Leita í fréttum mbl.is

Í skotgröfum skítmennskunnar !

Umræða á Íslandi vill oft verða nokkuð snúin og stundum leiðist hún svo langt frá vitrænu samhengi að furðu gegnir. Þegar svo fer þarf auðvitað ekki að búast við neinum rökréttum niðurstöðum, því þá eru flestir í önnum við að koma sér fyrir í skotgröfum og hafa engan tíma fyrir skynsamlega yfirvegun mála.

Ég held að allt of margir Íslendingar séu andlegir flokksþrælar. Í stað þess að hugsa um stjórnmálaflokk fyrst og fremst sem tæki til úrbóta á hinum ýmsu vandamálum samfélagsins, er flokkurinn settur á stall og dýrkaður, menn nálgast hin flokkslegu vé á trúarbragðalegum forsendum og verða innvígðir og innmúraðir í flokkinn á eiginhagsmunalegum grundvelli. Mottóið verður - Ég fylgi flokknum ( sama hvað hann gerir ) og þið sjáið um mig og mína hagi !

Sumir myndu telja að þessi forskrift væri helst bókuð upp á sovéska siðfræði í pólitískum veruleika, en svo undarlegt sem það er, á hún hérlendis mun meira við um sjálfstæðisflokkinn en aðra flokka, enda er þar um að ræða svo sálargróið hagsmunabandalag á hinu pólitíska sviði, að kannski er samlíking við sovéska kommúnistaflokkinn enganveginn út í hött !

Það var ótrúleg upplifun að heyra núverandi innanríkisráðherra Hönnu Birnu Kristjánsdóttur segja í útvarpi í sambandi við Landsdómsmálið, að það væri hennar persónulega skoðun að réttarhöldin sem fóru fram í Landsdómi  hefðu ekki átt neinn rétt á sér og að slík réttarhöld yfir stjórnmálamönnum ættu aldrei rétt á sér - ættu aldrei rétt á sér !

Stjórnmálamenn eiga sem sagt að vera ofar lögum, og þeir sem geta gert slík voðamistök í krafti valda sinna, að það stórskaði lönd og þjóðir, eiga aldrei að þurfa að bera ábyrgð á gjörðum sínum. Þar höfum við það ! Við erum sem sagt með starfandi innanríkisráðherra sem hugsar svona varðandi eigin ábyrgð og annarra í pólitískum veruleika !

Geir H. Haarde heldur því fram að Landsdómsmálið hafi fyrst og fremst verið pólitísk aðför að honum og sjálfstæðisflokknum. Hann spyrðir þar málshagsmuni sína fast við flokkinn og er það venja manna í svona tilfellum, því maðurinn einn er ei nema hálfur, með flokknum er hann meiri en hann sjálfur !

Að tala um pólitískar aðfarir, virðist vera úthugsuð lausnarkenning varðandi það að firra stjórnmálamenn ábyrgð. Þá er látið að því liggja að það sé engin hugsun sem tengist kröfu um réttlæti í gangi, heldur aðeins vilji til að ná sér niðri á pólitískum andstæðingi. Þar gildir kannski viðhorfið - Margur heldur mig sig -, þegar menn ætla kannski öðrum það sem væri þeim sjálfum kannski ekki svo fjarlægt ef aðstæður leyfðu !

En það varð hér efnahagshrun, sem leiddi skýrt í ljós að farið hafði verið með fjöregg lands og þjóðar á þann hátt sem vítavert er. Afleiðingarnar urðu meðal annars þær, að tugþúsundir landsmanna hlutu ómældan skaða af og sumir ná sér aldrei eftir það. Öryggiskerfið sem við borguðum svo mikið fyrir og treystum flest, reyndist að miklu leyti verra en gagnslaust þegar á það reyndi.

Það hlýtur að vera hverjum sæmilega skynsömum manni ljóst, að menn bera mikil sár eftir þær manngerðu hörmungar sem áttu sér stað, og því er það undarlegt að svo virðist sem það megi eiginlega hvorki rannsaka eða ákæra varðandi þessi mál. Öll dýrin í skóginum eiga bara að halda áfram að vera vinir þó sum þeirra séu stöðugt að éta önnur. Sú rannsóknarvinna sem hefur verið sett í gang, virðist fyrst og fremst vera til málamynda, sýnist einna helst vera til þess ætluð að láta almenning standa í þeirri trú að það sé verið að gera eitthvað !

Nú má spyrja þeirrar spurningar, hverjir settu lög um landsdóm, og í framhaldi þeirra spurninga, til hvers var það gert og hvenær á að nota landsdóm ?

Svar Hönnu Birnu Kristjánsdóttur varðandi það virðist liggja ljóst fyrir. Það á aldrei að nota Landsdóm og margir stjórnmálamenn eru henni trúlega sammála. Það líkar fæstum að vita einhvern refsivönd yfir sér ef illa fer. Landsdómur var bara sýndargagn og átti bara sem slíkur að vera hluti af ónýtu öryggiskerfi !

En íslensk pólitík, sem virðist fyrst og fremst ganga fyrir sig sem umræðuhernaður úr skotgröfum skítmennskunnar, þarf sannarlega á því að halda að hafa lagalegt, siðferðilegt og þjóðlegt aðhald og það þarf að auka frekar en hitt.

Því hvað á að gera ef valdsmenn hafa brotið illa af sér varðandi þjóðarheill ? Átti t.d. ekki að sækja Nixon til saka fyrir Watergate, var þar kannski bara á ferðinni pólitísk aðför að valinkunnum sæmdarmanni ? Ekki er ósennilegt að margir republikanar hafi litið svo á, en bandaríska þjóðin var ekki sama sinnis, hún hafði aðra skoðun á málinu og Nixon átti engan annan kost í stöðunni en að víkja !

Íslenska réttarkerfið er ákaflega vanþroskað fyrirbæri að mínu mati, og ég tel einnig að lögfræðingar landsins leggi lítið til mála varðandi þroskaferli þess. Ég tel réttlætisgæslu fyrir hönd almennings ekki í góðum höndum innan kerfisins og hefur margt gerst í málum á síðustu árum sem hefur styrkt þá skoðun mína.

Á sínum tíma kom í ljós að réttarkerfi landsins klúðraði öllu sem hægt var að klúðra í sambandi við Guðmundar og Geirfinnsmálin og brotöldur mistaka þeirra sem þá voru gerð af opinberri hálfu, eru enn að skella á þjóðinni. Lærdómurinn af því fargani virðist ekki hafa skilað sér svo neinu nemur !

Ég er  sannfærður um að íslenska réttarkerfið sé ófært og vanhæft til að fjalla um efnahagshrunið og brotamál í tengslum við það, og ég treysti engum íslenskum lögfræðingum til að fara með þau mál svo réttlætinu sé sómi að.

Mér verður það lengi minnistætt, að einn sem sagður er mjög virtur í þeim hópi, sagði um þá sem fyrir sökum voru hafðir í Guðmundar og Geirfinnsmálum,  „ að þetta væru nú engir kórdrengir !"

Það var enginn að tala um slíkt ! Viðkomandi sakborningar áttu bara að dæmast út frá því hvort þeir reyndust sekir um þau afbrot sem á þá voru borin, en líf þeirra og ferill þar áður hafði ekkert með málið að gera eða gat sagt til um slíka sekt. Það var eins og lögfræðingurinn virti væri að segja: „Ja, þó þeir hafi kannski ekki gert þetta, hafa þeir nú verið bölvaðir þrjótar, og verðskulda því það sem yfir þá hefur dunið !"

En svona eiga menn auðvitað ekki að tala og þaðan af síður menn sem eiga að hafa lært lög !

Ég tel að stjórnmálamenn landsins eigi ekki að vera hafnir yfir lög. Ég veit ekki til þess að neinn af þeim ætti að vera tekinn í guðatölu, þó einn þeirra hafi nánast komist í þá stöðu fyrir nokkrum árum. Mér hefur sýnst stjórnmálamenn okkar alveg jafn færir um það að vera breyskir menn og við hin sem lifum í þessu landi og sumir þeirra jafnvel flestum færari varðandi það.

Mér hugnast því enganveginn að þeir séu gerðir enn ábyrgðarlausari en þeir hafa verið og eru, með því að ekkert sé sett þeim sem víti til varnaðar. Landsdómur getur verið ágæt áminning til þeirra varðandi það að vandi fylgi vegsemd hverri og menn þurfi að vera vakandi í verkum sínum fyrir heill lands og þjóðar.

Ég tel nefnilega kýrljóst, að margur sem var á háum launum fyrir hrun, vegna þess að hann átti að vera vakandi, hafi í raun verið sofandi og látið allt fljóta að feigðarósi. Við höfum ekki efni á að eiga réttindagæslumenn sem sofa á öryggisvaktinni og við höfum þaðan af síður efni á því að eiga ábyrgðarlausa stjórnmálamenn - þó við höfum - að flestra mati - átt þá býsna marga !

Og að síðustu vil ég bæta þessu við. Guð blessar ekki ranglæti, ábyrgðarleysi, lygar og ótrúmennsku, Guð blessar ekki Mammonsdýrkun og gullkálfsdansa !

Á haustmánuðum 2008 gat því ekki verið nein Guðsblessun yfir Íslandi, en það geta þeir menn auðvitað ekki skilið sem eru innmúraðir og innvígðir í einhverjar pestarhjarðir samfélagsins, og nota nafn Guðs bara þegar þeim finnst það heppilegt - fyrir sjálfa sig og augnablikið !

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 200
  • Sl. viku: 1030
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 903
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband