Leita í fréttum mbl.is

Formálsorđ.

 

Fyrir nokkru sendi ég eftirfarandi grein til Mbl. sem var andsvar viđ bréfi sem ţar birtist undir nafni Ellerts B. Schram. Taldi ég efni ţessa opna bréfs koma öllum Íslendingum viđ ţótt stílađ vćri ţađ sérstaklega til Sjálfstćđismanna.

Nú hefur mađur heyrt ađ Mbl. setti greinar sem vćru svargreinar oft í forgang međ birtingu, en ţví var ekki ađ heilsa međ ţessa grein mína. Hún var bara ekki birt.

Ég veit ekki til ţess ađ greinin innifeli neitt sem saknćmt er nema ţá hugsanlega  óţćgilegar pólitískar umsagnir. Ég ćtla ţví ađ birta hana hér á síđunni svo ţeir sem heyra vilja geti lesiđ hana og velt ţví fyrir sér hversvegna hún fékk ekki birtingu í " blađi allra landsmanna " ?

 

Hinn óţjóđlegi kratakór

 Margt er mađur búinn ađ heyra frá skammsýnum pólitíkusum og fjárţurfandi viđskiptalífsfulltrúum um nauđsyn ţess ađ viđ göngum í Evrópusambandiđ.

Ţađ gengur stöđugt ţessi síbylja um ađ viđ getum ekki stađiđ á eigin fótum og ţađ eina vitlega í stöđunni sé ađ íslenska ţjóđin gerist próventulýđur hjá hinu stórkostlega Brussellkompaníi !

Ţeir sem hćst hafa galađ í ţessum efnum, eiga ţađ yfirleitt sammerkt ađ vera áhangendur Samfylkingarinnar eđa nálćgt hennar áhrifasviđi. Ţađ er ţví ekkert nýtt ađ heyra í slíkum " sendiherrum " og oftast lćtur mađur óţjóđlegt málćđi ţeirra eins og vind um eyrun ţjóta.

Samt er ţađ hvimleitt ađ heyra fólk af eigin ţjóđ tala um sjálfstćđi landsins sem einhverja skiptimynt, heyra hvernig gjaldmiđill landsins er rakkađur niđur af ţessu krataliđi samhliđa ţví ađ evran er lofsungin sí og ć. Ţađ er  hamast viđ ţađ ađ níđa niđur ţjóđrćkin sjónarmiđ og forusta Samfylkingarinnar virđist óđfús vilja senda fullveldisrétt okkar til Brussell, í ţeirri trú ađ ţar sé hagsmunum okkar betur borgiđ en í höndum íslenskrar stjórnmálaforustu.

Ekki hafa menn ţar á bć mikla trú á eigin hćfileikum eđa annarra í íslenska stjórnkerfinu, ţegar vilji til slíks valdaafsals liggur fyrir. Ekki er ţjóđlegheitunum fyrir ađ fara í ţeim áróđri sem rekinn er af evrusinnum og öđrum fylgjendum erlendrar yfirtöku í sjálfstćđismálum ţessa lands.

Kannski er helsti draumur slíkra ráđamanna ađ fá ađ vera ábyrgđarlausar undirtyllur á háu kaupi í gervistjórn undir yfirţjóđlegu valdi.

Margt er meira en lítiđ skrítiđ í ţeim kýrhaus sem kratar ţessa lands hafa veriđ ađ setja upp í ţessum málum og virđist manni oft sem ţeim sé ekki sjálfrátt.

Ţann 11. mars sl. birtist t.d. í Mbl. sendibréf til sjálfstćđismanna, ritađ af Ellert B. Schram, fyrrverandi sjálfstćđismanni og núverandi Samfylkingarţingmanni. Ţetta bréf er undarleg ritsmíđ og ţađ er eins og ritarinn sé í handalögmálum viđ eigin samvisku í ţví sem ţar er sett fram. Hann talar um ađ stutt sé milli hinnar klassísku sjálfstćđisstefnu og jafnađarmennskunnar og gćti ţar veriđ ađ afsaka hringl sitt á milli flokka. Hann talar um tvo frjálslynda og praktíska flokka í einni sćng í ríkisstjórn. Međ orđinu praktískur virđist hann meina ađ málamiđlun megi gera í öllum hlutum. Hann segist líka ćtla ađ láta mannréttindabrotin í kvótakerfinu liggja milli hluta vegna ţess ađ ríkisstjórnin ţurfi ađ sitja sem fastast, en hann verđi hinsvegar ađ benda á útgönguleiđ fjármálalífsins inn í ESB. Sem sagt mannréttindabrot á Íslandi verđa veigalítil í augum mannsins miđađ viđ krossferđarhugsjónina miklu - ađ koma ţjóđinni undir miđstjórnarveldiđ í Brussell !

Jafnframt talar ritari um ađ viđ hćttum ađ hafa vit fyrir öđrum og meinar sennilega ađ viđ eigum ađ fara ađ láta ađra hafa vit fyrir okkur.

"Leyfum ţjóđinni ađ ráđa, " segir hann svo, " erum viđ ekki öll ađ beita okkur fyrir auknu frelsi ? " Heitir ţađ nú ađ beita sér fyrir auknu frelsi ađ reyna ađ koma ţjóđinni undir erlent vald ?

Ellert segir ađ ađildin ađ ESB fćri okkur nýjan, stöđugan gjaldmiđil, frjálsan ađgang ađ stćrri markađi, ódýrari neysluvörur og ađgang ađ ákvarđanatöku.....! Heyr á endemi !

Hver getur tryggt ađ evran verđi stöđugur gjaldmiđill til lengri tíma litiđ, hver getur tryggt ađ ađgangur ađ stćrri markađi sé frjáls og verđi frjáls, hver tryggir lágt verđ á neysluvörum til framtíđar, hver segir ađ ađgangur okkar ađ ákvarđanatöku innan ESB skipti máli, ţar sem viđ verđum núll og nix ?

Ţingmađurinn talar eins og hann sé endurómur af mági sínum, segir ađ viđ verđum laus úr ánauđ ónýts gjaldmiđils međ inngöngu í ESB og svo lýkur hann ţessu endemisbréfi međ ţví ađ ákalla sjálfstćđismenn eftirfarandi :  " ESB er í anda ykkar hugsjóna, samtök um friđ og öryggi, frjálsan markađ og heiđarlega samkeppni !" Ţvílíkt bull !

ESB er bandalag um hagsmuni en ekki hugsjónir. Trygging fyrir friđi og öryggi er síst meiri ţar en annarsstađar. Frjáls markađur og heiđarleg samkeppni eru ţar fyrir utan hugtök sem eru notuđ međ mjög misvísandi og villandi hćtti í veruleikanum.

Sjálfstćđismenn kalla sig svo vegna ţess ađ ţeir hafa viljađ sýna sig sem verjendur fyrir ţađ sjálfstćđi sem viđ misstum 1262 og aldir tók ađ endurheimta. Ef ţeir bregđast í ţví hlutverki og taka ađ sér ađ beina ţjóđinni inn í Brussell-dilkinn, munu margir sannfćrast um ađ ţeir standi ekki undir nafni.

Hitt er jafnljóst ađ Ellert B. Schram er nú orđinn alskverađur krati og hćttur ađ vera sjálfstćđismađur. Ţađ sést m. a. á ţví ađ hann telur sýnilega enga ástćđu  til ađ verja ţađ sem verja ber.

Ţó ađ mér hafi löngum veriđ lítiđ um íhaldiđ gefiđ, tel ég ađ breytingin sem orđiđ hefur á Ellert B. Schram sé ekki til batnađar, hvorki fyrir hann sjálfan né ţjóđina sem hann á ađ starfa fyrir sem ţingmađur.

Ég teldi ţví fara best á ţví, fyrir hann sjálfan og okkur öll, ađ hann skrifađi ekki fleiri svona bréf í Brussell-stíl til sjálfstćđismanna eđa annarra, ţví ţađ virkar á mann svipađ og útfararskrá gjaldţrota hugsunar hjá manni sem eitt sinn virtist ţó vera mađur.

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 131
  • Sl. sólarhring: 136
  • Sl. viku: 1381
  • Frá upphafi: 316771

Annađ

  • Innlit í dag: 79
  • Innlit sl. viku: 1058
  • Gestir í dag: 75
  • IP-tölur í dag: 75

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband