Leita í fréttum mbl.is

Brotið á innflytjanda - brotið á útlendingi - brotið á Íslendingi ?

 Við þekkjum vafalaust flest til einhverra dæma um það hvað sumir aðilar eru fljótir til að verja innflytjendur eða fólk utan úr heimi sem er hér á ferð, ef eitthvað kemur upp á í samskiptum þeirra við yfirvöld hérlendis eða aðra aðila !

En það er brotið á fleirum en slíkum í þessu landi og sú rangsleitni hefur miklu lengur verið viðvarandi meinsemd hér og valdið mörgum samfélagslegum brotlendingum sem seint verða bættar og þá á ég við það þegar brotaþolarnir eru alíslenskir þjóðfélagsþegnar !

Því svo undarlega bregður við, að hið sjálfskipaða varnarlið, sem hrekkur jafnan í gang þegar innflytjendur eða útlendingar á ferð eiga í hlut, hefur að því er virðist enga sérstaka hneigð til að bregða skildi fyrir samlanda sína sem lenda í hliðstæðum vanda. Það virðist sem það þyki ekkert spennandi að taka upp hanskann fyrir þjóðsystkini sem eiga í glímu við kerfið ! Og stundum þegar fólk sem er borið og barnfætt hérlendis, verður alvarlega veikt og getur ekki sinnt vinnu, er jafnvel sagt að vandinn stafi bara af aumingjaskap !

Ég þekki dæmi af einum stað í landinu þar sem maður einn á besta aldri þurfti að glíma við krabbamein. Hann gat ekki stundað vinnu þegar fram í sótti og fann það sér þá helst til fróunar að aka um götur og horfa á mannlífið. Góðhjartaðir samborgarar hófu svo einhverja fjársöfnun honum og fjölskyldu hans til hjálpar. Þá heyrðist mörg undarleg viðbáran hjá þeim sem höfðu að öllum líkindum mjög takmarkaðan áhuga fyrir því að leggja sitt framlag til þeirrar hjálparviðleitni !

„ Hann er nú varla illa staddur, fyrst hann getur verið á fartinni alla daga", heyrðist til dæmis hjá einum. Mér var sagt að kona ein sem stóð ásamt fleirum að þessari söfnun, hefði orðið ókvæða við er hún heyrði þetta og sagt : „Ef þær krónur sem ég set í þetta, geta hjálpað honum til að aka eitthvað um og dreifa huganum frá sjúkdómsþraut og kvöl, tel ég þeim vel varið !"

Svo kom að því að maðurinn dó og sannaði þar með að hann hafði í raun og veru verið lífshættulega veikur. En það er oft langt í iðrun hjá sumum og það mátti líka heyra sömu undarlegu viðhorfin hér og þar eftir að maðurinn var dáinn, svo kannski eru þeir einhverjir til sem halda enn í dag að viðkomandi maður hafi bara dáið af aumingjaskap ! En þessi maður dó ekki af neinum aumingjaskap, hann barðist fyrir lífi sínu til hinsta dags og sýndi þar aðdáunarverða þrautseigju og kjark. Mér var sú barátta kunn og hún er mér enn í fersku minni þó nokkuð langt sé um liðið.

Og það er að mínu áliti engu samfélagi til sæmdar að menn þurfi að deyja, þurfi að greiða slíkt gjald til þess eins að fá að njóta sannmælis ! En það virðist stundum erfiðara fyrir Íslendinga að njóta sannmælis í sínu eigin landi og innflytjendur og umfarandi útlendingar virðast miklu frekar fá sitt stuðningslið hér þegar eitthvað bjátar á !

Ég spyr - er það eðlilegt ? Er einhver jón í götunni okkar - sem þarf á samhjálp að halda vegna veikinda eða annarra erfiðleika -  okkur virkilega fjarlægari í slíkum tilfellum, en innflytjandi eða útlendingur á ferðastjái ?

Getum við ekki brugðist við til hjálpar nema við sjáum einhverja leið til þess samtímis að lyfta sjálfinu og auglýsa víðsýni okkar og fordómaleysi ?

Er náungakærleikurinn ef til vill alltaf eða oftastnær bundinn einhverjum skilyrðum af okkar hálfu og byggist hann kannski frekar á ytri auglýsingaatriðum en raunverulegum innri kenndum samúðar og líknarvilja ?

Er kannski litið á það sem stórmál í þessu landi ef brotið er í einhverju á innflytjanda, meðalmál ef brotið er á útlendingi og smámál ef brotið er á Íslendingi - stundum gæti maður hreinlega haldið það ?

Og í framhaldi af því mætti spyrja, er einhver sannur samhjálparkærleikur til staðar á stöðum þar sem það virðist - sýnilega - talið afar mismunandi "spennandi" að aðstoða þurfandi fólk ?

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 82
  • Sl. sólarhring: 271
  • Sl. viku: 1103
  • Frá upphafi: 309797

Annað

  • Innlit í dag: 71
  • Innlit sl. viku: 937
  • Gestir í dag: 71
  • IP-tölur í dag: 71

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband