Leita í fréttum mbl.is

Hollmeti um heiđarlegan lögfrćđing !

Enn munu margir kannast viđ nafniđ Clarence Seward Darrow (1857-1938). Hann var einn kunnasti lögfrćđingur Bandaríkjanna á sínum tíma, tók ađ sér ađ verja mál sem ađrir forđuđust og oftar en ekki mál sem virtist eiga ađ hleypa framhjá öllu réttlćti. Oft var hann kallađur „Darrow for the Defence“, og ekki ađ ástćđulausu. Hann var málsvari réttlćtisins eins og sumir lögfrćđingar voru á árum áđur og varđ heimsfrćgur sem slíkur.

Darrow varđi verkalýđsfrömuđinn Eugene Debs (1855-1926) áriđ 1895 ţegar ađför var gerđ ađ honum, enda voru ţeir nánir vinir ţó ţeir vćru ekki sammála í öllu. Hann háđi frćgt einvígi í réttarsal viđ William Jennings Bryan (1860-1925) í hinu annálađa Scopesmáli 1925 sem sumir kalla Dayton apamáliđ í Tennessee, en um ţađ mál var kvikmyndin Inherit the Wind gerđ međ Spencer Tracy og Fredric March í lykilhlutverkum. Darrow varđi líka Loeb og Leopold áriđ 1924 í hinu alrćmda morđmáli sem Hitchcock kvikmyndin Rope er byggđ á.

Hann og John Peter Altgeld (1847-1902) sem var um tíma ríkisstjóri í Illinois, voru miklir vinir og Darrow virti Altgeld mikils. Skáldiđ Vachel Lindsay orti sitt frćga ljóđ The Forgotten Eagle um Altgeld. Ţađ er ekki hćgt annađ en hugsa međ hrifningu til manna eins og Eugene Debs, John Peter Altgeld og Clarence Darrow !

Ţegar Darrow sannfćrđist um ađ verja ţyrfti réttlćtiđ í einhverju máli eđa sjá til ţess ađ málaferli fćru fram á eđlilegan hátt og ekki brotiđ á neinum, tók hann viđkomandi mál hiklaust ađ sér jafnvel ţó hann fengi enga greiđslu fyrir. Ţađ mćtti segja mér ađ leitun vćri ađ slíkum manni í dag !

Darrow eignađist ágćta konu Ruby Hammerström ( 1871-1951) ađ nafni áriđ 1903 og hún var honum ómetanleg hjálparhella alla tíđ. Hlutverk hennar í lífi hans verđur seint ofmetiđ. Hún sá um hin ótalmörgu ţarflegu smáatriđi hins daglega lífs sem voru Darrow svo fjarri huga og gćtti hans trúlega. Ţađ var líka ćrin ţörf á ţví ţar sem Darrow var hinn mesti slysarokkur. En Ruby hans var alltaf til stađar. Mátti segja ađ ţau vćru í tilhugalífi allt sitt samvistarskeiđ.

Darrow var sagđur litblindur, ţví honum var gjörsamlega sama hvernig húđlitur manna var. Hann leit sömu augum á alla menn hvađ mannréttindi áhrćrđi. Ţađ vakti eftirtekt hvar sem hann var á ferđalagi hvađ svertingjar sýndu honum mikla virđingu. En ţađ var einfaldlega af ţví ađ ţeir vissu ađ hann var mađur sem ţeir gátu fullkomlega treyst, mađur sem kom alltaf fram viđ ţá sem fullgilda menn.

Öll hrćsni og skinhelgi var eitur í beinum Darrows og vandađi hann ţeim ekki kveđjurnar sem komu fram međ ţeim hćtti. „Vertu sjálfum ţér samkvćmur“ hefđi hann vafalaust viljađ segja viđ hvern og einn.

Darrow ţjónađi réttlćtinu fyrst og fremst svo tekjurnar voru ekki ţađ sem líf hans snerist um. Mannskyldan gekk ţar fyrir öllu. Hann vildi fortakslaust ađ fé ţađ sem hann fengi fyrir störf sín vćri ćrlega fengiđ og vildi ekki hafa samneyti viđ neitt sem var rangt og óheiđarlegt.

Darrow var mađur hreinn og beinn og hlífđist ekki viđ ađ láta skođun sína í ljós ef ţví var ađ skipta. Margar athugasemdir hans lifa enn góđu lífi, enda byggđar á skarpleika og djúpri mannţekkingu. Hann var hugsjónamađur í sannleika og fullur af eđlislćgri mannúđ - alltaf tilbúinn ađ taka svari lítilmagnans.

Eitt sinn sagđi hann ađ gefnu tilefni : „Lost Causes are the only ones worth fighting for !“ Og í annađ skipti sagđi hann: „ The trouble with law is lawyers !“

Já, skyldu menn ekki geta orđiđ nokkuđ sammála um ţá umsögn ?

Eftirfarandi er einnig haft eftir honum: „When I was a boy I was told that anybody could become President. I´m beginning to believe it !“

Eitt sinn sagđi hann líka kaldhćđnislega: „ The first half of our lives are ruined by our parents and the second half by our children !“

Darrow barđist gegn spillingu hvar sem hún varđ á vegi hans og vildi ađ stjórn fólksins, á fólkinu byggđ, fólksins vegna til, vćri í veruleika byggđ upp og virt og heiđruđ sem slík.

Ţađ hlýtur ađ hafa veriđ talsvert uppbyggilegt ađ lifa - međ skírskotun til trausts - fyrir almenna borgara, međan enn voru til lögfrćđingar eins og Clarence Darrow !

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 74
  • Sl. sólarhring: 196
  • Sl. viku: 1324
  • Frá upphafi: 316714

Annađ

  • Innlit í dag: 53
  • Innlit sl. viku: 1032
  • Gestir í dag: 51
  • IP-tölur í dag: 51

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband