Leita í fréttum mbl.is

Hin kostulegu kaflaskil !

 

Fólk sem upplifir aldamót telur sig oftast standa á miklum tímamótum. Ungt fólk sem telur sig eiga lífiđ ađ mestu eftir í fađmi nýrrar aldar er yfirleitt fullt af vćntingum um betri tíma. Ţeir sem eldri eru hafa oft nokkurs ađ sakna frá fyrri tíđ og hafa líklega hófstilltari sýn á framtíđina og vita sem er - ađ löngum hefur veriđ sagt „heimur versnandi fer !“

Ţeir sem horfa til frama í pólitík vilja oft nýta sér tímatalsskil á ţann hátt ađ tala fjálglega um nýja tíma, ný tćkifćri o.s.frv. Ţađ á sérstaklega viđ um fulltrúa nýtilkominna stjórnmálaafla sem oft eru ţá í yngri kantinum og telja sig smellpassa í ţađ hlutverk ađ vera fulltrúar hins ókomna, sem auđvitađ á allt ađ vera betra en ţađ sem er í dag.

Svo er ţetta gamalkunna stef sem oft er líka tengt viđ tímatalsmörk, ađ ný hugsun sé komin fram í krafti stóraukinnar menntunar og hiđ upplýsta fólk samtímans muni ekki leggja sig niđur viđ barbaríska hegđun í samskiptum manna og ţjóđa. Ţessvegna hljóti allt í framtíđinni ađ verđa á miklu háleitara og göfugra samskiptaplani en áđur !

Ţađ er til dćmis auđvelt ađ greina áherslur af slíku tagi hjá pírötum sem fjölyrđa um tuttugustu og fyrstu öldina sem sé bara alveg nýr tími, tími sem bjóđi upp á ótal tćkifćri til ađ bćta allt og laga. Skilabođin virđast vera : „Feliđ okkur völdin og viđ munum fara međ ykkur í hnattreisu í hamingjuvagni tuttugustu og fyrstu aldarinnar !“

En hvađ hefur breyst í raun og veru ? Eru menn til dćmis hćttir ađ stunda hryđjuverk ? Sýndi 21. öldin um leiđ og hún rann upp einhverja breytingu til batnađar í ţeim efnum ? Hvađ gerđist á fyrsta ári aldarinnar 11. september 2001 ? Sýndi atburđarásin ţá einhver sérstök kaflaskil í hegđunarmynstri manna á ţessari jörđ ? Var ekki bara gengin áfram gömul skítaslóđ og hvernig hefur ţađ veriđ síđan ?

Af hverju eru menn ađ skilgreina tímatalsmark sem eingöngu er reikningslegt viđmiđ og gildislaust ađ öđru leyti, sem einhver stórmerkileg skil varđandi ađra hluti ? Ţađ mćtti jafnvel ímynda sér ađ ţađ vćri gert í sumum tilfellum í annarlegum tilgangi, til ţess ađ ýta undir blekkingar og fá stuđning út á vaktar vćntingar um ţetta og hitt ?

Píratar og ađrir sem vilja lofsyngja 21. öldina í dag sem hinn nýja tíma, eru allir međ rćtur sínar í sögulegri mold tuttugustu aldarinnar og mótađir ađ mestu leyti af viđhorfum hennar. Ţó ađ ţeir vilji vera postular og spámenn nýrrar aldar eru ţeir ekki ađ innviđum til hćfir til ţess hlutverks. Enda er sem fyrr segir ekki um neitt raunhćft ađ rćđa í ţeim efnum. Engar stefnubreytingar í meginefnum fylgdu aldaskiptunum, sömu gömlu feigđargöturnar eru gengnar enn í dag !

Einhvernveginn er ţađ líka svo ađ erfitt er ađ bera traust til ţeirra sem koma fram međ ţeim hćtti ađ ţeir ţykjast sápuţvegnir af öllu sem býr í ţví liđna og bođa hreina framtíđ ! Blekkingar eru aldrei hlutur sem gengur til lengdar og ţessi rúmi áratugur sem liđinn er af 21. öldinni ćtti ađ geta sýnt flestum ađ veröldin er enn sami, gamli spillti heimurinn og Obama og Putin og ađrir núverandi valdhafar eru skilgetin afkvćmi ţess ástands sem byggir allt sitt á sömu spilltu vinnubrögđunum og voru í gildi fyrir síđustu aldamót.

In fact,nothing have changed !

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 42
  • Sl. sólarhring: 57
  • Sl. viku: 1072
  • Frá upphafi: 309964

Annađ

  • Innlit í dag: 40
  • Innlit sl. viku: 943
  • Gestir í dag: 39
  • IP-tölur í dag: 39

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband