Leita í fréttum mbl.is

Að standa vörð um evrópska arfleifð !

Ég hef í allmörgum pistlum á þessari síðu varað við þeirri innflytjendastefnu sem hefur verið fylgt undanfarna áratugi í Evrópu – álfunni og öllu því sem hún hefur staðið fyrir til ófarnaðar. Ástæðan fyrir þeim varnaðarorðum er ósköp einföld, mér þykir vænt um svo ótalmargt í evrópskri menningu og sögu, enda af miklu góðu að taka þar, þó margt hafi að sjálfsögðu gerst og átt sér stað innan þeirra vébanda sem engum er sómi að.

En ef við ætlum að vernda evrópska arfleifð okkar verðum við að skapa henni lífsskilyrði til framtíðar. Það gerum við ekki með þeirri innflytjendastefnu sem fylgt hefur verið og stöndum reyndar þveröfugt að verki með henni.

Ég er samt sannfærður um það að yfirgnæfandi meirihluti manna, meðal allra þjóða Evrópu, vill halda fullri tryggð við menningu sína og þjóðleg gildi. Stjórnarstefnan víðast hvar er hinsvegar látin vinna gegn þessari tryggð, þessari hollustu við það sem okkar er. Það segir sig sjálft að þau markmið að varðveita arfleifð okkar munu eyðast út ef lönd Evrópu fyllast af fólki af öðru þjóðerni, annarri menningu og annarri trú. Við getum ekki ætlast til þess að það fólk hafi sömu sjónarmið og við gagnvart því sem okkar er.

Þetta aðkomufólk kemur til að njóta betri lífskjara meðal okkar en það vill hlynna að sínum gildum – jafnvel þó það sé komið til að búa í okkar löndum. Frá mannlegu sjónarmiði er það ekkert undarlegt. En þar verður seint til staðar sú tryggð og sú hollusta sem ég nefndi hér að framan. Staðreynd málsins er bara sú að það á ekki allt fólk samleið. Sumt er þess eðlis að það verður ekki sameinað !

Tökum til dæmis Sameinuðu þjóðirnar ! Af hverju er sú mikla stofnun - sem vakti svo miklar væntingar í upphafi - og átti að verða voldugt tæki í þágu heimsfriðar, sokkin niður í það að vera lítið annað en risavaxið skrifstofubákn og alheims-kjaftaklúbbur ? Það er ekki síst af því að hver vill fara sína leið !

Það er ógjörningur að sameina alla á einhverjum tilteknum forsendum. Einhver þarf að gefa þær forsendur og hver hefur vald til þess ? Jafnvel á svo göfugum forsendum sem þeim að tryggja frið í þessum heimi, er ekki hægt að skapa samstöðu allra því það hefur enginn þá sýn á friðarleið sem allir munu sætta sig við ? Það tókst ekki að byggja Babelsturninn á sínum tíma og það hefur ekki tekist að byggja Sameinuðu þjóðirnar upp á okkar tímum sem sameinaðar þjóðir. Til þess ber allt of mikið á milli í skoðunum manna og afstöðu til mála.

Mannkynið er ekki ein þjóð og getur aldrei orðið einhver alhliða samsteypa fjölmenningar ! Það er tálsýn sem ber að gjalda varhug við. Mannkynið samanstendur af þjóðum með mismunandi menningu og arfleifð og þar þarf að hlynna að öllu því sem gott er en standa í gegn því sem illt er. Upplýsing mannúðar þarf fyrst og fremst að sigrast á öllu því forkastanlega arðránsflóði sem enn í dag ræður og stjórnar mestu í þessari veröld okkar.

Eina leiðin til mannkynseiningar er að mati sumra að slétta allt út og byrja á nýjum grunni, afmá alla menningarsögu einstakra þjóða, öll þjóðernisleg viðmið og öll trúarbrögð. En sú leið myndi hinsvegar verða svo frek á fórnir að aldrei yrði nokkur samstaða um að fara hana, enda mun hún aldrei verða farin nema þá um skamma hríð og þá undir svikamerki Antikrists !

Þeir flóttamannastraumar sem nú flæða um Evrópu færa með sér mikla hættu fyrir þjóðir Evrópu. Það er ekki hægt að taka við slíkum straumum án þess að það sem fyrir er riðlist. Straumurinn er þegar orðinn of þungur!

Það verður því að nota herafla vestrænna þjóða til að stöðva stríðið í Sýrlandi sem fyrst og friða landið svo íbúar þess geti aftur snúið heim. Sömuleiðis þarf að leysa samskonar verkefni í Lýbíu þar sem fyrri aðgerðir hafa aðeins gert ástandið þar verra. Það þarf að gera fólki fært að dvelja í friði í sínum heimalöndum. Það er eina lausnin á flóttamannavandanum sem skapar ekki ný og verri vandamál þegar til lengdar er litið!

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 106
  • Sl. sólarhring: 151
  • Sl. viku: 1356
  • Frá upphafi: 316746

Annað

  • Innlit í dag: 69
  • Innlit sl. viku: 1048
  • Gestir í dag: 65
  • IP-tölur í dag: 65

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband