Leita í fréttum mbl.is

Nokkur orđ í minningu HEMMA GUNN !

Ţá er sú stund komin er hin sögufrćgu orđ Edwins M. Stantons um Abraham Lincoln látinn, eiga viđ Hermann Gunnarsson, Hemma Gunn, hinn ţjóđkunna íţrótta og fjölmiđlamann okkar Íslendinga - „ Now he belongs to the ages !".

Ţegar fréttin um lát Hemma barst, fannst manni strax persónulega ađ mađur hefđi orđiđ fyrir missi. Ţađ var eitthvađ sem sagđi manni - í gegnum einlćgustu kennd hinnar samíslensku ţjóđartilfinningar, ađ viđ öll, landsins börn, hefđum misst góđan vin !

Hemmi kom nefnilega inn á íslensk heimili ár eftir ár sem einstakur vinur og gladdi unga sem aldna. Uppátćki hans og smitandi lífsfjör var vítamínsprauta fyrir ţjóđina. Mér vitanlega hefur enginn einn mađur glatt eins marga í gegnum fjölmiđla landsins međ jafn hreinum hćtti og hann. Hann hafđi alveg einstakan hćfileika til ađ vera hjartanlega hress og einlćgur.

Ţađ var einmitt ţessi hjartans einlćgni sem gerđi honum kleyft ađ eiga viđtöl viđ lítil börn og fá ţau til ađ tjá sig um lífsviđhorfin, drauma sína og hugleiđingar, međ yndislegum hćtti. Ţessi viđtöl Hemma viđ börn eru og verđa sérstakar perlur í ţjóđlegu menningarsafni okkar Íslendinga.

Og ţegar Hemmi rćddi viđ gamalt fólk, kom ţessi mikla hlýja hans og umhyggja ekki síđur fram í öllu viđmóti hans. Eins var hann afskaplega innilegur og gefandi viđ alla sem áttu viđ fötlun ađ stríđa og hafđi hugheila samkennd međ ţeim.

Hann reyndi í stuttu máli sagt ađ gera öllum lífiđ međ einhverjum hćtti bćrilegra.

Ég hallast ađ ţví ađ hann hafi í gegnum ţćtti sína og framkomu kennt fjölda fólks nýtt samskiptamynstur. Kennt fólki ađ láta í ljós vćntumţykju sína međ fađmlagi og sýnilegum kćrleika. „ Veriđ góđ viđ hvort annađ ´´ sagđi hann oft í lok ţátta sinna og undirstrikađi ţannig eitt kjarna-atriđi alls mannlífs ?

Ţótt hann hafi dáiđ fjarri ćttlandi sínu, vitum viđ ađ Ísland var í hjarta hans hvar sem hann var. Hann varđ ekki gamall mađur, en hann fékk ađ kveđja sem sá mađur sem hann var. Ţađ er ekki slćmt hlutskipti ađ fá ađ fara ţannig.

Nú er ţessi ástsćli vinur okkar allra kominn heim í íslenska mold og fćr ađ hvíla ţar í friđi eftir dýrmćtt dagsverk.

Ţegar ég heyrđi ađ hann vćri látinn, sat ég um stund hljóđur fram í eldhúsi og hugsun mín snerist einkum um ţađ hvađ hann gat glatt marga á sinni ćvileiđ. Svo fćddist ţessi kveđjuvísa:

Fyrir gefinn gleđibrunn

góđ er sagan bćđi og kunn.

Orđa má fyrir allra munn :

„ Ástarţakkir, Hemmi Gunn ! ´´

*************************

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 174
  • Sl. sólarhring: 216
  • Sl. viku: 1431
  • Frá upphafi: 316432

Annađ

  • Innlit í dag: 152
  • Innlit sl. viku: 1156
  • Gestir í dag: 151
  • IP-tölur í dag: 149

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband