Leita í fréttum mbl.is

Hrunræn hrollvekja, norræn velferð og fjarræn frjálshyggja !!!

„Aðstandendur einkahítar

engum plágum varna.

Sjást ei fylgja sagnir nýtar

Sigmundi og Bjarna !"

Eftir að fyrrverandi ríkisstjórn fór frá, hafa margir ósjálfstæðir sjálfstæðis-menn haft það í miklum flimtingum að ekki hafi nú „ norræna velferðarstjórnin" gefist vel ! Reyndar var það ekki neitt nýtt í efni því allt frá því að sú stjórn tók við, voru slíkir aðilar náttúrulega fastir í þeim gír að rakka hana niður á allan hátt. Það átti líklega að vera einhverskonar öfugsnúin varnarpólitík af þeirra hálfu til að draga athyglina frá því sem áður hafði gerst, sem var að þeirra eigin menn höfðu splundrað hér allri velferð og leitt þjóðina í efnahagslegum skollaleik fram á ystu brún hengiflugs !

Hin hrunræna hrollvekjustjórn var alfarið þeirra óburður og Íslands ógæfa. Þó að sjálfstæðis-flokkurinn skipti um hækju 1995 og aftur 2007 var sama stjórnvaldið í raun og veru við lýði frá 1991 til 2009, - hátt í tvo áratugi, þann tíma sem sennilega verður síðar skilgreindur í þjóðarsögunni sem „hið glórulausa Davíðsdýrkunartímabil !"

Margt stjórnmálaaflið með allsherjarvöld hefur nú getað sannað gildi sitt á skemmri tíma en 17-18 árum, en tímanum var greinilega varið í annað en uppbyggingu varðandi velferð lands og þjóðar. Hann var sýnilega notaður mest til efnahagslegrar rányrkju gagnvart landi og þjóð eins og afleiðingar sukksins sýndu best í leikslok ! Þessvegna hlaut þessi langi valdatími að enda með hruni !

Hrunrænu hrollvekjustjórninni var eðlilega varpað skjótlega út úr stjórnarráðinu að kröfu ofsareiðrar þjóðar og yfirgúrú efnahagsmálanna, seðlabankastjórinn almáttugi, varð sömuleiðis að víkja. Flestir sáu á útmánuðum 2009 að öllu sem íslensk þjóð hafði byggt upp með dugnaði og ráðdeild tveggja kynslóða hafði verið stefnt í algjöran voða. Aðeins hörðustu frjálshyggjumenn og andlegir þankaþrælar Valhallarvaldsins neituðu að horfast í augu við staðreyndir og vældu þess í stað með aumingjalegum hætti um alþjóðlega kreppu og aðfengin vandamál erlendis frá. Þar sást glöggt hvernig algjör skortur á þjóðhollustu getur svipt suma öllu manngildi !

Við völdum tók ríkisstjórn sem var með allt önnur stefnuviðmið en hrunstjórnin, en ekki var ríkisbúið glæsilegt eftir rányrkjuna - allt í klúðri og kaldakoli ! Væntingar fólks voru þó miklar en líklega aldrei grundvöllur til að mæta þeim sómasamlega þó vilji væri kannski fyrir hendi. En það er alveg ljóst að við ramman reip var að draga frá upphafi með þjóðarbúskapinn og margt þvældist fyrir í kerfinu. Ekki er ólíklegt að margur kerfisbúrinn hafi þjónað meira undir aðra húsbændur en þá sem sestir voru í stólana !

Mörg mistök voru líka gerð af ríkisstjórninni sem reyndust áhrifarík til óvinsælda og að lokum fjaraði  mikið til undan henni, þar sem fólk fór að trúa því, altekið af óþolinmæði og meðfylgjandi vonsku vonbrigða,  að best væri að kalla arftaka Hrunverjanna aftur til valda. Þeir voru líka ósparir að lofa bót og betrun og sögðust stefna fast að því að bæta fólki upp tjónið af ránskap fyrri ára !

Reynslan kennir að margir lofa miklu þegar upp um þá hefur komist og eins var með karlinn sem hnuplaði kjötlærinu forðum frá Hemmert kaupmanni. Hann stakk því undir peysu sína, en það seig svo að hækillinn stóð út úr buxnaklaufinni, sem var náttúrulega opin. Hemmert sá á færi til karls á hlið og greindi bugspjótið og þóttist strax vita hvað gerst hafði og kallaði höstugur: „ Skilaðu því sem þú hefur tekið !"  Og karl svaraði í hjartans auðmýkt : „ Já, sjálfsagt Hemmert minn, fyrst þú sást það !"

Það var skrítið þegar kjósendur fóru að treysta aftur sömu öflunum og ollu hruninu, vegna þess að þeir sögðust ekki treysta lengur valdstjórn þeirra sem ollu ekki hruninu og björguðu kannski því sem bjargað var ! Ekki sýnist mér að rökrétt dómgreind hafi ráðið þar ferð og líklega fór þar öllu meira fyrir æstum tilfinningum. Slík afstaða hefur nú skilað því að narrar eru í ríkisstjórn og gnarrar í borgarstjórn !

Og nú eru sem sagt þessi öfl hinna hrunrænu sérgæsku-sjónarmiða aftur við stjórn á þjóðarskútunni ! Stefnu og seglabúnaði var eins og vitað er strax hagrætt í samræmi við hagsmuni LÍÚ og byrjað að létta sköttum af hátekjufólki. Það var nú kannski ekki það sem hinn almenni kjósandi taldi mestu þörfina á, en sýndi hugarfarseðli nýju valdhafanna og hagsmuni hverra þeir bera mest fyrir brjósti !  

Ríkisstjórnargoðarnir nýju voru reyndar nokkuð spældir yfir því að „norrænu velferðarstjórninni" skyldi ekki hafa tekist að skila í hendur þeirra svo góðu ríkisbúi að þeir gætu farið að spreða hyglingardúsum aftur til „réttra aðila", en þrátt fyrir skort á skildingum var reynt að gera það í nokkrum tilfellum sem fyrr segir. Og fyrst almenningur virtist hafa gert sér grein fyrir vömmunum og skömmunum, fyrst menn virtust hafa séð og skilið hvernig farið hafði verið með þá og áttað sig á misgjörðunum sem framdar voru, þótti rétt að lýsa því yfir við kjósendur að leiðréttingar yrðu gerðar á ranglætinu, „fyrst þið sáuð það" eins og þar stendur !

En það leynir sér hinsvegar ekki að það eru þegar farnar að vakna allmiklar efasemdir hjá almennum kjósendum um ágæti þessarar nýju ríkisstjórnar, einkum með tilliti til þess hvað gengur hægt að standa við þau stefnumið og loforð sem tryggðu henni öllu öðru fremur sigurgengi í síðustu kosningum.

Spurningin er því jafnvel þegar orðin sú, hvort núverandi stjórn verði kvödd í fyllingu tímans sem „fjarræna frjálshyggjustjórnin"?

Ég hef þá skoðun að þær væntingar sem gerðar eru til núverandi ríkisstjórnar muni ekki verða uppfylltar og hún komi ekki til með að safna vinsældum frekar en fyrirrennari hennar. Það er mannleg dyggð - að lofa ekki meiru en maður getur staðið við, en sú dyggð er ekki allra - ef til vill eiga ríkisstjórnargoðarnir eftir að finna það hvað það getur haft miklar og afdrifaríkar afleiðingar þegar menn reyna að leika á almenning og nota einhver skollabrögð til að bregðast því sem lofað hefur verið !

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 120
  • Sl. sólarhring: 174
  • Sl. viku: 1216
  • Frá upphafi: 315121

Annað

  • Innlit í dag: 106
  • Innlit sl. viku: 927
  • Gestir í dag: 104
  • IP-tölur í dag: 103

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband