13.4.2019 | 10:12
Til hvers hefur verið barist ?
Fyrir nokkru voru svonefndir hælisleitendur að mótmæla við Alþingishúsið og gera kröfur um meiri og betri aðbúnað af hálfu íslenskra yfirvalda í þeirra málum. Þeir vildu meina að réttindi þeirra væru ekki virt sem skyldi. Það er hinsvegar eins og það komist aldrei inn í umræðuna, að fjármagn það sem ríkið ver til innflytjenda er alfarið tekið úr vösum þeirra sem fyrir eru og margir félagslegir innviðir íslenska ríkisins eru sárlega fjársveltir og velferð miklu meiri í orði en á borði !
Mikil vinna Íslendinga síðustu áratugi hefur haft það að lokatakmarki, að menn geti haft það gott þegar þeir komast á eftirlaun, átt áhyggjulaust ævikvöld, eins og það er kallað á hátíðastundum samfélagsins. Uppbygging svonefnds velferðarkerfis miðaðist við að þeir sem lögðu það til sem þurfti, fengju að njóta ávaxtanna. Á seinni árum hefur það orðið að vaxandi vandamáli, að meðan ausið er fé í innflytjendur og yfirlýsta hælisleitendur, vantar stöðugt fé til að halda lífskjörum aldraðra Íslendinga í sómasamlegu horfi og uppfylla þau fyrirheit sem um þau mál höfðu verið gefin !
Það er sem sagt ekki vegna þess að þeir eigi það fé ekki inni og hafi ekki lagt sitt til þess, heldur vegna þess að fjármagnið er sett í annað. Aðrir sem ekki hafa lagt þar til eitt eða neitt eru látnir ganga fyrir. Samviska heimsins á að vera á kostnað Íslendinga, jafnvel afleiðingar styrjalda úti í heimi eiga að vera á kostnað okkar - örþjóðar sem aldrei hefur verið með eigin her !
Þessi vitleysisgangur hefur leitt til þess að sjálfmetin réttindi innflytjenda eru bókstaflega látin flæða yfir þjóðleg réttindi þeirra sem fyrir eru í þeim löndum sem þeir koma til. Yfirvöld víða virðast beinlínis orðin hrædd við þennan ágenga og kröfuharða hóp og gefa eftir og fá það eitt í staðinn að stöðugt er gengið á lagið. Og við slíkar aðstæður fer fólk að spyrja sig, af hverju á ég að vera að leggja hart að mér, fyrir hverju er ég að berjast, ég mun aldrei fá neina umbun fyrir það, það verður öllu stolið af mér, aðrir fá að njóta ávaxtanna af mínu erfiði ?
Hvatinn til að starfa og starfa vel, er að hverfa úr vestrænum samfélögum. Það er enginn eldmóður lengur fyrir hendi í þeim efnum eða trú á því að slíkt muni skila sér. Enginn lítur svo á að hann sé að byggja upp til framtíðar. Enginn veit heldur lengur hvað framtíðin býður upp á. Yfirvöld eru svo brigðul að þeim er í engu treystandi. Þau eru miklu hollari erlendu hlaupaliði en eigin landsfólki !
Þjóðarauði og velferðar-ávinningi er ráðstafað af óábyrgu kerfisliði út og suður í þágu annarra en þeirra sem sköpuðu þau verðmæti. Það er hnippt í fólk fyrir kosningar og lofað öllu fögru, en svo svíkja flokkarnir yfirlýst stefnumið sín hver um annan þveran, samanber Vitlaus græn hér um árið.
Og vegna heims-samviskunnar eigum við víst bara að láta okkur allt lynda !
Þessi alhliða skeining sem viðhöfð er nú á tímum gagnvart innflytjendum er mikið og krefjandi umhugsunarefni. Þegar innflytjendur þyrptust til Bandaríkjanna hér á árum áður urðu þeir bara að spjara sig. Og þannig var það víðast. Allir urðu að heyja sína lífsbaráttu. Það var enginn borinn á höndum inn í fyrirheitna landið !
Það er löng hefð fyrir því í löndum múslima að þeir sem hafa verið annarrar trúar hafa orðið að borga sérskatt af þeim sökum. Það er ekki mikið talað um það og fleira þegar múslimar eru umvafðir í bak og fyrir þegar þeir koma til landa þar sem fjölmenningin hefur blindað fólk með blekkingar-kenningunni um að öll dýrin í skóginum eigi að vera vinir. Slík kenning þjónar aðeins rándýrunum !
Múslimum myndi áreiðanlega þykja heldur betur að sér þrengt ef þeir væru lögskyldaðir, í löndum sem eiga að heita kristin, til að borga sérskatt vegna trúar sinnar. En þannig taka múslimsk stjórnvöld á málum gagnvart þeim borgurum sem ekki eru múslimar og hafa lengi gert !
Fjölmenning á ekki neitt fylgi í löndum múslima og mun aldrei hljóta neitt gengi þar. Múslimar styðja bara fjölmenningu í þeim löndum sem þeir eru ekki búnir að yfirtaka. Hún þjónar markmiðum þeirra þar og aðeins þar !
Þeir stefna að því að komast í meirihluta og ef þeir ná því takmarki sínu, verða Sharia lög tekin upp sem fyrst og allt tal um fjölmenningu verður þar með svæft því þá hefur tilganginum verið náð. Bráðin er komin í gildruna og á sér ekki viðreisnar von !
Þessari fjölmenningarvitleysu verður að linna og það sem fyrst !
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Nýjustu færslur
- Það sem Reykjavík aldrei varð !
- Konur Salómons !
- Hve mörg geta fórnarlömb tíðarandans orðið ?
- Vesturveldin spila stöðugt á falskar nótur !
- ,,Gefðu, að móðurmálið mitt " !
- Fjölmenning draumsýn óraunveruleikans !
- Eru íslenskir pólitíkusar bara gauð og fótaskinn annarra ?
- Auðgildi mega ekki fá að troða niður manngildi !
- Sleikjuhátturinn við auðmannastéttina á Íslandi !
- Verum á verði fyrir hag lands og þjóðar !
Eldri færslur
- Mars 2024
- Febrúar 2024
- Janúar 2024
- Desember 2023
- Nóvember 2023
- Október 2023
- September 2023
- Ágúst 2023
- Júlí 2023
- Júní 2023
- Maí 2023
- Apríl 2023
- Mars 2023
- Febrúar 2023
- Janúar 2023
- Desember 2022
- Nóvember 2022
- Október 2022
- September 2022
- Ágúst 2022
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.3.): 41
- Sl. sólarhring: 68
- Sl. viku: 1071
- Frá upphafi: 309963
Annað
- Innlit í dag: 39
- Innlit sl. viku: 942
- Gestir í dag: 38
- IP-tölur í dag: 38
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bækur
-
: Fjörusprek og Grundargróður (2023) -
: Í norðanvindi og vestanblæ (2013) -
: Hjartað slær til vinstri - Úr minningaheimi Kalla í Nesbæ (2010) -
: Bræðingur og Brotasilfur (2004) -
: Þar sem ræturnar liggja (2004) -
: Út við ysta sæ (2000) -
: Frá fjöru til fjalls (1996) -
: Vísur frá Skagaströnd (1993) -
: Ljóð frá Skagaströnd (1991)