Leita í fréttum mbl.is

HUGLEIĐING Í UPPHAFI AĐVENTU.

Nú er hafinn ţessi ljúfsári minningatími sem ađventan er í hugum margra.

Viđ förum međ degi hverjum ađ skynja betur hiđ mikla ađdráttarafl jólanna, ađ ţađ er eitthvađ í nánd sem dregur og lađar. Og viđ hugsum til látinna ástvina, ţeirra sem áttu ţessa hátíđ međ okkur en eru nú farnir úr ţessum heimi. Já, viđ hugsum til ţeirra međ ţakklćti og vildum svo gjarnan ađ ţeir vćru enn okkar á međal, ekki síst á ţessari hátíđ ljóssins, friđarins og fjölskyldunnar.

Og međan hjörtu okkar fyllast tilfinningum tilhlökkunar og saknađar í senn, sjáum viđ öll ljósin sem lýsa upp skammdegismyrkriđ eins og bođunarmerki nýrrar birtusóknar inn í hiđ nýja ár, tákn um hćkkandi sólargang.

Jólin geta veriđ mikill fagnađartími góđra hluta í lífi fólks, ef vilji er til ađ hafa ţađ ţannig. Ţá gefst svigrúm fyrir fjölskyldur ađ hittast, dvelja saman og styrkja kćrleiksböndin ; hlynna ađ öllu ţessu sem er svo óendanlega mikilvćgt í lífi okkar allra, hinum sam-mannlegu verđmćtum sem búa í sálum okkar.

Viđ áttum okkur ţá kannski svolítiđ betur á ţví ađ eitt af ţví sem styrkir stóru hlutina í lífinu er ađ viđ séum trúverđug í hinum hverdagslegu smáatriđum. Ţađ er nauđsynlegt ađ byggja undir traust í öllum samskiptum ţví ţađ skiptir svo gífurlega miklu máli ađ geta treyst. Og á jólunum koma allar ţessar hugsanir til okkar, sem snúast um ţađ ađ viđ viljum vera góđ og ávaxta saman ţađ sem gott er.

Margar eru ţćr sögurnar sem fjalla um ţau áhrif sem jólin hafa á hjörtu mannanna. Ég minnist ţess ađ sagt var, ađ hermennirnir í fyrri heimsstyrjöldinni hefđu ţá fariđ upp úr skotgröfunum á vesturvígstöđvunum og hist á einskis manns landinu og fađmast eins og brćđur. Önnur saga greinir frá ţví er tveir ţýzkir hermenn úr hernámsliđinu komu inn í ţorpskirkju í Danmörku ţegar jólaguđţjónustan var ađ byrja. Ţar mćttust dönsk og ţýzk hjörtu í ţeim kćrleiksanda sem jólin kalla fram. Allar andstćđur véku en ţađ stóra og mikla sem sameinađi réđ ferđinni. Mikiđ vćri veröldin yndisleg ef ţessi andi jólanna réđi allan ársins hring og öll samskipti manna bćru ţess vott.

Ţađ er víđa ráđist ađ kristindómi nú til dags og margur telur sig mann ađ meiri ađ rífa niđur ţau gildi sem helg hafa veriđ talin til ţessa. Vísindatrú og upphafin manndýrkun leggjast á eitt viđ ađ reyna ađ úthýsa Jesú Kristi úr hjörtum manna.

En ţađ er ekkert til sem getur komiđ í hans stađ. Ef hugsađ er um sögu mannkynsins án Krists og áhrifa hans sjáum viđ ađ dimmt verđur fyrir augum. Ţađ er ţetta LJÓS HEIMSINS sem glćđir allt gott líf, ekki síst á ađventutímanum fyrir jólin, og fćđir fram ţađ sem best býr í manninum.

Látum ţađ ekki breytast, höldum í ţessi andlegu verđmćti hvađ sem líđur vísindatrú, manndýrkun, fjölmenningu og öđru sem stefnt er gegn ţví sem ţjóđ okkar hefur ţekkt og elskađ í gegnum aldirnar. Virđum allt sem gott er í fari annarra en látum enga taka frá okkur ţađ sem er og á ađ vera órjúfanlegur hluti af okkar lífsmynd - jólagleđi í kristnum anda í fađmi fjölskyldunnar.

Megi ađventan reynast sem flestum indćll ađgöngutími ađ jólahátíđinni og byggja menn upp í ţví ađ mćta komandi ári međ enn jákvćđara hugarfari en áđur gagnvart samfélagi og samferđarmönnum.

Gleđileg komandi jól.

 

Til dýrđar Guđi nú er hátíđ haldin

og heimsins ţjóđum dýrmćt blessun fćrđ.

Ţađ vermir friđur hjörtu ung og aldin

sem áđur voru döpur eđa sćrđ.

Og bjarmi vonar lýsir lífsins vegi

og ljúfur straumur fer um hverja sál.

Viđ fögnum öll međ gleđi Drottins degi

er dýpsta sćla hrekur fals og tál.

 

                                                  ( RK )

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 16
  • Sl. sólarhring: 403
  • Sl. viku: 1425
  • Frá upphafi: 315406

Annađ

  • Innlit í dag: 16
  • Innlit sl. viku: 1142
  • Gestir í dag: 16
  • IP-tölur í dag: 16

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband