Leita í fréttum mbl.is

Um titilbúninga hégómans !

Íslenska samfélagiđ er alltaf ađ ţróast og ţroskast og taka framförum međ einum eđa öđrum hćtti. Svo er ađ minnsta kosti sagt, bćđi í fjölmiđlum og opinberum skýrslum og ţá hlýtur ţađ ađ vera rétt samkvćmt ţví sem flestir halda !

Viđ erum til dćmis nánast komin upp af hinu almenna starfsmanns-stigi. Nú eru eiginlega engir almennir starfsmenn til. Ţađ eru allir sviđstjórar eđa fulltrúar nú til dags ! Ef ţú kemur til dćmis í fyrirtćki og ţarft einhverja ţjónustu er ţér líklega bent á ţjónustufulltrúann og ef hann gerir eitthvađ fyrir ţig bendir hann ţér líklega á viđkomandi sviđsstjóra sem á ađ leysa ţinn vanda !

En ţá er kannski stađan sú ađ hann er í útréttingum í útlöndum og varamađur hans ađ sinna öđrum útréttingum hér heima. Menn verđa ađ athuga ţađ ađ annir hafa margfaldast í ţessum fyrirtćkjum og stofnunum sem eru fullar út í dyr af fulltrúum og sviđsstjórum sem erfitt er ađ ná í !

Af einhverjum undarlegum ástćđum getur ţví komiđ yfir ţig í allri framţróuninni, – ekki síst viđ ţćr ađstćđur sem lýst er hér ađ framan - einhver ţrá til ţess tíma ţegar hćgt var ađ tala viđ skilningsríkan almennan starfsmann og upplifa ađ hann gat leyst úr málum fyrir ţig fljótt og vel !

Ţađ var ekkert stjórastand eđa fulltrúaflökt á starfsmönnum hér áđur fyrr, enda voru ţeir nokkuđ langt frá ţví ego-standi sem nú virđist stuđla ađ ţví ađ býsna margir halda víst ađ ţeir séu nafli alheimsins og langt fyrir ofan ađra ađ virđingu !

Hvernig skyldi annars standa á ţví ađ allir virđast núorđiđ ţurfa ađ hafa einhvern sérbókađan starfstitil sér til gildisauka ? Er manngildiđ einskisvirđi annars ?

Ég veit náttúrulega um ţá ţrćlmögnuđu titla-áráttu sem tíđkast međal svokallađra menntamanna, en ţađ er líka fullt af fólki til í dag, sem ekki hefur fariđ í mikiđ meira en skylduskóla, en er komiđ í fulltrúastöđur út um allt og sýnilega hreint ekki svo lítiđ hreykiđ af ţví !

Ţađ er margt taliđ til framfara í dag og ekki síst sitthvađ sem ýtir undir eigingirni og hroka, gćlir viđ sjálf mannsins og hégómagirnd, spilar međ fólk út í últra-ego ! En ţađ eru ekki „orđur og titlar“ eđa „skraddarans pund“ sem skapar manngildiđ, ţađ er hin sálarlega innrétting einstaklingsins sem gerir ţađ og hún segir okkur líka sína sögu um eđli hans og art !

Ţegar einhver goggunarrađar-geggjun kemst svona í fullan fulltrúagang, hleypur hégóminn upp í hćđir vitleysunnar, og ađ kalla slíkt framţróun er auđvitađ ekkert annađ en hlćgileg fjarstćđa. Mannsandinn er í slíkum tilvikum ađ fara aftur á bak en ekki áfram. Hann er í slíkri upphafningu sjálfsins ađ glata sínum eigin kjarna ! Ţá eru menn komnir býsna langt frá gömlu vísdómsreglunni sem segir :   „Ţekktu sjálfan ţig og vertu trúr ţví góđa sem í ţér býr og ávaxtađu ţađ sem best í lífinu !“

Viđ ţurfum ađ byggja líf okkar á öruggri undirstöđu. Hégómi er ekki undirstađa og kjarnalausir kerfistitlar bćta ţar engu viđ. Ţađ er manngildiđ sem ţarf ađ rćkta og hafa ţarf í heiđri hin fornhelgu sannindi um samleiđ heilbrigđrar sálar og hrausts líkama. Ef umgerđ hins daglega lífs er óheilbrigđ og fölsk, leiđir ţađ alla menn sem viđ slíkt kjósa ađ búa um endalausar villubrautir og gerir ţá alls ófćra til ađ leiđa ađrar manneskjur til góđra hluta !

Ţegar fólk er komiđ á fullorđinsaldur ćtti ţađ ađ vera eđlileg, mannleg ţroskakrafa til allra – í nafni samfélagsheilla - ađ ćtlast til ţess ađ menn leggi niđur barnaskapinn og fari upp úr sandkassa hégómans og verđi ađ liđtćkum almennum starfsmönnum utan hans !

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 206
  • Sl. sólarhring: 230
  • Sl. viku: 1227
  • Frá upphafi: 309921

Annađ

  • Innlit í dag: 189
  • Innlit sl. viku: 1055
  • Gestir í dag: 188
  • IP-tölur í dag: 186

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband