Leita í fréttum mbl.is

Vesturlanda galeiðan !

Það virðist í mörgu vera viðtekin regla á Vesturlöndum, að líta beri svo á að betri lífskjör og svokölluð velferð á seinni tímum, sé fyrst og fremst því að þakka hvað mikinn dugnað, ráðdeild og skynsemi Evrópumenn hefðu haft umfram aðra. En þar er hinsvegar að miklu leyti um að ræða einskonar afleidda hugarfarstengingu við eina af fegrunarútgáfunum af heimsveldishugsun Breta og Frakka og annarra sem töldust til minni postula gömlu nýlendustefnunnar.

Sannleikurinn varðandi þetta er nefnilega allur annar og verri. Evrópumenn völtuðu yfir aðrar þjóðir með hernaði og allra handa arðráni, rændu þær og undirokuðu með þvílíkum yfirgangi að jafnvel yfirlýstir villimenn í Afríku og víðar undruðust „ógeðslega villimennsku hinna siðmenntuðu árásarmanna !"

Það vekur furðu manns að sjá hvernig hinar hvítu yfirburðaþjóðir hegðuðu sér gagnvart öðrum þjóðum þegar útþenslustefna þeirra var í algleymingi. Framkoman við Kínverja og Japani var ekkert nema ofbeldisstefna þar sem þessar merku þjóðir voru neyddar til þess með hervaldi að lúta lágt. Kínverjar þráuðust lengi við og guldu þess harðlega, en Japanir tóku þann kostinn að tileinka sér tækni og vopnabúnað vesturlandaþjóða til þess að verja sjálfstæði sitt og frelsi í gegnum þá leið. Þeir urðu líka fyrsta Asíuþjóðin sem sigraði í stríði við Evrópumenn !

Saga nýlenduveldis Breta og Frakka, Spánverja, Hollendinga, Belga og Portúgala er hryllilega blóði drifin saga. Það er sagt að heilu borgarhverfin í Lundúnum hafi verið byggð fyrir fé sem kreist var út úr Indverjum. Lífskjörunum heima fyrir var lyft með ótakmörkuðu arðráni og  þjófnaði í öðrum heimshlutum, og ekki síst þar sem fyrir voru þjóðir sem máttu sín lítils gegn yfirburða vopnavaldi Evrópumanna.

Öllu sem einhver veigur var í var stolið og rænt og hirt af þessum þjóðum. Margar ómetanlegar gersemar ýmissa þjóða eru enn á söfnum í Bretlandi, Frakklandi og víðar og hafa hvorki verið keyptar eða fengnar með nokkrum þeim hætti sem heiðarlegur getur talist. Þeim var einfaldlega stolið á þeim tímum þegar bölvuð nýlenduveldin komust upp með allt !

Hvíti kynstofninn sem hefur lengstum leikið jörðina okkar verst af öllum kynflokkum jarðar, virðist geyma í sér meiri græðgi og siðvilltari yfirgangshneigð en aðrir þegar hann telur tækifærin bjóðast til auðgunarbrota. Hann hefur níðst á ótal frumstæðum þjóðum í nafni siðmenningar sem einungis hefur verið orðskrípi  í hans munni og yfirbreiðsla til að hylja yfirdrottnun og heimsveldiságang !

Evrópumenn hafa fleytt sér áfram á galeiðu þessarar yfirdrottnunar áratugum saman, lífskjör og velmegun vesturlanda hefur byggst mest á því að undir þiljum á galeiðunni eru þrælar sem knýja skipið áfram með áraburði og ef þeir róa ekki nógu vel hafa svipuhöggin óspart verið gefin.

Þessir þrælar eru fyrst og fremst þjóðir þriðja heimsins, en þeim er stöðugt haldið í spennitreyju fátæktar og neyðar, svo áfram sé hægt að flytja auðinn úr löndum þeirra til að mæta græðgi Vestur Evrópu og Bandaríkjanna. Þar er um að ræða einn versta mannréttindaglæp samtímans !

Og svo er alltaf talað um þróunarhjálp og aðstoð við þessar þrautpíndu þjóðir ! Þar eiga sannarlega við vísuhendingarnar „ gefa sumir agnarögn /af því sem þeir stela. Það er víst býsna margt skráð hjá Sameinuðu þjóðunum og öðrum svokölluðum hjálparbatteríum Vesturlanda sem þróunarhjálp, já, jafnvel sitthvað sem gæti sem best flokkast undir það að verið sé að losa sig við drasl.

Kolryðgað járnarusl frá Íslandi er líklegt til að vera þar á meðal og er vandséð að hvaða gagni slíkt geti orðið í Afríku sem er sem óðast verið að gera að ruslakistu Vesturlanda - álfu úrgangs frá yfirálfunni !

Ef eitthvað af „góða hvíta fólkinu" á Vesturlöndum færi nú að hugsa og velta því fyrir sér á lystilegu hádekkinu á galeiðunni, fyrir hvaða afli hún gengi, gæti verið að ýmislegt færi út af hinu daglega dansspori lífsins. En það fólk sem arðrænir aðra, lifir á svita annarra, vill yfirleitt sem minnst vita af því böli sem það skapar. Svo það er ekki líklegt að mikil hugsun skapist varðandi slíkt hjá „góðu hvítu fólki !"

Fólk í þeirri stöðu er eins og fyrirfólkið í Suðurríkjunum sem lifði áður fyrr praktuglega - á þrælahaldinu, en þóttist samt ala með sér göfugar hugsjónir og standa jafnvel öðrum framar að manngildi. Norðurríkjamenn sögðust hinsvegar vera á móti þrælahaldi en viðhéldu verkunum þess hjá sér með svívirðilegu launamisrétti og sambærilegri undirokun þeirra sem minnimáttar voru. Þeir voru sem sagt lítið skárri !

Það er löngu kominn tími til þess að vesturlanda-galeiðan ljúki sinni siglingu á þeim forsendum sem hingað til hafa gilt. Þær forsendur hafa alltaf verið yfirgengilega ómanneskjulegar og hræðilegar í ranglæti sínu. Það er blóðugt misrétti að fólk í Afríku eða austur í Asíu þræli allt sitt líf til að við Vesturlandamenn getum fitnað á kvöl þeirra og kúgun.

Leyfum þessu fólki að lifa í friði fyrir græðgi okkar og yfirgangi og njóta þeirra auðlinda sem lönd þeirra búa yfir. Meðan við höldum áfram uppteknum hætti er allt tal okkar um þróunarhjálp og mannréttindi einskisvirði og verra en það !

Gæti nokkur Vesturlandabúi hugsað sér það hlutskipti að vera galeiðuþræll ?

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 22
  • Sl. sólarhring: 100
  • Sl. viku: 1297
  • Frá upphafi: 316216

Annað

  • Innlit í dag: 22
  • Innlit sl. viku: 1040
  • Gestir í dag: 22
  • IP-tölur í dag: 22

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband