Leita í fréttum mbl.is

Skipstjórar lognsins !

Sumar ţjóđir búa viđ ţađ böl ađ eiga ráđamenn sem kunna bara ađ sigla í logni. Ţegar gefur á bátinn fórna ţeir höndum og kasta frá sér stýrinu og leggjast jafnvel flatir undir ţóftu og loka augunum. Ţegar efnahag ţjóđarinnar var rústađ hér 2008, gat mađur vel gert sér í hugarlund ađ viđbrögđ margra í valdastöđum hafi veriđ  međ ţeim hćtti. En ţađ er vont ađ hafa skipstjóra,  sem kann bara ađ sigla í logni - á ţjóđarskútu ! Ţađ hlýtur alltaf ađ gefa á bátinn annađ slagiđ og ţá ţarf ađ kunna lagiđ á ţví, en lognskipstjóri verđur seint til blessunar fyrir áhöfn sína !

Viđ Íslendingar ţekkjum vel til lognskipstjóra, viđ höfum haft ţá nokkuđ marga. Ţeir vita ekki sitt rjúkandi ráđ ţegar hvessir og öldur rísa. Ţá vilja ţeir jafnvel hluta menn fyrir borđ eđa fórna ţessu og hinu af eignum áhafnarmeđlima til ađ létta skútuna. Ef mönnum er varpađ fyrir borđ til ađ blíđka Mammon eđa önnur ţau gođ sem lognskipstjórar dýrka yfirleitt, er ţađ kallađ ţjóđarsátt eđa friđţćging. Ef létta ţarf skipiđ fćr til dćmis símakerfi áhafnarinnar ađ fjúka og pósturinn međ !

En vandinn viđ slíkar ađstćđur er ekki áhafnarinnar í sjálfu sér, ţađ er stjórnin á skútunni sem er ekki í lagi. Ţađ er ekki lengur logn og skipstjórinn veit ekki hvernig hann á ađ stýra ţeim farkosti sem hann tók ađ sér ađ stýra. Hann vill helst leggjast niđur, skríđa undir ţóftu og geirnegla sig ţar á grúfu. Kannski hefur hann líka í eigin hroka og ofmetnađi taliđ sig geta stýrt út af litla lognblettinum sínum inn í viđsjálar rćningjarastir og stuldarstrauma ţar sem eru hreint ekki góđar siglingaađstćđur fyrir lítilsmegandi lognskipstjóra, og kannski vildi hann einmitt sigla á slík miđ einhverra hluta vegna !

Sigling ţjóđarskútunnar okkar hefur, sem fyrr segir, aldrei tekiđ mikiđ miđ af siglingafrćđi sem gengiđ hefur út á öryggi áhafnarinnar. Skútunni virđist alltaf vera stýrt um einhverjar vafasamar sérleiđir og hún er undantekningarlaust undir lognmollustjórn. Ţađ fer ţví líklega óskaplega í taugar vakthafandi lognskipstjóra ţegar einhverjar öldur rísa. Hann telur trúlega ađ hann og hans sérleiđ eigi ađ vera verđtryggđ fyrir öllu slíku. En stundum gerist ţađ ađ áhöfnin er ekki alveg sátt, ţó oftastnćr láti hún allt yfir sig ganga. Og ţá verđur lognskipstjóranum ráđafátt og hann skelfur eins og lauf í vindi og getur ekki tekiđ neina vitrćna ákvörđun, eins og eitt sinn var sagt um einn slíkan á örlagastund !

Hversvegna eignumst viđ Íslendingar aldrei neitt sem rís yfir međalmennskuna í lands-stjórninni, hvernig stendur á ţví ađ manndómsgildi manna ţar virđist reynast ţví minna sem menntun ţeirra er meiri ? Er ţetta sérvandamál hjá okkur eđa er ţetta víđar til vansa ? Er ţjóđ upp á 300 ţúsund manns of lítil til ađ koma sér upp ţjóđskörungi, manni sem er treyst - út fyrir flokkinn, manni sem getur siglt ţjóđarskútunni í vindi og ágjöf, manni sem er eitthvađ annađ og meira en linkulegar lognskipstjóri, grútartuskulegur kerfiskarl og í stuttu máli sagt -skítómögulegur skolli ?

Ţurfum viđ Íslendingar til eilífđarnóns ađ tala um Jón Sigurđsson sem sóma Íslands, sverđ og skjöld, vegna ţess ađ enginn annar hefur haft eđa er líklegur til ađ hafa burđi til ađ gegna sambćrilegu hlutverki í Íslandssögunni, hvorki nú eđa eftirleiđis ?

Verđur ţjóđ okkar ađ búa viđ ţau örlög ađ eiga bara í nútíđ sem framtíđ - forustuvćflur, - lognskipstjóra skammtímasjónarmiđa og sérgćskuháttar - ađ viđbćttum óţjóđlegum flokkum og fjármálakerfi sem er svo spillt ađ ţađ tekur engu tali ? Eru til menn, sem eiga ađ heita Íslendingar, sem hafa ţađ eitt ađ lífstakmarki ađ sanka stöđugt ađ sér illa fengnum fjármunum, og er nákvćmlega sama ţó ţađ leiđi til ţess ađ óhamingja Íslands taki aldrei enda ?

Ţví miđur virđist svariđ viđ ţeirri spurningu vera á máli sannleikans blákalt já, og ţađ er stađreynd sem gengur ţvert á allt sem íslensk ţjóđ hefur taliđ sig vera ađ berjast fyrir hingađ til. Ţađ hefur lengi veriđ sáđ međ miklum dugnađi og elju fyrir almannahag og ţjóđarheill í ţessu landi, en uppskeran hefur svo til öll veriđ hirt af sérhagsmunahirđinni sem er bölvun ţessa lands !

Mál er ađ félagshyggjan fari upp á ţjóđarhimin nútíđar og framtíđar og frjálshyggjan niđur í ţađ víti sem ól hana !

 

 

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 16
  • Sl. sólarhring: 127
  • Sl. viku: 1445
  • Frá upphafi: 315615

Annađ

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 1165
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband