Leita í fréttum mbl.is

"Og ţakka heiminum fyrir nýjan dag !"

Fyrir nokkrum vikum heyrđi ég í útvarpi texta nokkurn sunginn. Ekki tók ég sérstaklega eftir ţví hver söng og hef ekki hirt um ađ kanna máliđ nánar, en ég verđ ađ játa ađ ég velti nokkuđ vöngum yfir ţeirri tjáningu sem virđist búa í umrćddum söngtexta !

Í textanum var nefnilega fyrirsögn ţessa pistils sungin fram og ţótti mér undarlega til orđa tekiđ. Ţađ er ađ vísu tímanna tákn ađ heiminum sé ţakkađ margt sem Guđi ber, en ađ mađur ţakki heiminum fyrir ţađ sem hann nýtur í hérvistinni, međal annars fyrir ţađ ađ fá ađ vera til, finnst mér skrítiđ viđhorf !

Á sínum tíma benti Guđmundur á Sandi Jóhanni Sigurjónssyni á ţađ ađ ţađ vćri ekki rétt ađ segja „úti regniđ grćtur !“ „Regniđ grćtur ekki“, sagđi Guđmundur, „ ţađ er himinninn sem grćtur regninu !“

Og Jóhann var nógu mikill mađur til ađ viđurkenna ţetta og sagđi: „ Já, ţađ er alveg rétt, slćmt ađ ég skyldi ekki hugsa út í ţađ, en enginn hefur bent mér á ţetta fyrr !“

En ţađ sem ort hafđi veriđ í hita augnabliksins stóđ og stendur, ţví enn er sungiđ af stakri tilfinningu „ Sofđu unga ástin mín, /úti regniđ grćtur !“

Ađ segja ađ regniđ gráti og ţakka beri heiminum fyrir nýjan dag, er auđvitađ hugsunarvilla, en ekki er víst ađ menn í dag séu jafn fúsir ađ viđurkenna slíka villu og Jóhann Sigurjónsson var forđum í nokkuđ sambćrilegu tilfelli ?

Ţar ađ auki virđast sumir menn ţannig gerđir nú á dögum ađ ţeir myndu aldrei ţakka Guđi fyrir eitt eđa neitt, ţví svo mikil er uppreisn sálna ţeirra gagnvart Skapara himins og jarđar. Ţađ eru til menn í dag sem eru orđnir svo menntađir og miklir í eigin sjálfi ađ ţađ virđist beinlínis fara í taugarnar á ţeim ađ heyra ađ einhver hafi skapađ ţá !

Í mikilleika sínum telja ţeir sig líkast til vera algjörlega sjálfskapađa menn og enginn og ekkert sé ţeim í raun og veru ćđra !

Ţađ er sérstaklega leiđinlegt ađ horfa upp á menn sem verđa menntun sinni og uppfrćđslu til skammar međ slíkum hćtti. Sú var tíđin ađ sagt var, ađ menntun og uppfrćđsla leiddi menn sjálfkrafa til auđmýktar gagnvart Almćttinu og hógvćrđar gagnvart samferđamönnunum, ţví međ upplýsingunni skildu ţeir betur stöđu sína gagnvart Skaparanum og skyldur sínar viđ náungann !

En ţađ er löngu liđin tíđ ađ hlutirnir séu međteknir međ ţeim hćtti og nú til dags er hroki miklu algengari fylgifiskur samfara menntun en hógvćrđ !

Samt er ţađ nú svo, ađ tilveran er enn sama fyrirbćriđ og hún var og Guđ er til og verđur til og hann er ekkert óvanur ţví ađ horfa upp á hrokagikki sem telja sig ekkert ţurfa á honum ađ halda og hefja sig yfir hann – í augnablikinu !

Slíkir sjálfbirgingar hafa allt frá upphafi vega vanhelgađ yfirborđ ţessarar jarđar međ orđum sínum og gjörđum og framferđi ţeirra býr oftast ekki yfir neinu öđru en guđlasti. Andi Kóra og Datans er enn víđa á sveimi !

En auđvitađ er Drottinn Skapari allra manna og ţeirra líka sem fullir eru af hroka og yfirlćti. Og ţó svo virđist sem ţeir hafi afhent öđrum ađila lyklana ađ sálum sínum og séu ađ heyra hinir hreyknustu yfir ţví – í augnablikinu, kemur ađ ţví ađ svigrúmiđ verđur ekki meira til ađ ástunda uppreisn og niđurrif gagnvart hinum ćvarandi gildum.

Gömul vísa hljóđar svona:

„Ţó ađ blási stundum strangt

stormur rauna frekur.

Ekki ţarf ađ ţykja langt

ţađ sem enda tekur !“

                          Og ţađ er máliđ ! Ađ lokum er liđin hver stund í lífi hvers manns og líka hver stund ćvi sem var full af óvild til Guđs og hafđi aldrei tíma fyrir hann og vildi ekkert af honum vita !

Ţá er komiđ ađ skuldadögunum og ţá mun sannast ađ lítil vörn verđur í hrokanum og yfirlćtinu, ţegar guđleysinginn horfir móti ţví óumflýjanlega.

Ţví hvar og hvernig er sá mađur staddur á sínu banadćgri - sem aldrei vildi í lífinu kannast viđ Skapara sinn ?

Tilvist öll er eins og slys,

eydd til fulls viđ hjómiđ.

Ţar til dautt og falliđ fis

feykist út í tómiđ !

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 11
  • Sl. sólarhring: 361
  • Sl. viku: 1261
  • Frá upphafi: 316651

Annađ

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 989
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband