Leita í fréttum mbl.is

Enn er ár ađ baki !

Ţađ er kunnara en frá ţurfi ađ segja ađ tíminn líđur. Reyndar líđur hann svo hratt ađ Rómverjarnir gömlu sögđu hann fljúga framhjá. Viđ mannfólkiđ höfum aldrei neitt í hendi nema líđandi stund, hiđ hrađfleyga augnablik. Og ađ heilsast og kveđjast er vissulega lífsins saga !

Áriđ 2014 er ađ hverfa međ sína gleđi og sínar sorgir. Öll höfum viđ reynt sitthvađ á ţví ári og ţađ sem gott gafst geymist vonandi í ţakklátum hugum, en hitt sem síđra var, skilur eftir reynslu sem ţarf ađ ţroska okkur til aukins manndóms í komandi tíđ.

Hiđ ágćta skáld okkar Tómas Guđmundsson komst spaklega ađ orđi í kvćđi sínu Hótel Jörđ ţar sem hann kveđur : „ Viđ erum gestir og hótel okkar er jörđin !“

Ţađ fara hinsvegar misjafnar sögur af ţví hvernig viđ göngum um hóteliđ okkar. Sumir virđast ganga ţar stöđugt um á skítugum skónum og ata allt út sem ţeir snerta á. Ţar eru ađ verki umhverfissóđarnir og náttúruleysingjarnir, ţeir sem hirđa aldrei um réttar reglur og eru yfirleitt sjálfum sér og mannkyninu öllu til skammar.

Svo eru - sem betur fer - ýmsir til sem leggja líf sitt og starf í uppbyggilega hluti. Ţađ eru ţeir sem vilja ađ lífshóteliđ okkar sé notalegur stađur og ađ ţar fari vel um alla gestina. Ţađ skiptir máli fyrir sérhvern gest á Hótel Jörđ ađ ţeir sem gista ţar, og ţá ekki síst í nćstu herbergjum, séu ábyrgir og hugsjónaríkir einstaklingar,sem vilja öllum vel sem ţar dvelja.

Samábyrgđ og samkennd ţarf ađ ríkja ţar og vera skínandi leiđarljós í skiptum öllum, ţví eitt er víst, ađ ţá ávaxtast best ţađ sem helst verđur okkur veganesti yfir í komandi vídd.

Viđ skulum nefnilega ávallt gera okkur grein fyrir ţví, ađ viđ verđum hér ekki til frambúđar, viđ erum gestir, og farseđill okkar yfir brúna til hins ókunna verđur stimplađur eftir ţví hvernig viđ höfum hegđađ okkur hér gagnvart samferđarfólki okkar og öđrum gestum og ţví umhverfi sem okkur hefur veriđ gefiđ til lífs og vistar.

Ţađ er einlćg ósk mín ađ komandi ár, áriđ 2015, megi verđa gjöfult og gćfuríkt fyrir land og ţjóđ, – fyrir íslenskt fólk til sjávar og sveita, og ţökk sé öllum sem styrkt hafa samfélag okkar á árinu sem er ađ líđa – međ ţví ađ vera góđir gestir á HÓTEL JÖRĐ !


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 44
  • Sl. sólarhring: 67
  • Sl. viku: 1319
  • Frá upphafi: 316238

Annađ

  • Innlit í dag: 29
  • Innlit sl. viku: 1047
  • Gestir í dag: 27
  • IP-tölur í dag: 27

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband