Leita í fréttum mbl.is

Að vera aflögufær ?

 

Vissir aðilar gera mikið af því að tala um hvað Ísland sé ríkt samfélag og aflögufært til að hjálpa öðrum. Yfirleitt eru þeir sem þannig tala í nokkuð hærri tekjuflokkum en almenningur í þessu landi og hafa líklega sínar sjálfsánægju ástæður til að tala um almennt ríkidæmi, hvað sem öðru líður.

Og það er náttúrulega í sjálfu sér gott og blessað að hjálpa öðrum, en þeir sem tala mest um að hjálpa virðast æði oft ætlast til þess að einhverjir aðrir leggi til þá hjálp !

 

Mörgum finnst líka greinilega mikið varið í að taka þátt í að útdeila hjálpargögnum sem fengin eru frá öðrum, vera milliliðir í vel auglýstum kærleiksverkum og ekki virðist þeim hinum sömu þykja verra að uppskera heiðurinn – jafnvel prívat og persónulega !

 

Að minni hyggju er það hinsvegar ósiður að koma egóinu á framfæri í gegnum uppmáluð gæskuverk, að eigna sér annarra verk og framlög, en því miður þekki ég til einstaklinga sem hafa jafnan töluverða tilburði í slíka átt og telja sig auðvitað fyrir vikið samfélagsvænni en flesta aðra. Oftast er þá verið að gefa úr annarra vösum, ekki síst fé fólksins – almennings í þessu landi. Í slíku framferði er falsið öllu ofar !

 

Nú er það svo, að til þess að hjálpa þurfa menn í raun og veru að vera aflögufærir. Sama gildir líka í þeim efnum um fyrirtæki, sveitarfélög og ríkið sjálft. Nýlega var tekist á um það í umræðu dagsins hversu há sú upphæð væri sem varið væri af ríkisins hálfu í þágu flóttamanna og hælisleitenda og virðist sem þar skeiki nokkuð miklu eftir því hver talar !

 

Þeir sem hafa þá skoðun að þessi umdeildi útgjaldaliður samfélagsins sé of hár eða jafnvel allt of hár, tala kannski um að 5 til 6 milljarðar fari í þetta, en þeir sem vilja öllum hjálpa og yfirleitt úr annarra pyngjum, tala um 2 milljarða og þykir það ekki mikið. Nú er það svo að kjarni málsins í þessu hlýtur að snúast nokkuð um það hvort við séum aflögufær til að hleypa hér inn útlendingum í hundraða eða þúsundatali, sem allir segjast reyndar vera að flýja stríð, líflátshótanir og hungurdauða !

 

Menn segjast jafnvel vera að flýja stríð þó enginn viti til þess að stríð sé í heimalöndum þeirra. Margt af þessu fólki kann ýmsar kúnstir. Það sendir börnin t.d. oft á undan því flestir eru viðkvæmir fyrir börnum og frekar er gefið eftir þar sem þau eiga í hlut. Þau eiga síðan að opna dyrnar fyrir stórfjölskyldunni sem á svo að koma á eftir – kannski 20 -30 manns. Við megum auðvitað ekki vera svo vond að valda fjölskyldulegum aðskilnaði !

 

En hvernig eru þjóðfélagsaðstæður okkar, hversu vel erum við aflögufær ? Við getum varpað fram nokkrum spurningum : Eru almennir launþegar í landinu vel staddir með sín kjör, er heilbrigðiskerfið að þjóna þjóðinni ásættanlega, eru til dæmis jafn margir hjúkrunarfræðingar við störf eins og þörfin krefur, er vegakerfið okkar í góðu lagi, eru aldraðir og öryrkjar sáttir við sitt, er fyrirgreiðsla húsnæðismála góð hér o.s.frv… o.s.frv…..!!!

 

Öll vitum við líklega að þarna vantar mikið á. Það vantar á að hér sé almenn velferð ! Varðandi launakjör almennings í landinu myndi manneskja með hefðbundinn samfylkingar-hugsunarhátt líklega svara aðspurð: ,, Við höfum það fínt á Íslandi – miðað við fólk í Sómalíu og víðar " en er það sú viðmiðun sem við viljum að gildi ?

 

Og hið ofur hjálpfúsa fólk myndi segja hvert fyrir sig : ,, Þó að heilbrigðiskerfið hjá okkur sé á hliðinni í augnablikinu þá verðum við sameiginlega ( ekki ÉG samt ! ) að hjálpa aumingja flóttafólkinu !”

 

Og í framhaldi væri líklega sagt af slíkum aðilum, að það væri nú sosum alltaf verið að gera eitthvað í vegakerfinu, aldraðir og öryrkjar væru svo sem aldrei ánægðir og ungt fólk gæti hugsanlega eignast eigin íbúð með tíð og tíma !

 

En eftir situr að þetta fólk sér ekkert að því að fleygja 2 milljörðum í útlendinga sem hingað koma, þó við séum í raun ekki aflögufær með það og sumir landar okkar verði að búa í tjaldi og hafi enganveginn mannsæmandi aðstæður til að lifa. Sumir hafa bersýnilega þá undarlegu afstöðu til málanna að vilja miklu heldur hjálpa útlendingum en eigin landsmönnum. Hvernig skyldi standa á því ?

 

Allir, ekki síst fólk á landsbyggðinni, þekkja líka hið stöðuga betl sem kemur í gegnum símann frá höfuðborginni um stuðning við allra handa líknarmál. Það er hringt og hringt og hringt allan ársins hring. Viltu styrkja o.s.frv. o.s.frv…………!

 

Og sá sem ekki telur sig aflögufæran og er það ekki og segir nei, hefur það á tilfinningunni eftir slíkt símtal að sá sem hringdi telji hann vondan og hjartalausan mann !

 

En af hverju er þetta stöðuga betl ? Er það vitnisburður um að allt sé í lagi hér, er það eitthvað sem segir okkur að allir hafi úr nógu að spila hér, er það staðfesting á því að við getum kastað 2 til 6 milljörðum árlega í aðkomufólk sem hingað kemur og vill njóta góðs af erfiði okkar ? Ekki get ég séð að því sé hægt með góðri samvisku að svara játandi !

 

Hver er annars náungi okkar ? Er það Jón í næsta húsi, Pétur í Grímsey eða einhver hinum megin á hnettinum - eða kannski Marsbúi eða risaeðla á kvikmyndatjaldinu ? Getum við með góðri samvisku gleymt þjóðlegum nærskyldum okkar vegna einhverrar hnattrænnar fjarskyldu sem er í raun óskilgreind og enginn getur útfært með eðlilegum skynsemisrökum ?

 

Hvaða framboð skyldu annars helst vilja setja þjóðlegar nærskyldur okkar í forgang ?

 

Við Íslendingar getum sjálfsagt tekið heilshugar undir það að heimurinn sé ekki eins og hann ætti að vera. En við berum sáralitla ábyrgð á því og erum yfirleitt aldrei spurð um okkar afstöðu til heimsmálanna. Við erum með minnstu peðunum í heimstaflinu og afleikirnir mörgu og stóru þar eru sannarlega ekki okkar verk !

 

Við þurfum að laga margt hér heimafyrir og ættum síst af öllu að ætla okkur það verkefni - í uppskrúfaðri samfylkingar-hnattrænni-heilasuðu - að bjarga heiminum !

 

Við gerum best í því að vera ekki að leika okkur stærri en við erum og reyna heldur að halda sjó í heimapollinum okkar og bæta okkar samfélag hvert með öðru !

 

Ég tel að frumskylda okkar Íslendinga sé að hlynna að okkar eigin fólki !

 

 

 

 

 

 

Að vera aflögufær ?

 

Vissir aðilar gera mikið af því að tala um hvað Ísland sé ríkt samfélag og aflögufært til að hjálpa öðrum. Yfirleitt eru þeir sem þannig tala í nokkuð hærri tekjuflokkum en almenningur í þessu landi og hafa líklega sínar sjálfsánægju ástæður til að tala um almennt ríkidæmi, hvað sem öðru líður. Og það er náttúrulega í sjálfu sér gott og blessað að hjálpa öðrum, en þeir sem tala mest um að hjálpa virðast æði oft ætlast til þess að einhverjir aðrir leggi til þá hjálp !

 

Mörgum finnst líka greinilega mikið varið í að taka þátt í að útdeila hjálpargögnum sem fengin eru frá öðrum, vera milliliðir í vel auglýstum kærleiksverkum og ekki virðist þeim hinum sömu þykja verra að uppskera heiðurinn – jafnvel prívat og persónulega !

Að minni hyggju er það hinsvegar ósiður að koma egóinu á framfæri í gegnum uppmáluð gæskuverk, að eigna sér annarra verk og framlög, en því miður þekki ég til einstaklinga sem hafa jafnan töluverða tilburði í slíka átt og telja sig auðvitað fyrir vikið samfélagsvænni en flesta aðra. Oftast er þá verið að gefa úr annarra vösum, ekki síst fé fólksins – almennings í þessu landi. Í slíku framferði er falsið öllu ofar !

 

Nú er það svo, að til þess að hjálpa þurfa menn í raun og veru að vera aflögufærir. Sama gildir líka í þeim efnum um fyrirtæki, sveitarfélög og ríkið sjálft. Nýlega var tekist á um það í umræðu dagsins hversu há sú upphæð væri sem varið væri af ríkisins hálfu í þágu flóttamanna og hælisleitenda og virðist sem þar skeiki nokkuð miklu eftir því hver talar !

 

Þeir sem hafa þá skoðun að þessi umdeildi útgjaldaliður samfélagsins sé of hár eða jafnvel allt of hár, tala kannski um að 5 til 6 milljarðar fari í þetta, en þeir sem vilja öllum hjálpa og yfirleitt úr annarra pyngjum, tala um 2 milljarða og þykir það ekki mikið. Nú er það svo að kjarni málsins í þessu hlýtur að snúast nokkuð um það hvort við séum aflögufær til að hleypa hér inn útlendingum í hundraða eða þúsundatali, sem allir segjast reyndar vera að flýja stríð, líflátshótanir og hungurdauða !

 

Menn segjast jafnvel vera að flýja stríð þó enginn viti til þess að stríð sé í heimalöndum þeirra. Margt af þessu fólki kann ýmsar kúnstir. Það sendir börnin t.d. oft á undan því flestir eru viðkvæmir fyrir börnum og frekar er gefið eftir þar sem þau eiga í hlut. Þau eiga síðan að opna dyrnar fyrir stórfjölskyldunni sem á svo að koma á eftir – kannski 20 -30 manns. Við megum auðvitað ekki vera svo vond að valda fjölskyldulegum aðskilnaði !

 

En hvernig eru þjóðfélagsaðstæður okkar, hversu vel erum við aflögufær ? Við getum varpað fram nokkrum spurningum : Eru almennir launþegar í landinu vel staddir með sín kjör, er heilbrigðiskerfið að þjóna þjóðinni ásættanlega, eru til dæmis jafn margir hjúkrunarfræðingar við störf eins og þörfin krefur, er vegakerfið okkar í góðu lagi, eru aldraðir og öryrkjar sáttir við sitt, er fyrirgreiðsla húsnæðismála góð hér o.s.frv… o.s.frv…..!!!

Öll vitum við líklega að þarna vantar mikið á. Það vantar á að hér sé almenn velferð !Varðandi launakjör almenns starfsfólks í landinu myndi manneskja með hefðbundinn samfylkingar-hugsunarhátt líklega svara aðspurð: ,, Við höfum það fínt á Íslandi – miðað við fólk í Sómalíu og víðar !”

 

Og hið ofur hjálpfúsa fólk myndi segja hvert fyrir sig : ,, Þó að heilbrigðiskerfið hjá okkur sé á hliðinni í augnablikinu þá verðum við sameiginlega ( ekki ÉG samt ! ) að hjálpa aumingja flóttafólkinu !”

 

Og í framhaldi væri líklega sagt af slíkum aðilum, að það væri nú sosum alltaf verið að gera eitthvað í vegakerfinu, aldraðir og öryrkjar væru svo sem aldrei ánægðir og ungt fólk gæti hugsanlega eignast eigin íbúð með tíð og tíma !

 

En eftir situr að þetta fólk sér ekkert að því að fleygja 2 milljörðum í útlendinga sem hingað koma, þó við séum í raun ekki aflögufær með það og sumir landar okkar verði að búa í tjaldi og hafi enganveginn mannsæmandi aðstæður til að lifa. Sumir hafa bersýnilega þá undarlegu afstöðu til málanna að vilja miklu heldur hjálpa útlendingum en eigin landsmönnum. Hvernig skyldi standa á því ?

 

Allir, ekki síst fólk á landsbyggðinni, þekkja líka hið stöðuga betl sem kemur í gegnum símann frá höfuðborginni um stuðning við allra handa líknarmál. Það er hringt og hringt og hringt allan ársins hring. Viltu styrkja o.s.frv. o.s.frv…………!

Og sá sem ekki telur sig aflögufæran og er það ekki og segir nei, hefur það á tilfinningunni eftir slíkt símtal að sá sem hringdi telji hann vondan og hjartalausan mann !

En af hverju er þetta stöðuga betl ? Er það vitnisburður um að allt sé í lagi hér, er það eitthvað sem segir okkur að allir hafi úr nógu að spila hér, er það staðfesting á því að við getum kastað 2 til 6 milljörðum árlega í aðkomufólk sem hingað kemur og vill njóta góðs af erfiði okkar ? Ekki get ég séð að því sé hægt að svara játandi !

Hver er annars náungi okkar ? Er það Jón í næsta húsi, Pétur í Grímsey eða einhver hinum megin á hnettinum - eða kannski Marsbúi eða risaeðla á kvikmyndatjaldinu ? Getum við með góðri samvisku gleymt þjóðlegum nærskyldum okkar vegna einhverrar hnattrænnar fjarskyldu sem er í raun óskilgreind og enginn getur útfært með eðlilegum skynsemisrökum ?

Hvaða framboð skyldu annars helst vilja setja þjóðlegar nærskyldur okkar í forgang ?

Við Íslendingar getum sjálfsagt tekið heilshugar undir það að heimurinn sé ekki eins og hann ætti að vera. En við berum sáralitla ábyrgð á því og erum yfirleitt aldrei spurð um okkar afstöðu til heimsmálanna. Við erum með minnstu peðunum í heimstaflinu og afleikirnir mörgu og stóru þar eru sannarlega ekki okkar verk !

Við þurfum að laga margt hér heimafyrir og ættum síst af öllu að ætla okkur það verkefni - í uppskrúfaðri samfylkingar-hnattrænni-heilasuðu - að bjarga heiminum !

Við gerum best í því að vera ekki að leika okkur stærri en við erum og reyna heldur að halda sjó í heimapollinum okkar og bæta okkar samfélag hvert með öðru !

Ég tel að frumskylda okkar Íslendinga sé að hlynna að okkar eigin fólki !

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 360
  • Sl. sólarhring: 360
  • Sl. viku: 1456
  • Frá upphafi: 315361

Annað

  • Innlit í dag: 321
  • Innlit sl. viku: 1142
  • Gestir í dag: 307
  • IP-tölur í dag: 307

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband