Leita í fréttum mbl.is

Notum skynsemina gegn glóruleysinu !

 

Heimsbyggđin er í ţeirri stöđu ađ geta veriđ sett hvenćr sem er í ćgilegar ađstćđur, eingöngu á forsendum persónulegra hagsmuna einstakra valdamanna. Ţađ er vont ađ lifa viđ ţá stađreynd !

 

Ţađ dylst til dćmis engum sem rýnir í kortin, ađ töluverđ aukning hefur orđiđ á síđari árum af óhćfum forustumönnum, sem hafa sleikt sig upp í valdastóla međ lygum og lýđskrumi. Slíkir menn eru og verđa alla tíđ háskagripir og ávísun á slćma hluti og myndu raunar hvergi ná ţví ađ verđa leiđtogar ef vitrćn afstađa og heilbrigđar ađstćđur réđu kjöri !

 

Hvađ halda menn til dćmis ađ Trump Bandaríkjaforseti gerđi, ef hann teldi víst og tryđi ţví ađ stríđ viđ Íran myndi tryggja honum endurkjör í komandi forsetakosningum í Bandaríkjunum ? Vćri ţá eitthvađ veriđ ađ velta fyrir sér ţjáningum milljóna manna af völdum slíks stríđs, yrđi ekki bara hjólađ undir blikandi stjörnufánum stórveldisins í enn eina helförina í Miđ-Austurlöndum ?

 

Trump hefur ađ vísu oft talađ um ađ fćkka í herliđi Bandaríkjanna víđa um heim og segist öllu jafna vera andvígur stríđi, en orđ og gerđir virđast ţví miđur sjaldan fylgjast ađ í háttalagi hans, enda mađurinn hiđ mesta ólíkindatól. Ţađ er ţví erfitt ađ vita upp á hverju hann kann ađ taka ?

 

Hvar er annars friđurinn sem átti ađ komast á í Írak fyrir tilstilli Bandaríkjanna ? Eftir ţví sem best verđur vitađ, hefur ástandiđ í landinu eftir Flóastríđin lengstum veriđ miklu verra en međan Saddam Hússein var og hét. Var hann ţó enganveginn góđur !

 

Hvađ hefur unnist í Afghanistan ? Hvernig hefur veriđ fariđ međ Sýrland ? Hvar er Libýa á vegi stödd ? Öll ţessi ,,frelsuđu” lönd búa viđ stóraukiđ og margfaldađ helvíti stríđs og neyđar – eftir bandarísku hjálpina !

 

Á nú kannski ađ bćta ,,frelsun” Írans viđ á bandaríska bjargráđalistann og gera öll Miđausturlönd ađ kraumandi nornakatli ótakmarkađra stríđshörmunga til margra ára, í viđbót viđ ţađ sem ţegar er búiđ ađ skapa ? Og verđur ţađ kannski niđurstađan, og ţá helst til ţess ađ tryggja óhćfum bandarískum forseta endurkjör ?

 

Bandaríkin hafa lengi viljađ vera ráđamest í heimsmálunum, en ţau eru sem stendur sjálf forustulaus í ţeim efnum. Forstjórinn í Hvíta húsinu virđist eins ţekkingarlaus varđandi alţjóđlega pólitík eins og hćgt er ađ vera. Hann tređur jafnvel illsakir viđ nánustu stuđningsríki Bandaríkjanna !

 

Skilningur hans á milliríkjamálum virđist nánast enginn og hann reynir oft ađ bćta upp ţađ augljósa vanhćfi sitt međ ótíndum hroka. Og sú breytni hefur iđulega orđiđ honum til hinnar mestu skammar !

 

En ţađ sem er kannski verst, er ađ gegn ţessum ómögulega valkosti, sem Trump svo sannarlega er, virđast demókratar ekki geta stillt upp neinum verulega frambćrilegum manni, enda virđast ţar helst í bođi afgamlir og heilsutćpir kerfisjálkar. Hafa demókratar virkilega engum á ađ skipa sem getur stađiđ fyrir einhverri nýskipan í bandarískum stjórnmálum, engum manni sem getur bođađ raunhćfa framtíđarsýn, nýja New Deal stefnu ?

 

Forustu hins vestrćna heims er í vondum höndum ţar sem Bandaríkjamenn eru. Átökin milli einrćđistilburđa Trumps forseta og lýđrćđislegra grundvallarsjónarmiđa bandaríska stjórnkerfisins eru mjög hćttuleg og ţarf ekki mikiđ ađ fara úrskeiđis ţar til ađ ţau valdi varanlegum skađa, jafnt heima fyrir sem á heimsvísu. Lýđrćđiđ er víđa í hćttu í ţessum heimi og jafnvel ţar sem síst skyldi !

 

Í umrćddum átökum er veriđ ađ leika sér ađ eldi sem gćti breiđst út í mannkyns-bölvuđu margfeldi og yrđi ekki slökktur svo glatt. Hinir ćgilegu Ástralíueldar myndu ekki ţykja mikiđ mál í ţeim samanburđi !

 

Margir eru úlfar í sauđargćru, margir eru kosnir til góđra verka, en svíkja síđan allt sem ţeim var trúađ til ađ gera. Jafnvel Hitler var kosinn í upphafi međ lýđrćđislegum hćtti. Ţvílíka heimsbölvun dró sú kosning á eftir sér !

 

Nú er hćgt međ fullum rétti ađ segja ađ ýmsir smáhitlerar séu hér og ţar viđ völd. Hvernig stendur á ţví, lćrum viđ aldrei neitt ? Af hverju er ekki hćgt ađ losna viđ slíka óvćru af skildi mannkynsins ? Eru menn aftur farnir ađ sá fyrir tilkomu einhvers Stórhitlers, kannski Antikrists ?

 

Lýđrćđiđ í heiminum á vissulega marga óvini og viđ skulum ekki gleyma ţví ađ ţađ á sér ekki langa sögu. Ţađ er međ öđrum orđum hćgt ađ koma ţví á kné og nógir virđast fúsir til ţess verks. Viljum viđ ađ ţađ verđi ?

 

Viđ erum sannarlega ekki ađ trođa veg til velferđar međ mörgu af ţví sem viđ gerum. Ţađ er löngu tímabćrt ađ taka upp ađra stefnu. Ef mannkyniđ og framtíđ ţess á ađ geyma í sér gildiđ mesta í ţeirri stefnumörkun, verđur mörgu ađ breyta. Ţađ ćtti ekki ađ dyljast neinum manni !

 

Og nú höfum viđ ekki einu sinni efni á ţví ađ bíđa međ slíkar breytingar. Lífiđ á blessađri jörđinni okkar er nefnilega á beinni dauđaleiđ, ţađ er ađ kafna í mengun og skít. Jafnvel börnin eru farin ađ skilja ţađ !

 

Víst er ađ ef Donald Trump verđur endurkjörinn forseti Bandaríkjanna í nóvember nćstkomandi, verđur ţađ engu til stuđnings - nema óbreyttum helstefnuháttum mannkynsins – áframhaldandi dauđaleiđ !

 

Og ţví miđur virđist mannkyniđ enn sem fyrr vera villuráfandi og algerlega ófćrt um ađ bjarga sér til áframhaldandi lífs á ţessari jörđ !


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 22
  • Sl. sólarhring: 110
  • Sl. viku: 1297
  • Frá upphafi: 316216

Annađ

  • Innlit í dag: 22
  • Innlit sl. viku: 1040
  • Gestir í dag: 22
  • IP-tölur í dag: 22

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband