Leita í fréttum mbl.is

Hvers virði erum við ?

 

Meðal Vinstri grænna hefur á undanförnum árum virtst  einna helst vera skilningur á því að um suma hluti gildi ekki málamiðlun, að sumt verði ekki sett á markað !

En sá andi virðist orðinn hræðilega fyrirferðarmikill í nútímasamfélagi að það megi versla með allt. Spurningin sé bara :,, Hvað fæ ég í minn hlut ?´´

 

Þetta kom mjög skýrt fram í allri umræðunni um aðildina að Evrópusambandinu. Þó það væri margbúið að sýna fram á að við glötuðum umráðum yfir auðlindum okkar við aðild og jafnvel háttsettir menn hjá sambandinu hefðu staðfest að ekki myndu fást undanþágur í þeim efnum, héldu þeir sem vildu koma okkur inn í sambandið stöðugt áfram að tala um að við þyrftum að fá að vita hvað okkur stæði til boða ?

 

Og fyrir hvað ? Fyrir að afsala okkur fullveldi okkar og sjálfstæði, fyrir að versla með það sem ekki ber að versla með. Og fjöldi manns endurómaði þessa siðleysu, sem fól það í sér að við gætum svo sem selt okkur, ef við fengjum nógu gott tilboð !

 

En hvaða sældarlífi lifir sá sem hefur selt frá sér frelsi sitt og sjálfstæði ? Hversu lengi heldur hann að hann geti lifað á Júdasargreiðslunni eftir að hann hefur misst ráðin yfir eigin lífi og afkomu ? Sú greiðsla verður fljótt endurheimt af blóðsugunni !

 

Nei, við skulum ekki telja okkur trú um það að það sé hægt að versla með allt og ætla sér að vera maður áfram. Sá sem slíkt gerir er á leiðinni að verða skriðdýr !

 

En nú virðist sem ráðandi öfl í þingflokki Vinstri grænna hafi uppgötvað einhverja hjáleið eða hliðar rás í þessum efnum, að það megi versla með allt, ef það sé bara farin önnur leið. Þetta minnir dálítið á ýmislegt sem Framsóknarflokkurinn hefur lagt fram af sinni hálfu í gegnum tíðina. Það er þessi uppblásna áróðurslausn sem á að felast í því að fara ,,hina leiðina !”

 

En slíkt er bara blekkingarleikur. Vakið villuferli í gegnum loforð og lýðskrum er að verða æ stærri þáttur í stjórnmálum samtímans. Hin leiðin er í flestum tilfellum ekki til sem raunhæfur valkostur, en ef hún er til felur hún ekki í sér neina töfralausn á vandamálunum, vísar aðeins á sömu villusporin, en er höfð í skrautlegum umbúðum sem ætlaðar eru til að láta fólk gína við innihaldi sem engu skilar til góðs !

 

Sem fyrr segir hefur Framsókn, sem útfarinn hentistefnuflokkur, oft verið með þetta tal um ,,hina leiðina” og flestir eru orðnir því vanir og vita hvað hangir á spýtunni, en það er alvarlegra mál þegar VG fer að brydda upp á slíkum málatilbúnaði, flokkur sem ekki hefur verið hentistefnuflokkur og hefur viljað byggja sitt á hugsjónalegum grunni félagshyggju og almenningsvænna sjónarmiða !

Málamiðlun með slík grunngildi felur ekki í sér neitt nema svik við hugsjónaleg stefnumið !

 

Það gengur ekki að leita tilboða varðandi forræði yfir okkar samfélagi, að vilja fá að vita hvers virði við séum, að láta bjóða í okkur, svo við getum metið hvort við græðum á því að selja okkur eða ekki ? Slíkt er ekkert nema ósiðlegt og falskt athæfi því við getum aldrei, undir nokkrum kringumstæðum, grætt á slíku !

 

Hvort sem við tölum um að selja fullveldi Íslands og sjálfstæði í hendur Evrópusambandsins eða leggja sjálfstæð mannréttindi einstaklinga með einum eða öðrum hætti í hendur annarra, er um rangan gjörning að ræða sem aldrei getur orðið réttur !

 

Og þegar forustuöfl VG virðast ætla að selja sig í hendur íhaldsöflum þessa lands og þykjast ætla að fara einhverja aðra leið í því, hyggjast njóta valda undir þeirra náð og miskunn, er það sömuleiðis rangt og getur aldrei orðið rétt !

 

Það er ekki hægt að versla með mannlega reisn, annaðhvort standa menn á eigin fótum eða þeir gera sig að skriðdýrum. Því miður virðist sem mestur hluti þingflokks VG hafi valið – líklega í einhverjum draumórum um ,,hina leiðina” - seinni kostinn !

 

En leiði VG alræmda spillingarkónga til valda í þessu landi, þá verður að segjast að frjálshyggjan sé farin að leggjast með sýkingarkrafti sínum á þá sem hefðu átt að vera ónæmir fyrir henni !

 

Afleiðingar slíks gjörnings munu fyrr en varir sýna þessu heillum horfna þingflokksliði hversu lítils virði það kemur til með að verða í augum þeirra sem allt í einu eru komnir í þá langþráðu óskastöðu að geta ráðskast með það að vild, – með því að taka það í gíslingu óheilbrigðs stjórnarsamstarfs !

 

Eru Vinstri grænir orðnir Vinstri glópar ?

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 156
  • Sl. sólarhring: 326
  • Sl. viku: 1565
  • Frá upphafi: 315546

Annað

  • Innlit í dag: 150
  • Innlit sl. viku: 1276
  • Gestir í dag: 149
  • IP-tölur í dag: 148

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband