Leita í fréttum mbl.is

Hiđ óseđjandi grćđgisliđ !

 

,,Magnast enn í málum hér

meiriháttar spilling.

Út og suđur ýtir sér

allra klćkja fylling !”

 

Nýleg umrćđa um bankastjóralaun hefur opnađ augu margra enn frekar fyrir ţví hvađ lítil innistćđa er oft fyrir orđum íslenskra valdamanna. Ţađ kemur aftur og aftur í ljós ađ ţeir ráđa ekki viđ spillinguna í kerfinu og hafa sýnilega litla löngun til ađ eiga viđ ţá meinsemd. Allir ađilar segjast samt skilja reiđi almennings, já, jafnvel alikálfarnir sjálfir, en svo vísar hver á annan og ekkert gerist. Ţađ er enginn Mr. Smith á leiđ til Reykjavíkur nú - fremur en endranćr !

 

Enginn virđist í sjálfu sér stjórna spillingunni, hún rćđur sér bara sjálf. Hún lifir sjálfkrafa hér í eigin veldi, ađ ţví er virđist. Enginn heilagur Georg rćđst til atlögu viđ drekann og sigrar hann, enda er enginn heilagleiki í einu eđa neinu í íslenska stjórnkerfinu. Ţar virđist bara spreng-aliđ sérgćskuliđ í gerspilltri goggunarröđ til stađar !

 

Forsćtisráđherra getur sýnilega ekkert og brosir bara eyrna milli, í stöđulegri sćldarvímu. Fjármálaráđherra er á svipuđu róli og vill sýnilega ekkert gera, Og formađur ţriđja stjórnarflokksins er jafnvel enn síđur líklegur til jákvćđra stórrćđa. Ţađ er algert athafnaleysi eins og í kringum kennitöluflakkiđ !

 

Ţingiđ virđist ađ stórum hluta enn svo upptekiđ af eftirhreytum Klausturbars-málsins, ađ venjulegt kerfis-spillingarmál ţykir líklega bara leiđinlegt í ţví samhengi. Ţađ ţykir víst lítiđ spennandi ađ fara ađ rífast út af slíku. Ţađ er My Too baráttan sem gildir en ekki eitthvert ómerkilegt mál varđandi almannahagsmuni og líf og afkomu ţeirra lćgst launuđu !

 

En af hverju er enginn til ađ höggva á hnútinn ? Af hverju er ekki hreinsađ til í gróđrarstíum grćđginnar ? Af hverju er ţetta liđ ekki látiđ fara ? Í ríkisbönkum er algerlega óverjandi ađ hafa fólk sem ţarf ađ lágmarki lífsblóđ úr fimmtán manns á mánuđi til ađ geta lifađ. Ţađ á bara ađ segja ţessu grćđgisliđi upp og ráđa manneskjulegt fólk, fólk međ eđlilega tengingu viđ lífiđ í landinu, í stađinn !

 

En hver á ađ gera ţađ, hver á ađ hafa forgöngu um ţađ ţarfaverk, hver er međ völd í ţessu landi sem ekki er meira eđa minna samdauna ţessum sérgćskuklíkum kerfisins sem skíta hér yfir allt ?

 

Og ţegar svo er spurt, kemur ađ ţví sama sem fyrr, ţađ er enginn tiltćkur ! Allir segjast ađ vísu sjá vandamáliđ og viđurkenna ţađ sem slíkt, en enginn íslenskur valdamađur hefur ţá burđi sem ţarf til ađ taka á málinu og leysa ţađ !

 

Allir eru í kerfinu til ađ verja sjálfa sig og sína stöđu. Enginn ţorir ţar ađ ráđast til atlögu viđ spillinguna. Ráđherrar landsins heykjast ţar og draga lappirnar, međan ţeir tala út og suđur um ekki neitt !

 

Margir telja ţađ líka á viđ bókađa stađreynd, ađ ţađ sé sjaldnast mikil hugprýđi til stađar hjá ţeim sem sitja á ráđherrastólum hérlendis. Ţeir sem ţar sitja eru ţar flestir vegna pólitískrar refskákar en ekki vegna tiltrúar almennings á ćtluđu manndómsgildi ţeirra. Og ţegar mál koma upp sem gćtu gefiđ ţeim tćkifćri til ađ sýna sig í betra ljósi, falla ţeir hver um annan ţveran í vanabundinni viđleitni sinni til ađ forđast ţađ ađ ţurfa ađ taka á málum. ,,Ég kem mér bara í vandrćđi ef ég fer ađ skipta mér af ţessu” hugsa ţeir allir međ sér og kunna ekki ađ skammast sín !

 

Ţađ virđist vera Íslands óhamingja ađ eignast aldrei mannsćmandi forustuliđ. Allan lýđveldistímann höfum viđ aldrei átt neinn afgerandi virđingarverđan forustumann. Einhvern sem var dáđur af fleirum en eigin flokksmönnum !

Enginn stjórnmálamađur hefur notiđ almenns trausts ţjóđarinnar allan ţann tíma og skýringin er augljós og einföld. Ţađ hefur enginn unniđ til ţess !

 

Ţađ hefur veriđ talađ um tvćr ţjóđir í ţessu landi, grćđgisliđiđ og áhangendur ţess, sem eru ţeir sem fá bein undan veisluborđunum í sinn hlut og gelta af gleđi yfir ţví, og svo hinn arđrćndi og afskipti meginhluti ţjóđarinnar. Ég held samt ađ ţjóđir landsins séu á hrađri leiđ međ ađ verđa ţrjár, sú ţriđja er ađ verđa innflytjendur og afkomendur ţeirra, sem sýnast jafnvel líklegastir til ađ erfa landiđ, ef allt fer sem horfir !

 

Grćđgisliđiđ hegđar sér nú í vaxandi mćli enn og aftur, eins og ţađ gerđi fyrir síđasta hrun. Ţađ mun ganga af allri velferđ hér dauđri ef fer sem horfir, og ţarf ekki mörg árin til ţess - eins og haldiđ er á málum !

 

Verđmćtasköpunin sem ţjóđin, almenningur ţessa lands, framkallar međ vinnu sinni, fer ađ mestu í ţá bölvuđu hít sem hér er til umrćđu, hít sem óseđjandi er og siđlaus og ćtti hvergi ađ viđgangast. Ađ sama skapi versna almenn lífskjör og vanlíđan eykst í samfélaginu hjá körlum og konum, međ tilheyrandi huglömun, kvíđa og kulnun !

 

Og allir vita ađ hrćfuglarnir í valdakerfinu vernda viđbjóđinn,fjármálaspillinguna,ofurlaunaarđrániđ,lífeyrissjóđakerfiđ,kennitöluflakkiđ og kvótasukkiđ, sama hvađ ţađ heitir, enda eru ţeir meinvörp af sama krabbameini ódyggđanna sem vill sýkja hér allt. Hugarfarslegu krabbameini sem er ađ éta upp og eyđileggja sérhvern heilbrigđan lífsvott sem hingađ til hefur getađ sprottiđ upp í mannlífsgarđi íslensku ţjóđarinnar !

 

Mađur spyr sjálfan sig : Til hvers var búsáhalda-byltingin ? Hverju hefur hún eiginlega skilađ, hvađ hafa menn lćrt ?

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 74
  • Sl. sólarhring: 197
  • Sl. viku: 1324
  • Frá upphafi: 316714

Annađ

  • Innlit í dag: 53
  • Innlit sl. viku: 1032
  • Gestir í dag: 51
  • IP-tölur í dag: 51

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband