Leita í fréttum mbl.is

Ríki í höndum óvita !

 

Byssur eru átrúnađargođ í bandarísku samfélagi. Jafnvel mađur sem veit ađ hann er ađ öllu jöfnu mesti rćfill, trúir ţví ađ hafi hann byssu í höndum sé hann ţađ ekki lengur heldur allt annađ og meira. Ţá hafi hann vald og burđi til hvers sem er.

Ţjóđfélagsandinn virđist hreint út sagt gegnsýrđur sannfćringu á aukiđ manngildi fyrir tilverknađ byssueignar. Ţvílík reginvilla í hugsun á 21. öld eftir Krists burđ !

 

Í Bandaríkjunum skrúfa menn sig enn fasta viđ skođanir sem ţóttu skiljanlegar á 18. öld. En allar ađstćđur eru gjörbreyttar. Ţađ eru engir hefndarţyrstir indíánar viđ dyrnar núna. Hćttan í bandarísku ţjóđfélagi nútímans er innandyra. Hún er sköpuđ af viđhorfum sem verđa til fyrir vaxandi öryggisleysi hvers og eins gagnvart hćttulegu umhverfi og vafasömu mannlífi ţar sem glćpir eru daglegt brauđ í stórum stíl !

 

Í slíku samfélagi telja sýnilega flestir sig ţurfa ađ vera gráa fyrir járnum ţar sem enginn ber traust til annars. Og vopnin hlađast upp á heimilunum, ekki bara venjuleg skotvopn, heldur líka hrađvirkar fjölskotabyssur. Framleidd verkfćri til drápa í miklu magni - fjöldamorđa !

 

Og ţegar einhver klikkast alveg viđ ţessar afar óheilbrigđu mannlífsađstćđur, sem gerist ć oftar, verđa afleiđingarnar oftast ţćr - ađ svo og svo margir liggja í valnum ! Og ţeir sem hafa ţannig veriđ drepnir međ bandarískum heimilistćkjum, hafa ekki falliđ fyrir neinni utanađkomandi ógn !

 

Ţeir hafa veriđ skotnir af fjölskyldumeđlim, vini eđa nágranna eđa bara einhverju firringar-fórnarlambi ţess byssu brjálćđis sem fćr ađ drottna í Bandaríkjunum - hinum alrćmdu byssudýrkunarríkjum !

 

Gömul sannindi segja, eins og ég hef áđur minnst á, ađ ţađ eigi ekki ađ leyfa óvitum ađ hafa í höndum hćttulega hluti, hvađ ţá lífshćttulega. Í Bandaríkjunum virđast hinsvegar vera til stađar óvitar í slíkum efnum alla leiđ upp í Hvíta húsiđ !

 

Ţessir óvitar hafa ţađ í höndum sem ţeir kunna ekki međ ađ fara og sem ráđamenn virđast ţeir alveg ófćrir um ađ setja lög til varnar borgurum landsins. Ţeirra eigiđ frelsi frá fyrri tíđ er sýnilega ađ tortíma ţeim og öllum ţeim friđi sem ţeir ćttu ađ geta búiđ viđ, ef ţeir kynnu ađ gćta heilbrigđra lífshátta !

 

Samfélagshugsun í Bandaríkjunum er ekki ţróađ fyrirbćri ţar sem einstaklingshyggjan hefur fengiđ ađ drottna í öllum greinum og öllum er innrćtt ađ hver sé sjálfum sér nćstur. Lífsfirring viđ slíkar samfélagsađstćđur er eđlileg afleiđing rangra viđhorfa sem eru miklu nćr ţví ađ rífa niđur en byggja upp !

 

Ţađ ţarf víst enginn ađ vera hissa á ţví ađ um 45000 borgarar Bandaríkjanna fremja sjálfsmorđ á ári og er sú dánarorsök međal ţeirra tíu algengustu í ţessu sjálfskipađa dýrđarlandi frelsisins. Nóg hefur jafnan veriđ um manndrápin í Bandaríkjunum enda morđtólin alls stađar viđ hendina, en sjálfsmorđin eru meir en tvöfalt fleiri.

 

Ţađ er sjáanlega svo í augum margra ađ ţađ sé of áhćttusamt orđiđ ađ lifa í landinu sem drembilátir Kanar kalla gjarnan Guđs eigiđ land !

 

Hvađ er til ráđa ? Hvađ getur breytt ţessum geđveika hugsunarhćtti sem virđist flćđandi um allt stjórnkerfi Bandaríkjanna og gerir ţetta stórveldi heimsins ađ varnarlausu sjálfskaparvíti fyrir borgara landsins, ađ höfuđvígi heimskunnar, ađ ađalbraut hins ótakmarkađa byssuvalds ?

 

Ţađ verđur ađ stöđva ţennan hugsunarhátt ţví hann er rangur, hann er hćttulegur öllu löglegu valdi og stendur allri eđlilegri framvindu mála fyrir ţrifum. Öryggisleysi manna getur orđiđ svo mikiđ ađ hver drepi annan !

 

Rodney King óeirđirnar hafa sýnilega ekki kennt mönnum neitt. Enn er vegiđ í sama knérunn víđasthvar í Bandaríkjunum og sáđ fyrir verri hlutum í komandi tíđ.

 

Unga fólkiđ í Bandaríkjunum er ađ sjá ţetta í gegnum hrylling daganna og vakna til vitundar um ţá hćttu sem ógnar samfélagi ţeirra og allri framtíđ. Ţađ segir : Hingađ og ekki lengra !

 

En ráđamennirnir, ríkiskerfiđ, lögreglan, ţeir sem völdin hafa, fylgja enn hinum ofbeldissinnuđu sjónarmiđum byssuvaldsins. Ţar má ekki hagga viđ neinu, ađ ţeirra dómi. Ţeir segja : ,, Međ illu skal illt út reka” og veifa kokhraustir skotvopnum sínum. Sjálfstćđisyfirlýsingin heldur ekki Bandaríkjunum saman ađ ţeirra mati, heldur byssan. Sá sem heldur á byssunni hefur valdiđ og fćr ţannig ađ drepa !

 

Ţessir blindu ráđamenn rífa Sjálfstćđisyfirlýsinguna niđur á hverjum degi, gera lítiđ úr vćgi hennar, gildisfella hana liđ fyrir liđ, skilja ekki söguleg sannindi og einskisvirđa arfleifđ ţjóđarinnar. En byssuna hefja ţeir til vegs og virđingar í hverju skúmaskoti hinnar amerísku ríkishallar og fylgja hverjum óvitahćtti í ţeim málum eins og frekast má – í nafni frelsisins !

 

Fórnarlömbunum mun ţví líklega fjölga enn um sinn, en vonandi heldur unga fólkiđ baráttu sinni áfram gegn ţessum mannskemmandi hugsunarhćtti sem rćđur og vonandi birtir svo til á nćstu árum ađ 45000 manns hćtti ađ taka sitt eigiđ líf árlega vegna vonleysis og vantrúar á lifandi framtíđ - í ríki sem óvitar stjórna !

 

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 197
  • Sl. sólarhring: 247
  • Sl. viku: 1606
  • Frá upphafi: 315587

Annađ

  • Innlit í dag: 170
  • Innlit sl. viku: 1296
  • Gestir í dag: 167
  • IP-tölur í dag: 166

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband