Leita í fréttum mbl.is

Rokkiđ kom í ljósengils líki !

Ţegar Elvis Presley kom fram á sjónarsviđiđ upp úr miđri síđustu öld, vakti hann sterk hughrif, einkum međal ungu kynslóđarinnar sem var sú fyrsta sem ólst upp í skugga kjarnorkuógnarinnar. Unga fólkiđ sem vissi ekki nema ađ heimurinn vćri á hverfanda hveli, vildi umfram allt fá ađ njóta einhvers frelsis í lífi sem var ef til vill ekki til langframa.

En hömluleysiđ sem fylgdi hinum nýju lífsháttum varđ svo kröftugt ađ ekkert stóđst ţví snúning. Aginn í samfélaginu lét undan, foreldravald gufađi upp og međ ţví ađ mestu virđingin fyrir reynslu ţeirra sem eldri voru.

Og hetjurnar sem sköpuđust viđ ţessa uppreisn urđu söngvarar, tónlistarmenn og kvikmyndastjörnur, fólk sem túlkađi lífiđ í leik og tónum í villtri og seiđandi sveiflu augnabliksins, fólk sem var miklu nćr ţví ađ vera túlkunarmyndir ímynda en veruleika.

Hin dökka heimsmynd, grá fyrir járnum, vék úr hugum unga fólksins og ţađ varpađi sér í gleđskaparvímuna af lífi og sál og afleiđingar urđu ćđi oft hörmulegar. Drykkjuskapur, eiturlyfjaneysla, hrađakstur, ofbeldi og stundum ţetta allt í bland, setti stórt strik í líf ungs fólks, ekki síst í Bandaríkjunum, sem varđ svo ávísun á svipađa hluti í öđrum löndum.

Og idolin hrundu hvert af öđru fyrir eyđingarmćtti ţeirra afla sem ţau voru birtingarmyndir fyrir, James Dean fórst 24 ára í hrađakstri, Janis Joplin dó 27 ára vegna eiturlyfjaneyslu, Jim Morrison fór 27 ára sömu leiđina, Jimi Hendrix 27 ára sömu leiđ og Kurt Cobain sömu leiđ 27 ára !

Áfram mćtti telja mörg gođ af slíku tagi sem brunnu út á nokkrum árum og voru bókstaflega étin upp af eyđingarmćttinum eđa sjálfseyđingarhvötinni sem bjó í hömlulausum lífsháttum ţeirra og réđi alfariđ gangi mála.

En Presley sem var í fjöldans augum einn helsti frumkvöđull rokksins og stóra idoliđ, náđi ađ lifa framyfir fertugt, en sennilega hefur hann ekki haft mikiđ af hamingjunni ađ segja og síđustu ár hans munu hafa veriđ honum ţungbćr og erfiđ. Áhrif hans á ţá sem á eftir fylgdu voru hinsvegar gífurleg og hafa margir

viđurkennt ţađ međ afgerandi hćtti.

John Lennon sagđi eitt sinn:

„ Ekkert hafđi raunveruleg áhrif á mig fyrr en ég heyrđi í Elvis. Ef Elvis hefđi ekki komiđ til hefđu Bítlarnir aldrei orđiđ til ! ´´

Rod Stewart sagđi :

 „ Elvis var kóngurinn, án alls vafa. Menn eins og ég, Mick Jagger og allir hinir fetuđum bara í fótspor hans ! ´´

Paul McCartney sagđi :

 „ Ţegar viđ vorum lítil börn í Liverpool ţráđum viđ ekkert heitar en ađ verđa Elvis Presley ! ´´

Johnny Cash sagđi :

 „ Elvis var svo góđur drengur, hćfileikaríkur og heillandi. Hann elskađi ostborgara, stelpur og móđur sína. Ţó ekkert endilega í ţessari röđ !´´

Bono sagđi :

„ Elvis er eins og stóri hvellur rokksins. Ţetta byrjađi allt ţar ! ´´

Álíka umsagnir hafa veriđ hafđar eftir Frank Sinatra og Bob Dylan.

Elvis Presley var kannski í eđli sínu ljúfur mömmudrengur, en hann var notađur sem bođberi tónlistarlegrar nýaldarsköpunar og međ persónutöfrum sínum og sindrandi útgeislun ruddi hann rokkinu braut betur en nokkur hinna grófari idola sem á eftir hann komu hefđu getađ gert. Hann er ţví réttnefndur ljósengill rokksins og ef beitan er góđ veiđist vel á hana !

Rokkbyltingin var uppreisn gegn skipulagi og öguđum lífsháttum og smám saman varđ til lífsstíll sem gekk út á ţessa hluti. Og svo var fariđ ađ tengja !

Lífsstíllinn krafđist tenginga viđ jákvćđ gildi til ađ setja hulu yfir ţađ neikvćđa sem var ţó ráđandi í öllu. Blekkingar af slíku tagi hafa veriđ stundađar frá alda öđli međ miklum árangri en lygar eiga aldrei samleiđ međ sannleika !

Ţađ hefur til dćmis mörgu veriđ klínt viđ kristindóminn sem á í raun litla sem enga samleiđ međ honum og rokkiđ er eitt af ţví.

Margt tónlistarfólk spilar svokallađ kristiđ rokk, en auđvitađ er ekkert til sem getur heitiđ ţví nafni. Ţađ er auđvitađ til rokk og ţungarokk og eflaust fleiri afbrigđi af ţessari tónlist, en kristindómur og rokk fara ekki saman.

Bođskapur ađ ofan verđur ekki túlkađur međ tónlist sem kemur ađ neđan !

En samt er ţađ svo, ađ margt kristiđ fólk sér ekkert athugavert viđ rokkiđ og telur ţađ alveg geta veriđ forsvaranlega andlega músík og ađ sjálfsögđu segir ţađ sitt um grundvöllinn sem ţađ gefur sér og viđmiđin sem ţađ hefur !

Ţađ er ţví ekki ađ furđa ţótt kristindómsbođunin sé víđa orđin nokkuđ lituđ af villandi ađskotaefni en röng bođun leiđir aldrei til réttrar viđtöku.

Ţó ađ eitthvađ sé fram boriđ af einhverjum í ljósengils líki er ekki ţar međ sagt ađ ţađ sé trygging sannrar lífsblessunar  -  uppskeran mun alltaf sýna hvađan sćđiđ er fengiđ og uppskera rokksins hefur aldrei veriđ góđ fyrir mannlegt líf !

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 189
  • Sl. viku: 1030
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 903
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband