Leita í fréttum mbl.is

AĐ VERĐA HLUTI AF EINHVERJU !

Ţađ virđist sem margir hafi drjúgmikla ţörf fyrir ađ verđa hluti af einhverju, ađ tilheyra flokki eđa samtökum. Ţađ er eins og ţeir hinir sömu upplifi sig miklu sterkari fyrir vikiđ og finnist ţeir komnir í hina einu og sönnu öryggishöfn.

Auđvitađ býr ţađ í eđli mannsins ađ ađhyllast félagslega stöđu og öll erum viđ hluti af mannlegu ţjóđfélagi, en full ţörf er ađ skođa vel ţá valkosti sem ađ öđru leyti eru í bođi, ţví stundum getur félagslega yfirborđiđ veriđ blekkingarhula og undir ţví er kannski rekin harđsođin sérhagsmunapólitík sem á ekkert skylt viđ hugsjónir manna um samfélagslegt réttlćti.
Og ţađ er nú svo, ađ mađurinn tapar ćriđ oft einhverju af sjálfum sér ţegar hann gerist hluti af einhverju sem hann veit ekki međ vissu hvađ er eđa hvađ á eftir ađ verđa. Flokkar sem félagsleg tćki breytast ört og geta fyrr en varir orđiđ eitthvađ annađ en ţeir ţóttust vera. Margir hafa ţannig komist í ţá meinlegu stöđu ađ verđa ađ samţykkja ýmislegt sem ţeim hefur alls ekki líkađ. Einstaklingur sem reynir slíkt, nćr ekki ađ halda hugarfrelsinu vegna ţess ađ hann verđur of leiđitamur vegna skorts á réttlćtiskennd og viljafestu.

Oftast fer svo ađ sá sem lendir á öndverđum meiđi viđ flokkslínu eđa ráđandi línu, og sćttir sig ekki viđ hlutina, yfirgefur félagsskapinn af eigin frumkvćđi ef hann er ţá ekki rekinn. Ţađ er gömul og ný saga.

Ţađ eru mörg dćmin um unga menn sem hafa gengiđ inn í einhvern félagsskap, fullir af hugsjónum og háleitri framtíđarsýn, en tapađ ţar áttum og fariđ ađ tala fyrir hlutum sem félagsskapurinn vill en ţeir ekki. Ţeir hafa fariđ ađ tala fyrir skođunum annarra en ekki eigin skođunum og orđiđ keyptir talsmenn sem haldiđ er í agaskorđum.

Ţegar svo er komiđ getur víst engum dulist ađ öryggishöfninni er í mörgu ábótavant og mađurinn farinn ađ týna sjálfum sér inn í eitthvađ sem er langt utan viđ hans fyrri vonir og sýn á framtíđina. Ţá er hann kominn á ţrćlsklafa og sumir njörvast ţar svo fast niđur ađ ţeir losna ţađan aldrei nema í láréttri stöđu viđ endalokin.

Í fjórtán ár var ég innskrifađur í Alţýđubandalagiđ sem flokksmađur. En allan ţann tíma fylgdi ég stađfastlega eigin sýn á ţađ hvađ mér fannst rétt. Ef flokkurinn talađi fyrir einhverju sem ég gat ekki samţykkt fyrir mína parta, tók ég hiklaust afstöđu gegn ţví og ţótti ég ţví aldrei sérlega mikill flokksmađur inn á viđ. En ţađ skipti mig engu ţar sem ég fór eftir sannfćringu minni og gat ţví veriđ sáttur viđ sjálfan mig. En út á viđ var ég jafnan talinn mikill Alţýđubandalagsmađur og er jafnvel enn af sumum. Ţađ er nokkuđ spaugilegt ţegar á ţađ er litiđ hver stađan raunverulega var.

En ţađ kom ađ ţví ađ ég sagđi mig úr flokknum, enda var hann ţá, ađ mínu mati, ađ verđa hin leiđinlegasta kratasamkunda. Ég hafđi líka skömm á ţví hvađ pólitíkin utan flokks sem innan virtist orđin ómerkileg og fölsk og vildi engan hlut eiga í ţeirri atburđarás sem í gangi var. En kannski var ég bara orđinn fćrari um ađ greina stöđuna og kannski hefur pólitíkin alltaf veriđ í svipuđu fari.
En síđan hef ég stađiđ utan flokka og mikil blessun er ţađ ađ vera laus viđ ţá sálaróvćru sem fylgir flokkspólitísku starfi. Ég hugsa oft um ţađ ţegar ég sé hlaupandi snata á snćrum flokkanna, hvađ mörg mannskepnan getur nú lagst lágt ţegar hún hefur von um ađ fá bein undir borđiđ.

Ég veit líka sitthvađ um  marga sem hafa veriđ ađ vasast í pólitík árum saman. Ég veit ađ ţeir hafa tapađ hluta af eigin manndómi sem flokkslegar undirlćgjur og orđiđ ţeim mun lakari menn fyrir vikiđ. Í sumum tilfellum veit ég til ađ menn hafa stutt rangindi vitandi vits til ţess eins ađ tryggja eigin stöđu í hinni pólitísku goggunarröđ. Slíkt finnst mér fyrirlitlegt og virđing mín fyrir mönnum sem ţannig hafa stađiđ ađ málum er engin.

Satt ađ segja ţekki ég ekki neinn núlifandi mann sem vaxiđ hefur ađ manngildi, ađ mínu mati, í gegnum pólitískt starf.

En ţađ er hart barist um sálirnar og margir vilja náttúrulega taka sér stöđu ţar sem ţeir telja sig eiga ćttir og óđul ađ verja. En oft fer ţađ svo ađ menn sem bókađir hafa veriđ sem liđsmenn í sérhagsmunaklúbbum án ţess ađ vita ţađ, fara smám saman ađ verja rangindi, beita lygum og blekkingum, og enda međ ţví ađ verđa sálarlegir vesalingar fyrir vikiđ.

Ţeir fara ađ lúta einhverjum formúlum sem enginn frjáls mađur ćtti ađ beygja sig fyrir og verđa hlutar af vél sem gengur fyrir allt öđru en ćrlegu eldsneyti. Ţađ er ţví mikil ţörf á ţví ađ menn skođi hug sinn vel áđur en ţeir gerast hluti af einhverju sem er kannski alls ekki ţađ sem ţeir halda ađ ţađ sé.

Ţađ er nefnilega hreint ekki víst - ef ţeir ánetjast, - ađ ţeir sleppi nokkurntíma úr viđjunum og upplifi ţađ á ný ađ verđa sćmilega frjálsir menn til hugar og hjarta.                                                                                                                                                                                                                                                                         


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 25
  • Sl. sólarhring: 126
  • Sl. viku: 1055
  • Frá upphafi: 309947

Annađ

  • Innlit í dag: 25
  • Innlit sl. viku: 928
  • Gestir í dag: 25
  • IP-tölur í dag: 25

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband