Leita í fréttum mbl.is

Allt í höndum Frosta ?

Það er enn vetur á Fróni í mars og jafndægragusan sem kom um daginn minnti okkur kannski óþægilega á þá staðreynd. Enn er landið að talsverðu leyti í klóm Frosta og reyndar virðist þjóðin það líka, ef marka má efnahagsmálastefnu eða  efnahagsmála-stefnuleysi núverandi ríkisstjórnar.

Maður að nafni Frosti virðist nú um stundir vera aðal efnahagsmála-sérfræðingur Sigmundar Davíðs og ekki vantaði fyrir síðustu kosningar að hann talaði glaðbeittur um lausnir á þessu og hinu vandamálinu. En það er oftast annað að þurfa að vinna verkin en tala um að vinna þau. Þó virðist maður þessi bera nafn með réttu, því eftir kosningar lítur út fyrir að öll loforð, nema þau sem gefin voru LÍÚ, hafi verið sett á ís - eða fryst - og umræddur Frosti virðist hafa verið skipaður forstjóri frystihúss stjórnarinnar í þeim efnum !

En þrátt fyrir það embætti, virðist Frosti þessi virka nokkuð einlægur í tali og koma fyrir sem hinn viðkunnanlegasti maður, enda er hann svo nýsestur að á hinum pólitísku Glæsivöllum að hann getur þessvegna þótt mannlegur í besta máta. En „náköld er Hemra Niflheimi frá" stendur á vísum stað og að því kemur yfirleitt hjá flestum sem stunda „hið pólitíska pókerspil" til langframa, að þeir verða kalnir á hjarta og fólkinu fjarri í hugsun og gjörðum !

Og því verður manni á að spyrja, hvað skyldi verða um Frosta þegar fram í sækir, leggur hann fram þaulhugsaðar efnahagslausnir sem verða þjóð og landi til gagns og gæða á næstunni eða verður hann bara enn ein fallin stjarna í örlagasymfóníu pólitískra sviptibylja ?

Og spyrja má enn frekar, hvað skyldi verða um Sigmund Davíð Gunnlaugsson Framsóknargoða í komandi tíð, verður hann stjórnmálaleiðtogi sem kemur til með að byggja feril sinn á einhverri fastari undirstöðu en loftkenndu lýðskrumi eða brennur hann brátt upp, eins og loftsteinn á þotuhraða, í gufuhvolfi reynslunnar ?

Allt mun þetta að sjálfsögðu koma í ljós senn hvað líður, því framrás tímans verður aldrei stöðvuð eða sett á ís eða læst í kuldaklóm Frosta til lengdar. Þar mun allt hafa sinn framgang að lokum og uppskera fara eftir sáningu.

Eftir hrunið litu margir svo á að dagar Framsóknarflokksins væru nánast taldir. Þessi gamli Samvinnuhreyfingar og félagshyggjuflokkur hafði gerst slík hækja fyrir íhaldið og frjálshyggjuna, að öll hin fyrirlitlega þjónkun Alþýjaflokksins fyrr á árum við sama aðila, virtist orðin lítil við samanburðinn !

Auðvaldið í Framsókn margefldist skiljanlega að áhrifum í flokknum þegar Halldór Ásgrímsson settist að völdum þar, sem engan þarf að undra. Fylgispekt Framsóknar við stórkapítalisma-stefnu Davíðs & Co var það sem tryggði meirihluta á þingi við öll óþurftarverkin sem unnin voru gegn þjóðarhag fyrir hrun. Það er nokkuð sem menn mega ekki gleyma !

En Sigmundur Davíð kom sá og sigraði í kosningunum í fyrra ! Hann keyrði flokk, sem var eiginlega deyjandi af innanskömm, upp í þessum kosningum með loforðasúpu sem hann og félagar hans burðast enn með sem ófrágengið mál - eins og lík í lestinni ! Þessi arftaki Halldórs Ásgrímssonar verður því kannski aldrei annað en arftaki Halldórs Ásgrímssonar - og þar er, að mínu mati, sannarlega ekki á góðum arfi haldið !

Menn geta komið, séð og sigrað - en hafi þeir rangt við, svíki þeir og pretti, munu afleiðingarnar hitta þá fyrir. Skuldaleiðréttingarferlið virðist ætla að vera afskaplega erfitt fæðingarmál fyrir núverandi valdhafa, sem sögðu þó fyrir kosningar, að málið væri í rauninni einfalt, en það dregst og dregst að gera því skil. Það virðist því vaxandi hætta á því að það snúist að lokum upp í algjöra efnisleysu. En að reyna að leika á almenning er nokkuð sem margir hafa farið flatt á, og að mínu mati, talsvert meiri bógar en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson !

Ég vona, þjóðarinnar vegna, að það komi eitthvað gildisbært og marktækt út úr þeim efnahagsumbótum og skuldaleiðréttingum sem loforð núverandi stjórnvalda hafa hljóðað upp á, þó ég hafi reyndar aldrei haft mikla trú á því persónulega að gott geti komið úr þeirri áttinni !

En það er nokkuð ljóst að verði ekki staðið við gefin loforð með marktækum hætti, er hætt við að margt verði lengi enn, og þá með tilheyrandi deilum og ófriði, - í nepjuklóm neyðar, í þessu landi og þjóðlífinu öllu, eða eigum við að segja -  í kuldabláum höndum Frosta !

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 144
  • Sl. sólarhring: 418
  • Sl. viku: 1553
  • Frá upphafi: 315534

Annað

  • Innlit í dag: 140
  • Innlit sl. viku: 1266
  • Gestir í dag: 139
  • IP-tölur í dag: 138

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband