Leita í fréttum mbl.is

Forđumst gömul feigđarspor !

Ég hef nokkuđ mikiđ hugleitt stöđu okkar Íslendinga gagnvart ţeirri hćttu ađ ánetjast á ný erlendu valdi.  Margir eru sýnilega mjög sofandi í ţeim málum og sumir virđast velta ţví helst fyrir sér hvađ sé hćgt ađ fá fyrir sjálfstćđiđ !

Áar okkar flúđu konungsvald og yfirdrottnun og sóttu hingađ til Íslands til fyrirheita frelsis, til ţeirrar fósturjarđar sem er „álfu vorrar yngsta land" eins og segir í kunnu kvćđi. Ţeir vildu fá ađ vera í friđi fyrir ágangi ţess yfirvalds sem alltaf vill vera ađ ráđskast međ annarra líf og frelsi !

Og hér var stofnađ ţjóđveldi sem stóđ til 1262. Framan af stóđu menn fastan vörđ um sjálfstćđi lands og ţjóđar, en upphafleg, fastmótuđ dreifing valdsins var um 1200 orđin svipur hjá sjón. Öll gođorđ voru svo ađ segja komin í hendur fimm höfđingjaćtta sem allar vildu meira. Ţá styttist líka í ađ ásćlni hins norska konungsvalds  nćđi ţeim tökum hér innanlands og fengi ţann svikastuđning međal höfđingja landsins sem dugđi til ađ koma ţjóđveldinu fyrir kattarnef og landi og ţjóđ undir Noregskonung. Ţađ var vćgast sagt illur og glćpsamlegur gjörningur og skapađi örlagaríkar forsendur fyrir margra alda kúgun og arđrán.

Aldrei verđur međ nokkru móti hćgt ađ mćla alla ţá ógćfu sem hlaust af óţjóđlegri valdabaráttu höfđingja Sturlungaaldarinnar ? Hvađ voru ţessir menn eiginlega ađ hugsa, gat ekkert haft áhrif á ţá nema áfergjan í auđ og völd ? Var ţađ hömlulaus grćđgin sem fór međ ţá eins og suma ađra ?

Ţađ er nefnilega auđvelt ađ sjá hverjir standa og hafa stađiđ helst í sporum ţessara ţjóđvillinga á okkar dögum og ekki hafa ţeir batnađ frá fyrri tíđ ?

Margir grćđgis grislingar

grandvarleika sneyddir,

kjósa ađ verđa kvislingar,

í konungshallir leiddir !

 

Helst mun slíkra hugarfar

heildar valda tjóni.

Andi gamla Gissurar

greinist enn á Fróni !

                        (RK)

Ţađ er nú svo međ okkar sögu eins og sögu annarra ţjóđa, ađ hún segir okkur glöggt, ađ ţađ hefur aldrei vantađ menn hérlendis sem hafa veriđ tilbúnir ađ ţjóna undir erlent vald og verđa hirđmenn í hásölum ytra. Ţađ er undarleg innrétting í ţeim mönnum sem virđast sjá slíkt helst sem eftirsóknarvert hlutskipti !

En ţađ virđast ţví miđur alltaf vera einhverjir til stađar, tilbúnir í kommissara-hlutverkin og viđskiptahagsmunir og vegtyllur leiđa menn iđulega frá heilbrigđum, ţjóđlegum markmiđum á allt ađrar götur. En ţađ vantar sjaldnast ađ menn sem eru ađ selja ţjóđ sína í gin úlfsins, telji sig um leiđ vera ađ vinna henni gagn og gćđi. Ţeir telja sig vera föđurlandsvini öllum öđrum fremur. Ţannig taka ranghugmyndirnar yfirráđin og međ ţeim hćtti er samviskan svćfđ !

Vidkun Quisling taldi sig hreint ekki ţjóđsvikara, jafnvel ekki á síđustu stundum lífs síns. Hann var ţvert á móti, ađ eigin skilningi, mesti ćttjarđarvinurinn, hann var sá sem stóđ á réttum grundvelli og sagđi af mestri einlćgni „ Alt for Norge "! Ţađ var hans inngróna sannfćring. Og síđustu orđ hans voru: „ Ég er saklaus"! 

Quisling var tekinn af lífi fyrir landráđ og nafn hans er nú samheiti um veröld alla fyrir ţjóđsvikara. Ţeir heita ekki Mosleyar, Lavalar, Henleinar, Antonescar eđa Tisóar, ţeir heita ekki eftir nafni einhvers annars leiđtoga annarra ţjóđsvikara, ţeir eru nefndir eftir Quisling ! Og af hverju skyldi ţađ vera ?

Ţađ ber líklega margt til ţess. Eitt er ađ Quisling var talsvert kunnur fyrir stríđ og  hafđi veriđ starfsmađur Fridtjov Nansens í flóttamannahjálpinni fyrir Alţjóđa Rauđa krossinn, međal annars starfađ viđ hjálparstarf gegn hungri í Sovétríkjunum upp úr 1920. Ţar hafđi hann ađ margra mati stađiđ sig vel. Hann var ráđherra í ríkisstjórn Noregs um 1930 og var ţađ sem kallađist málsmetandi mađur, áhrifamađur í norskum stjórnmálum á ţeim tíma.

En einhver brestur hlýtur ađ hafa veriđ í eđlisgerđ hans og fest í honum ţćr ranghugmyndir sem urđu honum ađ lokum ađ falli og ţjóđ hans til mikillar ógćfu. Sumum ţótti undarlegt ađ mađur af hans tagi skyldi ganga nazistum á hönd, en kannski var hann bara aldrei sá mađur sem ţeir hinir sömu héldu hann vera. Mađur sem styđur ţađ sem nazistar stóđu fyrir og standa, getur ekki talist heilbrigđur til anda og sálar !

Vidkun Quisling - Víđkunnur Kvislingur, já, svo sannarlega var höfuđsvikari Noregs víđkunnur kvislingur og kvislingar munu ţeir hvarvetna verđa kallađir sem kjósa ađ feta í hans spor, hvort sem slíkt er gert hérlendis eđa erlendis !

Ađ gera slíkt ćtti engum ađ ţykja eftirsóknarvert hlutskipti !

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 188
  • Sl. viku: 1032
  • Frá upphafi: 309924

Annađ

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 905
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband