Leita í fréttum mbl.is

Frjálsar pćlingar


 Viđ lifum í síbreytilegum heimi. Ţađ er víst og satt. Mađurinn fer í stöđuga hringi í fremdarsókn sinni og týnir jafnan einhverju úr pússi sínu ţegar hann grípur ćtlađan ávinning upp af götu sinni. Í hálfa öld stređar hann kannski viđ ađ skapa félagsleg verđmćti til gagns fyrir heildarhag og ţegar gćđin hafa veriđ framkölluđ til fulls byrjar sérgćskan ađ heimta sitt. Nćstu fimmtíu árin fara svo í gagnstćđa tilburđi ţar til allt er komiđ á byrjunarreit baráttunnar aftur.

Alltaf er veriđ ađ sögn ađ byggja upp mannréttindi og tryggja friđ og jafnstöđu manna um veröld alla, en myndir veruleikans benda samt í allt ađra átt.

Sameinuđu ţjóđirnar hafa t.d. vanţróast eftir bestu vćntingum valdamanna sem stofnun. Međ ţeim var komiđ upp alţjóđlegu leiksviđi fyrir hvern ţann skollaleik sem settur skyldi á fjalirnar í veröldinni. Ţetta leiksviđ er mjög ţarflegt fyrir ráđamenn heimsins ţví ţađ gerir flesta minni háttar ađila sem blandađ geta sér í mál svo upptekna á kjaftaţingum, ađ stórveldin geta jafnan fariđ sínu fram.

Eftir ađ frjálshyggjan fór ađ vađa yfir alla félagslega hugsun hjá mannskepnunni, virđist sú skođun hafa komist í nýgildi, ađ talsverđur hluti mannkynsins ćtti bara ađ búa í kofum um alla framtíđ.

Engin ástćđa vćri til ţess ađ stefna ađ ţví ađ hjálpa vanţróuđum ţjóđum upp af kofastiginu eđa yfirleitt vinna gegn fátćkt og mismunun. En jafnframt var ţeim áróđri beint ađ mönnum, ađ - ţeir -  ćttu auđvitađ ekki ađ búa í kofum heldur einhverjir ađrir !

Viđ áttum sem sagt alltaf ađ hafa einhvern annan á kofastiginu og telja ţađ hiđ besta og eđlilegasta mál. Í takt viđ ţessa heimsskođun frjálshyggjunnar var svo  ráđinn forstjóri fyrir S.Ţ. sem hét nafni sem smellpassađi viđ línuna - Kofi Annan !

Og svo hafa árin liđiđ og frjálshyggjan og auđvaldsstefnan vađiđ yfir allt og alla međ útrás og áróđri peningaspilsins, hampandi yfirlýstum gulldrengjum í sigursćlli gróđavímu. Og nú er svo komiđ ađ bankar og fjármagnsgreifar hafa lćst klónum í nánast alla skapađa hluti sem félagshyggjan byggđi upp fyrr á árum og sést ţađ ekki hvađ síst hér á landi.

Margt af ţví sem íslenska ţjóđin eignađist fyrir samvinnu allra hefur nú fariđ fyrir lítiđ í klćr óţurftarađila sem stjórnast af anda sem aldrei hefđi átt ađ endurvekja og á ekki heima ţar sem sagt er ađ mannréttindi og siđuđ viđhorf eigi ađ ráđa gangi mála.

Og nú hefur áherslum sjáanlega enn veriđ breytt hjá S.Ţ. og nýr framkvćmdastjóri ber nafn sem hentar enn sterkari frjálshyggjutímum.

Ban-Ki Moon er prýđilegt nafn sem er vel til ţess falliđ ađ minna okkur á tök bankanna í nútímanum sem eru svo yfirgripsmikil ađ ţau ná sjálfsagt til tunglsins og jafnvel lengra !

Og almenningur heimsins fer nú í ć meiri mćli ađ borga kostnađinn viđ framfćrslu yfirstéttanna - alveg eins og forđum, ţegar ađallinn og klerkastéttin réđu öllu og enginn hafđi enn heyrt talađ um ţriđju stétt hvađ ţá fjórđu stétt, né yfir höfuđ verkalýđsfélög og vinstristefnu.

Og ţađ er eins og fólk sé andlega sofandi og skilji ekki ađ ţađ er stöđugt veriđ ađ reyta af ţví áunninn rétt - rétt sem vannst međ 150 ára ţrotlausri baráttu -.

Skilabođ nútímans eru ađ nálgast endurútgáfu frá gamalli tíđ :

Ţú skalt ţrćla langan dag og svo máttu húka međ ţínu hyski í ţínum kofa, forréttindin tilheyra ţeim sem auđinn eiga, bankaeigendum og tunglskins-tauhálsum peningatískunnar  - hinum nýja ađli sem vígđur virđist vera til sérstakrar musterisţjónustu viđ Mammon og Mólúk á dagatali sérgćskunnar.

Ţarf ekki ađ fara ađ huga ađ endurfćđingu alvöru verkalýđshreyfingar í stađ ţess liđónýta og steindauđa skriffinskukerfis sem kallađ er verkalýđshreyfing í dag ?


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Mars 2024
S M Ţ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 27
  • Sl. sólarhring: 118
  • Sl. viku: 1057
  • Frá upphafi: 309949

Annađ

  • Innlit í dag: 27
  • Innlit sl. viku: 930
  • Gestir í dag: 27
  • IP-tölur í dag: 27

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband