Leita í fréttum mbl.is

Hvar er heims samviskan ?

Ţađ virđist nú svo komiđ fyrir siđagildum í ţessum heimi ađ ógeđsleg morđ sem framin eru eftir fyrirmćlum ríkjandi valdhafa ţykja ekkert sérstakt tiltökumál. Ţađ er hoppađ ađeins upp um stundarsakir međan máliđ er gangandi fréttamatur, en svo fellur allt fljótlega í lognmollu siđvana starfshátta. Samviska manna er komin út í hafsauga og allir í gróđavímu međ alla hluti !

 

Morđiđ á Jamal Khashoggi er svívirđilegur glćpur sem kallar á margar áleitnar spurningar. Hvernig hafa Sameinuđu ţjóđirnar brugđist viđ, hvernig hafa hinar ýmsu Mannréttindastofnanir brugđist viđ, hvernig hafa Bandaríkin brugđist viđ, ríkiđ sem ţykist öllum fremur hafa veriđ einhverskonar vörn fyrir samvisku heimsins ?

 

Er ekki ljóst ađ allir ţessir ađilar geta ekki fengiđ annađ en falleinkunn fyrir ţađ hvernig ţeir í raun hafa látiđ sér fátt um finnast ţó vegiđ hafi veriđ hrottalega ađ grunngildum allrar siđmenningar og allrar mannúđar í ţessum heimi ?

 

Fréttamenn út um allan heim hafa oft stađiđ erfiđa vakt fyrir almennum mannréttindum og vakiđ athygli á ólíđandi framferđi jafnt valdhafa sem einstaklinga. Ţeir hafa líka ófáir orđiđ ađ gjalda fyrir ţá framgöngu međ lífi sínu og nöfn slíkra manna eru mörg heiđri helguđ !

 

Gamla sagan um ađ ţagga ţurfi niđur í ţessum og hinum gerist ţví miđur aftur og aftur. Nútíminn er ekki betri í ţeim efnum en fyrri tímar og býsna oft hugsar mađur : ,,Höfum viđ virkilega ekkert lćrt ?”

 

Morđiđ á Khashoggi sýnir ljóslega hversu langt sumir eru komnir út á glćpabrautina ţó teljast eigi til valdhafa. Og skollaleikurinn í kringum máliđ er allur hinn ógeđslegasti og virđist eiginlega af allra hálfu snúast fyrst og fremst um kaldrifjađa og hjartalausa pólitík. Enginn er sýnilega á verđi fyrir samvisku heimsins !

 

Bandaríkin hefđu vísast tekiđ öđruvísi á málinu ef í hlut hefđi átt eitthvađ ríki í tengslum viđ Rússland eđa Kína ; ef hćgt hefđi veriđ ađ sverta viđkomandi ríki međ eftirgrennslun atburđarásarinnar. En ţví er ekki ađ heilsa og viđskiptahagsmunir sitja ţví í fyrirrúmi !

 

En glćpurinn er sá sami hver sem drýgir hann og ţannig hefđu réttsýnir menn eins og John Adams og Abraham Lincoln litiđ á máliđ. En ţeirra sjónarmiđ eru ekki leiđarljós Bandaríkjanna nú til dags – ekki á nokkurn hátt. Ţađ sér hver heilvita mađur !

 

Khashoggi-máliđ sýnir enn og aftur hvađ ofbeldi er nćrtćkt ráđ af hálfu stjórnvalda Saudi-Arabíu. Yfirvöld ţar fara sínu fram hvađ sem hver segir. Atburđarásin í Yemen sem er mannkynssögulegur hryllingur er ekki hvađ síst á ábyrgđ Saudi Arabíu, sem í krafti olíuauđs síns virđist telja sér leyfast allt. Slíkt framferđi er heiminum öllum til skammar !

 

Khashoggi máliđ hefur fengiđ mikla frétta-umfjöllun en ţau eru mörg málin af svipuđum toga sem ćttu ţađ ekki síđur skiliđ. Svívirđingasaga veraldar lengist jafnt og ţétt og ţar virđist sem löngum fyrr fátt til varnar !

 

Međan ríki eins og Saudi-Arabía og Norđur-Kórea eru til, er ekki hćgt ađ búast viđ ađ mennskan búi viđ eđlileg lífsskilyrđi í ţessum heimi !

 

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 147
  • Sl. sólarhring: 388
  • Sl. viku: 1556
  • Frá upphafi: 315537

Annađ

  • Innlit í dag: 142
  • Innlit sl. viku: 1268
  • Gestir í dag: 141
  • IP-tölur í dag: 140

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband