Leita í fréttum mbl.is

,,Silfurskeiđungar samfélagsins´´ !

Ţađ er stundum býsna fróđlegt ađ lesa eđa heyra ţađ sem auđmenn og taglhnýtingar ţeirra segja um samfélagsmál á Íslandi. Ţađ segir manni ýmislegt ţegar mađur les efni eftir fólk eđa heyrir í fólki, sem aldrei hefur ţurft ađ dýfa hendi í kalt vatn, en telur sig ţess samt alltaf umkomiđ ađ tala inn í ađstćđur sem ţađ ţekkir ekkert til. Og ţađ sem verra er, sem ţađ kćrir sig ekkert um ađ ţekkja til !

Ţađ fólk sem nú mćtti kalla hérlendis háborgaralegt slekti, er yfirleitt í ţessum gír. Ţar er um ađ rćđa einstaklinga sem eru af efnafólki komnir, búa ađ ćttarauđi og forréttindastöđu frá fyrri tíđ og ganga ţar inn í gefnar ađstćđur, ţekkja ekkert til ţess hvađ ţađ er ađ ţurfa ađ hafa fyrir lífinu eđa heyja lífsbaráttu og líta í mörgu niđur á ţađ fólk sem ţarf ađ standa í slíku og hafa fyrir hlutunum.

Fólk af ţessu tagi virđist ekki hafa neina ađra sýn á ţjóđfélagiđ en ţá ađ ţađ eigi ađ reka ţađ međ hagsmuni ríkustu 10 prósentanna ađ leiđarljósi. Og ţannig hefur íslenskt samfélag veriđ rekiđ ađ miklu leyti, vegna valda og áhrifa hinna „íslensku ađalverktaka allsnćgtanna"  fyrir sérhagsmuni topps tíu, og vćri rekiđ ţađ ađ öllu leyti - ef svonefndir félagshyggju-flokkar eđa stjórnmálaöfl til vinstri - hefđu ekki ţvćlst nokkuđ fyrir í ţeim efnum og stundum náđ marktćkum árangri - í almennings ţágu !

En nú er orđiđ býsna erfitt fyrir fólk ađ vita hvađ er vinstri og hvađ hćgri, ţađ er eins og allir fulltrúar í íslenskri pólitík séu orđnir sama „skítapakkiđ," eins og ein virđingarverđ kona á miđjum aldri orđađi ţađ nýlega viđ mig, talandi um íslensk stjórnvöld, og sú var nú reiđ !

Danski rithöfundurinn Martin Andersen-Nexö segir frá ţví ađ hann hafi eitt sinn, í upphafi ferils síns, lesiđ sögu sem hann skrifađi, fyrir háborgaralega en mjög góđhjartađa vinkonu sína. Hún ţagđi langa stund á eftir, en sagđist svo ekki vilja taka afstöđu til sögunnar sjálf, kvađst ekki alveg höndla hana, „ţetta er of erfitt fyrir mig", sagđi hún, en vildi fá ađ senda söguna til systur sinnar til umsagnar. Síđan kom sú umsögn og hún var á ţessa leiđ: „ Ég hef veriđ andvaka á nćturnar út af ţessari sögu, ţađ ćtti ađ banna mönnum ađ skrifa svona um fátćklingana!"

Og systirin góđhjartađa sagđi viđ Nexö: „ Ég skal segja ţér Martin, ţú verđur aldrei skáld ef ţú heldur svona áfram, ţú verđur ađ skrifa eitthvađ klassískt !"

En Nexö mat ţessi viđbrögđ á sinn hátt og var ánćgđur međ ţau. Hann hafđi nefnilega náđ tilgangi sínum. Honum fannst ekkert ađ ţví ađ geta skrifađ ţannig ađ góđborgurum fatađist bćđi svefn og matarlyst. Og ţađ gerđi hann sannarlega eftirleiđis, í Pella sigurvegara, Dittu mannsbarni og öđrum verkum sínum. Ţađ er ekki af engu sem hann var talinn taka viđ af Maxim Gorky sem helsta skáld verkalýđsstéttarinnar !

Hin meinta velferđ hérlendis sem náđst hefur út fyrir ţá sem ekki tilheyra toppi 10, hefur ađeins náđst fyrir mikla og fórnfúsa baráttu verkafólks, í gegnum ţá samstöđu sem tókst ađ skapa međal vinnandi fólks á öldinni sem leiđ. Ţar voru ţeir menn yfirleitt í forustu sem mest hafa veriđ níddir í ţessu landi fyrr og síđar. En ţeir stóđu vaktina samt međ fullum sóma međan ţeir gátu.

Ţó verkalýđshreyfingum sé í tröllahöndum sem stendur, ţarf baráttan fyrir almennum mannréttindum ađ halda áfram, ţví ţar verđur enginn ávinningur öruggur til lengdar ef ekki er stađiđ stöđugt á verđi yfir honum. Ţar ţarf mađur ađ taka viđ af manni og halda kyndlinum uppi. Afćtuliđiđ er nefnilega alltaf til stađar og tilbúiđ ađ éta frá ţeim sem afla hlutanna hvar og hvenćr sem er. Ţađ er eđli ţess og art og hefur alla tíđ veriđ, eins og Abraham Lincoln undirstrikađi í kapprćđunum viđ Stephen Douglas forđum, en fyrir ţćr varđ hann kunnur sem málsvari almennra mannréttinda um öll Bandaríkin.

Ég hef alltaf veriđ andvígur ţví ađ einhver klíka í mannlegu samfélagi eigi ađ njóta forréttinda. Ég hef alltaf veriđ á móti allri mismunun og ţví ađ auđgildi eigi ađ ráđa ofar manngildi. Ég er á móti ţví ađ sjálfskipađ afćtuliđ sitji viđ kjötkatla samfélagsins og blóđmjólki ţar allt fyrir sig og sína. Ég er á móti öllu Mammonsvaldi !

Ég vil kalla ţetta liđ sem ég er ađ tala hér um, ţetta afćtuliđ ţjóđfélagsins, - silfurskeiđunga ! Ţeir eru ađ mínu mati siđferđilega vanhugsandi á svipađan hátt og María Antoinette var á sínum tíma. Ţeir skilja ekki lífsađstćđur venjulegs fólks  og eigin forréttindi eru helgur réttur í ţeirra augum, ţó ţau hafi nánast alltaf áunnist međ ranglćti og svikum, kúgun og yfirgangi  gagnvart öđrum !

Ég heyrđi í gleiđmynntum Guđlaugi Ţór á Bylgjunni um daginn. Hann var eitthvađ ađ skíta í verk Steingríms J. og fyrri stjórnar, venju samkvćmt. Ţá fór útvarpsmađurinn, aldrei ţessu vant, ađ tala um framferđi manna fyrir hrun, grćđgi  í bankakerfi og víđar, og ástćđurnar fyrir ţví hvernig fór !

Ţá fór Guđlaugur Ţór allt í einu í ţann gírinn ađ fara ađ tala afsakandi um mannlegt eđli og breyskleika manna. Hann vissi sem var ađ ţegar umrćđan var komin í ţetta far, ţurfti hann ađ verja sitt liđ og ţá fannst honum sjáanlega nćrtćkast ađ gera ţađ međ ţessu móti.

En Steingrímur J. átti sér greinilega enga vörn eđa afsökun í mannlegum breyskleika, enda leit Guđlaugur Ţór augljóslega ţannig á, ađ mćla ţyrfti hans gerđir međ allt öđrum og harđari hćtti. Er ţar ekki á ferđinni rétt einu sinni dćmigerđ saga um flísina og bjálkann?

 „Ja, mikill er andskotinn"  sagđi mađurinn forđum,  ,,ţađ ţjóna svo margir undir hann !"

Ég vil ljúka ţessum pistli međ einfaldri vísnaţrennu sem Enginn Allrason orti nýlega um hiđ óíslenska forréttindaliđ :

Stöđug rćkt viđ lygar lögđ

leitar gegn ţví sanna.

Sagan kynnir svikabrögđ

Silfurskeiđunganna !

 

Ţeir sem böđlar brćđralags

bót og rétti granda.

Sýna í ferli sérhvers dags

sjálfselskunnar anda !

 

Arđránsklíkan grćđgisgjörn

gćđum vön ađ spilla,

leikiđ hefur landsins börn

löngum hart og illa !

................................

                                           

 

 

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 380
  • Sl. viku: 1255
  • Frá upphafi: 316645

Annađ

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 983
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband