Leita í fréttum mbl.is

Ham-skipti Óttarrs Proppé eđa hvađ ?

 

Ţađ er kunnara en frá ţurfi ađ segja ađ sá sem ćtlar sér ađ halda sínum hlut gagnvart helbláu íhaldi ţessa lands verđur ađ halda sér í talsverđum ham. Og ţegar um tvöfalt íhald er ađ rćđa er trúlega enn meiri ţörf á ţví ađ vera í ham !

 

Ţetta skilur Óttarr Proppé líklega manna best. Hann er ţekktur af ţví ađ vera í ham og ef til vill tekst honum – ţrátt fyrir félagsskapinn - ađ tryggja börnum landsins bjarta framtíđ og betri líđan – međ ţví ađ vera virkileg ham-hleypa á verđi í heilbrigđisráđuneytinu !!!

 

Ţó ađ gera megi ráđ fyrir ađ ćtlađar hugsjónir Óttarrs Proppé sverji sig ekki beinlínis í takt viđ Engeyjaráherslur hinna ríkisstjórnarforkólfanna, er líklegast ađ nú um stundir sé veriđ ađ leiđa hann inn í ţađ ferli ađ lćra ađ ganga í takt viđ ţá. Ţađ gćti nefnilega orđiđ talsverđur hamagangur á stjórnarheimilinu, ef umrćddur Óttarr reynir ţar ađ standa á ţví sem hann telur kannski sitt sérumbođ !

 

En ţó ađ hann reyni ţar ađ hamast eitthvađ er nokkuđ víst ađ hann kemst ekki langt ef hinir bossarnir leyfa ţađ ekki. Hann vegur einfaldlega ekki svo mikiđ í heildarvigt valdsmálanna í kringum ríkisstjórnina ađ honum verđur ađ öllum líkindum nokkuđ auđveldlega haldiđ innan leyfilegra marka ţar.


Hann situr ţar í ţeirri súpu sem hann hefur kokkađ sjálfum sér og getur engum öđrum um kennt ef illa fer ađ blása um hann. Varla mun Björt framtíđ heldur verđa ćst í kosningar á nćstunni, ţar sem stćrstur hluti ţeirra sem kusu klúbbinn telur sig líklega ţegar illa svikinn og virđist ţađ reyndar gilda um Viđreisn líka !


Samt er ţađ svo međ íhaldiđ, ađ ţó ađ ţađ kafkeyri sig iđulega í verndarmálum allra handa sérhagsmunagćslu, skýtur ţađ alltaf upp rassinum aftur og flýtur á falsi frođunnar. Svo ţó ađ Viđreisn fái brátt sína endanlegu kafkeyringu og hćtti ađ vera til er nánast víst ađ uppreisnarliđiđ ţar hleypur aftur inn í skjóliđ hjá íhaldi eitt og fćr ţar fyrirgefningu synda sinna á iđrunarsamkomu blámóđunnar í Valhöll !


En hvađ skyldi hamgosinn okkar gera viđ sína komandi kafkeyringu, ţegar tiltrúin er horfin og hann og Björt og Björt framtíđ hafa ađ áliti kjósenda engu skilađ ţrátt fyrir hamslaus tilţrif – ađ eigin mati ? Ekki veit ég ţađ, en hygg ţó ađ ţá muni sumir illa fá hamiđ vonbrigđi sín !


En eins og til ađ halda upp á valdatöku ţeirra frćndanna Bjarna og Bensa eftir áramótin, kom nýtt og glćsilegt skip íslenska flotans til hafnar um svipađ leyti, og ađ sjálfsögđu var ţađ látiđ bera nafniđ Engey. Líklega ţá í heiđursskyni viđ afgerandi endurnýjađa valdastöđu Engeyjarćttarinnar í stjórnkerfi landsins. Trúlega mun skipinu fylgja ćttarleg Ham-ingja og rekstrarleg blessun ef ađ líkum lćtur !


Hitt er svo allt annađ mál hvernig pólitískt fley Óttarrs Proppé kemur til međ ađ pluma sig í vafningasömu áreiti streituvekjandi stjórnarsamstarfs á komandi vikum, og hvernig honum kemur til međ ađ líđa til lengdar í ţeim mjög svo sérhagsmunatengda félagsskap sem hann hefur kosiđ sér !






« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 381
  • Sl. viku: 1250
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 979
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband