Leita í fréttum mbl.is

Óíslenskur hugsunarháttur !

Íslenskt ţjóđfélag var ađ flestu leyti sjálfu sér miklum mun samkvćmara fyrir daga frjálshyggjunnar. Ţađ var til nćgjusemi og ráđdeild, ábyrgđarkennd og samfélagsleg hugsun. Ţađ var meira ađ segja til ćrleg einstaklingshyggja og allflestir voru heiđarlegir, ađ minnsta kosti miđađ viđ ţađ sem síđar hefur  orđiđ uppi á teningnum. Ţá var nefnilega síđur en svo taliđ mönnum til gildis ađ svíkja út fé og nota allskonar skálkaskjól í kerfi og eignarhaldsfélögum til ađ auđgast á kostnađ lands og ţjóđar !

Margir virđast hafa ţađ mikiđ í sér ađ líta upp til auđmanna og vera tilbúnir ađ bugta sig og beygja fyrir slíkum, jafnvel ţó vitađ sé ađ auđur ţeirra sé fenginn međ vafasömum viđskiptum svo ekki sé meira sagt. Mörg dćmi eru til um auđsýndan sleikjuhátt einstakra manna viđ gróđafíkla viđskipta og verđbréfa, ekki síst á árunum fyrir hruniđ. Ef slíkir hentu einhverjum upphćđum í fólk í svokölluđum lista og menningargeira, voru viđkomandi lofsungnir í bak og fyrir og beinlínis hafnir til skýjanna af „hinum frjálsu listamönnum" !

Mér er í minni hvađ Björgólfur Guđmundsson virtist lunkinn viđ ađ láta vel ađ ţessu liđi. Hann birtist skyndilega á sviđinu í gulu,teinóttu fötunum sínum, međ tommu á milli teina, reffilegur og jafnvel hálf Rockefellerslegur í framgöngu; talađi slétt og fallega og lét eitthvađ af höndum rakna, svo hiđ sífjársoltna menningar og lista liđ ćtlađi ađ tryllast af hrifningu ! Já, Björgólf skorti ekki áróđurstćknina og fjölmiđlarnir máluđu hann svo upp sem sérstakan menningarfrömuđ og listavin, og enginn hafđi neitt viđ ţađ ađ athuga - međan peningarnir streymdu frá honum ofan í garnagaulandi menningarhítina !

Fjölmiđlafólk átti ţađ iđulega til ađ skríđa fyrir auđmönnum og sjást ţess merkin í mörgu enn. Ţađ virtist oft fyrir hrun eins og ýmsir ţar á bć vćru mjög ákafir um ađ skapa sem besta og jákvćđasta ímynd af ţessum peningagreifum sem ţá voru oftast kallađir útrásarvíkingar, ţó nafn ţađ vćri mjög ósanngjarnt hugtak gagnvart gömlu víkingunum sem voru, ađ mínu mati, ólíkt betri menn, margir hverjir. En ţótt samanburđurinn vćri ţeim í hag voru ţeir samt flestir á sínum tíma langt frá ţví ađ vera góđir !

Ég man eftir kvikmyndinni Magic Town međ James Stewart og Jane Wyman. Hún er nokkuđ góđ ţó gömul sé. Ţađ er athyglisverđur söguţráđur í henni og ef viđ setjum Ísland í stađinn fyrir Magic Town getum viđ alveg heimfćrt ţađ sem gerist í myndinni upp á ađdragandann ađ hruninu og hruniđ sjálft. Ţar er um vinalegan og fallegan smábć ađ rćđa sem umturnast í gróđagrćđgisvíti á örskömmum tíma, mest fyrir uppblásin sérhagsmuna-sjónarmiđ ţeirra sem leiđandi voru í bćnum. Ţađ lá viđ ađ mađur heyrđi bćjarstjórann fullan af hroka, segja brattan og kokhraustan viđ fjölmiđlamennina: „ You ain´t Seen Nothing Yet !"

Vildu innlendir hagspekingar og töframenn tölfrćđinnar í viđskiptageiranum ekki meina fyrir 2008 ađ Ísland vćri toppurinn á tilverunni ? Var ekki kominn Wall-Street andi frá 1929 í spilastokk ţeirra sem leiddu málin síđan fram á ystu nöf ? Ţóttust ekki Reykjavíkurburgeisarnir á ţeim tíma  ţess fullvissir ađ ţeir vćru Masters of the World Finances in Magic Town ?

Hvernig gátu forráđamenn ţjóđarinnar virkilega trúađ ţví ađ íslenskir fjármálamenn - međ ótvírćđa gćsalappatengingu - vćru fremstir allra í heiminum, ađ ţeir vćru gćddir slíkri snilligáfu ađ ţeir gćtu hreint og beint tekiđ forustuna í efnahagsmálum hnattarins ?

„You ain´t Seen Nothing Yet !" Ţvílíkt mikilmennskubrjálćđi og ţvílíkur barnaskapur !

Og allt sem ţessir uppreiknuđu vindhanar viđskiptalífsins gerđu var ađ vađa um tíma í hafsjó af lánsfé og hver svikafléttan af annarri gekk út á ţađ ađ ná í fé međ einhverju móti ! Snilld var aldrei til stađar, heldur hrein og klár óskammfeilni, blygđunarlaus frekjugangur og himinhrópandi kćruleysi gagnvart lífsréttarlegri heill fólks í ţúsundatali, bćđi hér heima og erlendis. Gróđafíknin var orđin slík ađ hún ógnađi öllu samfélaginu og flestum ţeim gildum sem ţarf ađ virđa svo ţađ haldist viđ ! Ţađ var enginn Óli sparigrís til í ţeim leik - ađeins Óli gróđagrís !

Viđ ţurfum ađ komast frá ţessum hugsunarhćtti sem er enn eins og eitrun í ţjóđlífinu. Viđ ţurfum ađ átta okkur á eđlislćgum rótum okkar og leita hugarfarslega til upphafsins til ađ ná áttum á ný. Viđ erum Íslendingar og saga okkar, menning og öll arfleifđ okkar, leggur okkur skyldur á herđar. Viđ eigum ekki ađ vera spilafífl og spellvirkjar ţjóđhagslegra verđmćta !

Viđ eigum ađ hugsa á sanníslenskum nótum, ekki ađ tileinka okkur sem hugarfarslega fćđu ađkomin spillingarefni. Viđ eigum ekki ađ hegđa okkur eins og einhverjir Al-Thani sinnađir gróđafíklar í rúllettuleik glćframennskunnar. Ţađ er sögulega,menningarlega og landsréttarlega óíslensk framkoma !

Ef viđ hegđum okkur ţannig, erum viđ ekki lengur viđ sjálf og ţađ sem viđ eigum ađ standa fyrir. Liđnar kynslóđir gćtu ţá međ engu móti kannast viđ okkur sem gildisbćra niđja sína. Fylgjum ekki röngum hugsunarhćtti, snúum af vegum sem leiđa til falls; byggjum Ísland upp međ ţeim hćtti ađ viđ getum aftur veriđ stolt af ţví ađ vera ÍSLENDINGAR !

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 197
  • Sl. viku: 1432
  • Frá upphafi: 315602

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 1153
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband