Leita í fréttum mbl.is

,,Gerum lífiđ betra” ?

 

Kjörorđ landsfundar Sjálfstćđisflokksins “ Gerum lífiđ betra “ var varla nema hálfsögđ setning. Í raun hefđi ţađ átt ađ vera “ Gerum lífiđ betra fyrir okkur “ ţví ţá hefđi sérgćskan sem flokkurinn gengur fyrir fengiđ ađ njóta sín til fullnustu í kjörorđinu. Í meiningunni vćri ţá náttúrulega átt viđ ađ gera lífiđ betra fyrir ţá sem ţjóna undir hiđ eina og sanna máttarvald – Sjálfstćđisflokkinn !

 

Og svo ađ ekki sé nein tćpitunga viđhöfđ, er rétt ađ geta ţess strax ađ Sjálfstćđisflokkurinn er alls ekki flokkur sem vinnur fyrir almannahag og almenningsheill. Hann hefur aldrei gert ţađ og er til annars ćtlađur !

 

Ţessi forherti hagsmunagćsluflokkur afturhalds og forréttinda var leiddur á legg af valdaforustu fjármagns-aflanna til ađ vera varđhundur hinna betur megandi, hinna ríku, ţeirra sem lifa helst og mest á ţví ađ arđrćna ađra í ţessu landi. Flokkurinn hefur alltaf haft ţađ höfuđmarkmiđ ađ tryggja vald slíkra ađila yfir kjötkötlum ríkis og sveitarfélaga. Og einmitt ţessvegna hefur almannahagur hér aldrei veriđ neitt í líkingu viđ ţađ sem ţekkst hefur á hinum Norđurlöndunum !

 

Raunar vćri Sérhagsmunabandalagiđ réttara nafn á ţessum ömurlega og hugsjónalausa flokki, enda hefur hann alla tíđ ţjónađ ţví sem komiđ hefur Íslandi verst, allt frá ţví ađ hann var stofnađur – illu heilli !

 

Fjöldi ungs fólks, ekki síst menntafólks, gengur enn til liđs viđ ţennan flokk, ekki af hugsjón, ekki af réttlćtisástćđum, ekki til ađ verđa landi og ţjóđ ađ neinu sérstöku gagni, heldur til ţess fyrst og fremst ađ ţjóna eigin sjálfi og eigin afkomumöguleikum !

 

Slíkt fólk hefur átt ţađ til ađ segja međ bersöglum hćtti : ,,Ţađ er hagstćđast fyrir mig og framtíđar ferilskrá mína ađ ganga í Sjálfstćđisflokkinn” !

Ţvílík uppgjöf, ţvílík yfirlýsing um andlegan aumingjaskap og sálarlega vangetu til ađ ţjóna ţví sem rétt er !

Og slík afstađa virđist orđin algeng í samfélagi sem sagt er upplýst og tilheyra 21. öldinni. Og ţetta unga fólk er sagt vera vaxtarbroddur nýrrar ţroskasóknar !!!

 

Líklega hefđi einnig mátt hafa umrćtt kjörorđ ţessa landsfundar hinnar alrćmdustu Sérhagsmunastórklíku landsins - ,,Gerum lífiđ betra fyrir Engeyjarćttina” ?

Gerum lífiđ betra fyrir arđránsöflin, Kolkrabbann, fjölskyldurnar fjórtán eđa hvađ sem ţćr eru nú margar – einmitt núna ! Ţađ árar vel á Íslandi fyrir vargahjörđina !

Ţar andar í brjóstunum umhyggjan fyrir hákarlahópnum, ţar talar viljinn til ađ láta alla forstjóra fá N1 forstjóralaun. Skítt međ starfsfólkiđ, ţađ á bara ađ vinna og skapa verđmćtin svo forréttindaliđiđ geti notiđ fríđinda fyrir erfiđi ţess og puđ !

 

Gerum okkur fulla grein fyrir ţví ađ ţađ vćri engin ofurlauna stefna eđa stađa á Íslandi ef Sjálfstćđisflokkurinn vćri ekki til. Hann er gróđrarstía allrar mismununar og ađ minni hyggju ekkert nema bölvun fyrir heilbrigđa velferđ lands og ţjóđar !

Sannleikurinn er hvergi ţar sem áróđri og lygi er stöđugt hampađ í blekkingarskyni.

Hvar sem sérgćskan rćđur ríkjum, ţar drottnar blóđsugueđli og andavald íhaldsins !

 

Sagđi ekki mesti auđmađur landsins eftir hrun, ađ hann myndi gera allt sem hann gćti til ađ vinna Ísland upp aftur ? Skyldi kannski fjármagn frá honum hafa bjargađ einhverju ? Sennilega eru nú einhverjir til sem trúa ţví af öllu sínu íhaldshjarta, en viđ sem enn höfum frjálsa og óselda hugsun, vitum auđvitađ ađ ţarna voru bara innantóm orđ á ferđinni, ađ sumir halda svo fast um sinn ránsfeng ađ ţar er líf ţeirra allt, hjarta, hugur og sál !

 

Sérgćskuöflin innan hvítu úlfasveitarinnar munu aldrei verđa almenningsvćn nema í augum blindra fylgjenda. Takmarkiđ er og verđur ađ nýta fjármagn ţjóđarinnar í ţágu hinna útvöldu. Fjármagn sem fer til almennings er álitiđ tapađ fé !

 

Hinn yfirlýsti konungsréttur forréttindaklíkunnar stendur alltaf grár fyrir járnum gegn almennum mannrétti. Ţađ sagđi Abraham Lincoln á sínum tíma og sú stađhćfing er í fullu gildi enn í dag og mannkyninu enn sem fyrr til háborinnar skammar !

 

Ţađ verđa alltaf til menn sem ţjóna undir íhaldiđ, en flestir gera ţađ gegn betri vitund. Samviskubitiđ er ţó löngum svćft međ sporslum, bitlingum og allskyns kjöttćgjubeinum frá veisluborđi auđvaldsins. Viđ ţćr ađstćđur ţykir býsna mörgum ţađ bara gott ađ vera í hlutverki hundsins, enda ekki ćtlast til ađ ţeir séu uppréttir menn. Í sumum flokkum hefur alltaf ţurft mikiđ af hundum til ađ ţjóna ţeim útvöldu !

 

,,Gerum lífiđ betra“! Heyr á endemi ! Valiđ kjörorđ á allsherjar-samkundu sérhagsmuna-klíkunnar ! Innantóm og öfugsnúin áróđursorđ ţeirra afla sem stöđugt gera lífiđ verra fyrir almenning í ţessu landi ! Alltaf er veriđ ađ blekkja og gylla ţađ sem rangt er og óásćttanlegt frá öllum mannlegum og mannsćmandi viđmiđum !

 

Ţarna leikur hákarl hákarlanna, úlfur úlfanna, vargur varganna, sér í kringum ţjónustubundnar sardínur sem hamast viđ ađ skeina hann á alla kanta til ađ halda honum hreinum, ţó ţađ dugi enganveginn til !

 

Framkoman er svona hliđstćđ ţví og ţegar Djöfullinn er sagđur kalla á menn međ eftirfarandi tilbođ á tungu : - ,,Hjá mér er Himnaríki fyrir ykkur, ţiđ ţurfiđ ekkert ađ gera nema ađ afhenda mér sál ykkar !”

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 150
  • Sl. sólarhring: 355
  • Sl. viku: 1559
  • Frá upphafi: 315540

Annađ

  • Innlit í dag: 145
  • Innlit sl. viku: 1271
  • Gestir í dag: 144
  • IP-tölur í dag: 143

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband