Leita í fréttum mbl.is

Lengi getur vont versnað !

 

Það eru býsna margir sem tjá óhikað það álit sitt að alþingi Íslendinga sé illa skipað í dag. Og það er ekki að ástæðulausu að svo er talað !

Flækjustig flokkanna virðist orðið svo hátt og stefnufirringin mikil, að málflutningur kjörinna fulltrúa á þingi er orðinn yfir línuna eins og veðurspáin hjá kerlingunni í þjóðsögunum eða tal hagfræðimenntaðra sérfræðinga í sjónvarpsviðtölum, sem sagt - annaðhvort verður hann áfram svona ellegar þá hann breytir til !”

 

Traust virðist mikið til að hverfa úr íslenskum stjórnmálum. Þar virðist nú helst safnast saman í framboðsklíkur, og það hjá öllum flokkum, fólk sem er nýskriðið úr skólum með sínar menntagráður ; fólk sem hefur lítið sem ekkert unnið á almennum vinnumarkaði, hefur eiginlega engu kynnst nema því að vera í skóla, og þykist samt geta veitt þjóðinni leiðsögn út á sitt fengna vegtyllu-veganesti – sem er kannski fyrst og fremst byggt á þröngri innanhóps sýn á samfélagið – nokkurskonar skráargats-útkomu !

 

Umræður á alþingi virðast leiða það hvað eftir annað í ljós, að þar sé að mestu saman komið einhverskonar sérklíkulið, sem er grasrótarlaust og andlega slitið úr sambandi við fólkið í landinu. Þó sumir á þingi keyri mikið að sögn virðist það ekki skila sér í meiri almannatengslum. Og það hefur ekki farið leynt að sumir þingmenn vildu bara skerða málfrelsið þegar Miðflokksmenn sáu ástæðu til að undirstrika andstöðu sína við ásælni Evrópusambandsins með úthaldsmiklum ræðuflutningi !

 

Þar virtust sumir yfirlýstir vinstrimenn jafnvel taka sér stöðu til hægri við hægrimennina og sýnir það eins og margt annað stöðumála ruglinginn. sem setur mark sitt á flest í þinginu og það svo að menn virðast ekki lengur vita hvar þeir eigi að standa og hverju þeir eigi að fylgja. Enginn virðist heldur vita hverskonar stjórn situr í landinu, hvort það er vinstristjórn eða hægristjórn og sennilega vita ráðherrarnir það síst allra !

 

Forsætisráðherra er bara, eins og flestir hljóta að vera farnir að sjá og skilja, ánægð með að vera forsætisráðherra, og í því sambandi skiptir litlu þó enginn viti fyrir hvaða stefnu stjórn hennar stendur. Er á meðan er !

Það er líka áreiðanlega svo tilfinningalega notalegt að vera komin á blað í Íslandssögunni, hvað sem verðleikunum líður !

 

Eftir því sem mannval verður minna á þingi er líklegt að brotalamir allrar kerfisskipunar þar komi frekar í ljós, og sem fyrr segir telja margir að þingliðið í heild sé í rýrasta lagi miðað við það sem verið hefur.

Ef gildisbær úttekt myndi leiða í ljós að svo væri, þyrfti auðvitað að finna leiðir til að gera þingið þjóðhagslega starfhæfara og það sem fyrst !

 

Eflaust mætti fækka þingflokkum til hagræðingar og vonandi minni þjóðarkostnaðar. Mörgum þykir sem Viðreisn sé bara orðin eins og einhver deild í Samfylkingunni og aðrir segja reyndar það sama núorðið um Pírata. Þessir þrír meintu flokkar virðast að minnsta kosti í mörgu vera svo alþjóðlega eða utanlands-sinnaðir, að þjóðleg viðhorf komast varla að !

 

Flokkur fólksins hefur dregist verulega saman að þingstyrk, eins og alþjóð veit, og ólíklegt er að hann fari vaxandi úr þessu, hvort sem haft er hátt eða grátið. Ekki er heldur öllum formönnum gefið að kunna þá list að halda liði sínu saman eins og sjá má !

 

Miðflokkurinn vill greinilega marka sér ákveðna sérstöðu, en vandséð er hvort hann nær því takmarki sínu eða á eftir að koðna niður. Kapp og forsjá þurfa að haldast í hendur ef vel á að fara !

 

Sjálfstæðisflokkurinn stefnir að líkindum í vissa forustukreppu, því fæstum dylst að Bjarni Benediktsson hefur ekki náð að mæta væntingum flokksmanna sem sterkur leiðtogi. Með nafna sínum og fyrirrennara á hann í þeim efnum lítið sameiginlegt. Hann virðist þó vera að reyna að koma sjónarmiðum sínum á framfæri – í Fréttablaðinu !

 

Framsóknarflokkurinn virðist enn halda sínum starfsútibúum í nokkurri veltu á landsbyggðinni, en þar byggir hann enn sem fyrr á nokkuð sterkum grunni. Ólíklegt er hinsvegar að fylgi hans vaxi mikið í óðaþéttbýlinu á suðvesturhorninu og kannski er það bara gott !

Það tekur því ekki að minnast á vinstri græn – jafnvel ekki í minningargrein !

 

Svona er þá staðan eða því sem næst….. Þessir eru valkostir kjósenda og þrátt fyrir fjölda flokkanna verður að segjast að það er lítið í boði !

Ákaflega litlar líkur verða samt að teljast fyrir því að einhver siðbótarvakning verði í íslenskri pólitík í komandi tíð. Sjálfsánægja manna þar virðist nefnilega slík, að menn eru miklu líklegri til að kenna fólkinu um það sem aflaga fer en sjálfum sér !

 

Við vitum svo sem að þjóðin okkar er ekki stór, en það er vaxandi áhyggjuefni margra Íslendinga að hlutfallslega séð virðist þingið samt vera töluvert minna að gildi en efni ættu að standa til !

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 22
  • Sl. sólarhring: 81
  • Sl. viku: 1279
  • Frá upphafi: 316280

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 1016
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 12

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband