuđ um tvítugt, en fellur svo fljótlega frá öllu slíku fyrir vaxandi kröfum hagsmunagćslunnar !

En nú liggur fyrir ađ Árni Páll Árnason er bókađur, karađur og koppsettur sem fullgildur formađur Evrópusambandsinnaflokksins !

Ţar sýnist svo sem allt í fullkomnu samrćmi, formađurinn virđist hćfa flokknum og flokkurinn formanninum. En ţađ er ţó ekki víst ađ Árni Páll verđi farsćll formađur til lengdar, til ţess er hann sennilega of umdeildur í ţjóđfélaginu og jafnvel innan flokksins. Ţegar hann fer ađ láta til sín taka, er líklegt ađ leiđir hans muni liggja um ýmsar stóra hrauns breiđur stjórnmálanna og vafasamt hvort ratvísi hans og stjórnmálaleg hćfni verđi búin undir slíka ţolraun. Ég er á ţví ađ Árni Páll muni ekki safna vinsćldum og trausti í embćtti formanns Samfylkingarinnar, hvorki međal ţjóđarinnar eđa innan flokksins.

Ţar munu draga úr framgangi brotalamir í hans persónugerđ og brotalamir í flokksgerđinni og hygg ég ađ innan ţriggja ára eđa svo muni hvorttveggja vera búiđ ađ sanna sig fyrir flestum.

Ég hef áđur sagt ţađ og segi ţađ enn, ađ ţađ er undarlegt hvađ Samfylkingin hefur átt erfitt međ ţađ allt frá byrjun, ađ koma sér upp dugandi formanni  !

Og í mínum huga hefur ţessi síđasta tilraun í ţeim efnum mistekist eins og ţćr fyrri. Í raun og veru er ţessi flokksnefna nánast eins og einhverskonar Brusselhannađ bland í poka. Ţađ virđist algerlega undantekning ef einhver manneskja í forustuliđinu getur tjáđ sig međ skýrri ţjóđlegri tilvísun, og ţađ er eins og ţar sé gengiđ svo stíft á kjötkatlaseiđinn erlendis frá -  ađ innanlandssýnin tapist alveg og hafi ekkert vćgi !

Ţađ virđist ţví hreinlega ekki vera neinn jarđvegur í Samfylkingunni fyrir stórbrotinn, ţjóđlegan forystumann ! Mér finnst líklegasta skýringin á ţví vera, ađ ţegar einhver flokkur stefnir bara ađ ţví ađ vera kommissaraflokkur eđa stjórnvaldsleppur fyrir annađ vald, gerir ţađ möguleikana litla á ţví ađ eitthvađ heilsteypt, hugsjónaríkt og gott geti hafist ţar á legg !

Tćkifćrissinna-svipmótiđ á flokksliđinu er yfirţyrmandi áberandi í öllu tilliti.

Samfylkingin er ekki ţjóđlegur flokkur og verđur ţađ seint og ţó ađ Guđbjartur Hannesson hefđi veriđ kosinn formađur, hefđi ţađ ekki breytt miklu.

Flokkurinn er bara ekki međ ţá ţjóđlegu og ćttjarđarlegu tengingu sem ţarf ađ vera fyrir hendi, svo ađ víđtćkt traust á honum geti skapast í samfélaginu.

Ţađ skiptir ţví engu sérstöku máli hvort yfirkommissarinn heitir Árni Páll eđa Guđbjartur - ef ţađ liggur fyrir, ađ línudansinn sé fyrirskipađur frá Brussel !

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 191
  • Sl. viku: 1433
  • Frá upphafi: 315603

Annađ

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 1154
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband