Leita í fréttum mbl.is

Stćrsta ógnin viđ mannfélagiđ !

 

 

Eitt sinn sagđi Theodore Roosevelt Bandaríkjaforseti: “ Ţegar ţiđ menntiđ mann í huga, en ekki siđgćđi, menntiđ ţiđ ógnun viđ mannfélagiđ !”

Og ţađ er einmitt ţađ sem viđ skammsýnir mennirnir hófum ađ gera í stórum stíl á tuttugustu öldinni. Viđ hćttum ađ gera kröfur um gott siđferđi. Mađurinn átti ađ vera frjáls. Hann átti ađ finna ţađ rétta í gegnum eigin getu. Hann átti ekki lengur ađ lćra gott siđferđi í gegnum kennslu og inngrip annarra. Hann átti sjálfkrafa í krafti menntunar sinnar ađ verđa siđferđilega réttsýnn einstaklingur. Viđ fengum honum sem sagt í hendur vopn menntunarinnar án nokkurs leiđarvísis um hvernig ţau skyldu notuđ. Afleiđingarnar hafa orđiđ geigvćnlegar, siđferđileg hnignun og andlegur dauđi !

 

 

Nútímamađurinn er fullur af hroka og ekki síst ómćldum menntahroka. Hann vill ekki viđurkenna ţá stađreynd ađ hann rćđur ekki viđ ađ leysa vandamál lífsins. Hann hangir stöđugt í ţeirri blekkingu ađ hann geti bjargađ sér sjálfur og reynir ađ auka gildi sitt međ stöđugt innihaldsrýrari lćrdómstitlum.

 

Meistaragráđurnar eru orđnar valdamikiđ viđhengi manna í nútímanum, en ţćr virđast ekki vera ađ skila okkur betra samfélagi. Mađurinn hefur snúiđ sér í seinni tíđ ađ siđblindum veraldleik og manndýrkun á flestum sviđum en áform hans munu öll bregđast og renna út í sandinn. Ástćđan er einföld : “ Án Guđs Náđar er allt vort traust óstöđugt, veikt og hjálparlaust !”

 

Stćrri hluti mannkynsins á ţessari jörđ gengur nú fyrir lyfjum en nokkru sinni fyrr. Milljónir manna treysta sér ekki til ađ mćta komandi degi án lyfja. Ţađ er einkum svartnćttiđ í sálinni sem stendur fólki fyrir ţrifum. Margir eru sjúkir ađ líkamanum til og ţurfa ađ taka lyf, en ţeir eru oft andlega sterkir og sálin ađ ţví leyti í lagi. En ţeir sem eru sjúkir á sálinni eru verr komnir og ţar eru meinin mest.

 

Guđleysiđ er ađ fara međ ţađ fólk sem ţannig er ástatt um, ţađ sér enga von og ekkert nćr ađ senda ljós inn í lokađar sálir ţess. Hinn veraldlegi hégómi sem hefur hlađist upp í lífi ţess og tekiđ völdin, byrgir fyrir sýn til allra átta. Oft er slíkt fólk hámenntađ á heimsins vísu, en međ svarthol í sálinni, einkum vegna ţess ađ ţađ lćrđi aldrei ađ treysta Skapara sínum. Athvarfiđ verđur svo iđulega flaskan og óminni áfengisvímunnar !

 

Heimspekingurinn Nietzsche stađhćfđi ađ Guđ hefđi dáiđ á nítjándu öldinni. Nú segja sumir ađ mađurinn hafi dáiđ á tuttugustu öldinni. Í báđum tilvikum má segja ađ nokkuđ sé til í stađhćfingunum. Guđ dó sannarlega í hjörtum margra manna á nítjándu öldinni, einkum og sér í lagi vegna ofmetnađar ţeirra sem skapađist mest af yfirborđskenndri upplýsingu. Ţeir álitu sig orđna svo menntađa ađ ţeir töldu sig ekki lengur eiga samleiđ međ Guđi og fóru sína leiđ. Mađurinn dó líka frá samfélagi viđ Guđ í meiri mćli á tuttugustu öldinni en dćmi voru til um áđur !

 

Guđleysi tuttugustu aldarinnar undirstrikađi ţađ snemma ađ Laodíkeu-tíminn vćri kominn. Síđasta kirkjuöldin var gengin í garđ međ öllu ţví sem Opinberunarbókin segir um hennar háttalag og hún verđur ekki löng ađ tíma til. Mađurinn er sannarlega kominn ađ lokum vegferđar sinnar í ţessum heimi !

Og hvađ skyldi valda ţví ? Sjálfsskaparvítin eru löngum verst. Mađurinn hefur fyrst og fremst orđiđ eigin siđspillingu ađ bráđ. Hann hefur gert heimili sitt, ţessa veröld, ađ forarpolli mengunar og viđbjóđs. Hinar tćknilegu framfarir hafa fengiđ honum í hendur eyđileggingarvopn gegn náttúrulegri framvindu. Siđferđileg stađa hans var svo veik ađ hann gat ekki risiđ undir ábyrgđinni sem fylgdi ţví ađ međhöndla slík vopn. Í grćđgi sinni gekk hann of langt og raunar miklu meira en ţađ. Af ţeim sökum er vistkerfiđ ađ hrynja og náttúran ađ snúast gegn manninum !

 

Vegna ţess ađ gildi góđs siđgćđis var gert marklaust og ekki lengur kennt vegna oftrúar á mannlegri menntun - hefur ţađ sannast sem Theodore Roosevelt sagđi. Siđlaus menntun varđ ađ ógnun viđ mannfélagiđ og nú er hún komin á ţađ stig ađ vart verđur aftur snúiđ. Eina leiđin til bjargar er ađ snúa sér ađ hinum gömlu gildum á ný. Ađ ala upp nýja kynslóđ í anda Guđs ótta og góđra siđa. En hver gerir ţađ nú á tímum ?

Enginn kennir ţađ sem hann aldrei lćrđi !

 

Uppreisn tuttugustu aldarinnar er ţegar orđin bölvun tuttugustu og fyrstu aldarinnar !

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 369
  • Sl. viku: 1260
  • Frá upphafi: 316650

Annađ

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 988
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband