Leita í fréttum mbl.is

Um sveitarstjórnarmál og menn

 

 


Sumir halda ţví fram ađ sveitarstjórnarmenn séu ađ verđa sérstakur ţjóđflokkur í ţessu landi. Og kannski er ţađ ekki svo fjarri sanni.

Ţeir finnast nefnilega allmargir sem eru sveitarstjórnarmenn í annan eđa ţriđja liđ og hafa beinlínis fćđst inn í ferliđ.

Kunningi minn einn sagđist ţekkja ţađ til sveitarstjórnarmanna í annan liđ, ađ honum hrysi hugur viđ ţví ađ kynnast ţví fyrirbćri í ţriđja liđ. Ţađ vćri nokkuđ sem hann vildi ekki ţurfa ađ búa viđ eđa óskađi nokkrum öđrum. Virtist reynsla hans í ţeim efnum hálfgerđ hrollvekja.

En af hverju bjóđa menn sig fram til setu í sveitarstjórnum ?

Er ţađ af ţví ađ ţeir vilji ţjóna samborgurum sínum, nýta hćfileika sína í ţágu heildarinnar og elski náunga sína meira en ađrir ?

Telja ţeir kannski ađ ţeir hafi bókstaflega veriđ fćddir til ţess ađ hafa vit fyrir öđrum ?  Eđa stefna ţeir ađ ţví ađ koma ár sinni vel fyrir borđ á kostnađ samborgaranna, nýta valdiđ til eigin ţarfa og geta spriklađ meira í sviđsljósinu ?

Allt er ţetta sjálfsagt til í dćminu, en ég kýs ađ láta lesendur alveg um ţađ ađ meta hvađ ţeim finnst líklegast í hverju tilfelli !

En hvernig á góđur sveitarstjórnarmađur ađ vera ?

Ţađ er kannski auđvelt ađ svara ţví en nokkuđ erfitt ađ benda á verulega raunhćf lifandi dćmi.

Viđ skulum ţví ekki vera ađ vandrćđast međ ţessa spurningu og orđa hana bara öđruvísi. Hvađ á sveitarstjórnarmađur ađ forđast til ţess ađ hann geti orđiđ góđur fulltrúi í sveitarstjórn?

Og viđ sjáum ţađ náttúrulega öll ađ nú er svo sem enginn sérstakur vandi ađ svara eđa benda á víti til varnađar. Og viđ skulum setja svariđ eđa öllu heldur svörin upp á skilmerkilegan hátt. Segjum svona í fimm töluliđum: 

1.     Sveitarstjórnarmađur á ađ setja heildarhagsmuni ofar sérhagsmunum. Hann á sem sagt ekki ađ hygla neinum á kostnađ annars, hvorki sínum nánustu né öđrum, heldur hafa hreint skynbragđ á hagsmuni almennings !

 2.     Sveitarstjórnarmađur á ekki ađ sýna hroka í samskiptum viđ borgarana. Hann á ekki ađ tala niđur til fólks og segja t.d. ađ ţađ sé óttalega vitlaust. Beri hann ekki virđingu fyrir borgurunum bera ţeir ekki virđingu fyrir honum. Ţar gildir einfaldlega lögmáliđ um sáningu og uppskeru !

 3.  Sveitarstjórnarmađur á ađ virđa ţćr leikreglur sem í gildi eru og honum er bođiđ ađ starfa eftir. Ţađ er lýđrćđisleg skylda hans. Hann á ţví  t.d. alls ekki ađ taka ţátt í ţví ađ sveigja og beygja reglur sitt á hvađ eftir geđţótta og hagsmunum.

 4.  Sveitarstjórnarmađur á ekki ađ sýna valdagrćđgi og yfirgang í starfi sínu. Hann á ţví t.d. ekki    sem leiđtogi í meirihlutasamstarfi ađ gera jafnframt kröfu til ađ vera bćjarstjóri. Hófsemi er dyggđ, einnig í sveitarstjórn !

 5.  Sveitarstjórnarmađur á ekki ađ vinna ađ sameiningu viđ önnur sveitarfélög í trássi viđ kláran    meirihlutavilja kjósenda sinna. Hann á ţví t.d. ekki ađ vera í forsvari fyrir sveitahrepp ef  störf hans taka miklu fremur miđ af ţjónusta viđ nćsta ţéttbýlisstađ !

 

Ţegar viđ lítum á ţessi atriđi fer ekki hjá ţví ađ ofurlítill hrollur fer um okkur. Viđ veltum ţví nefnilega fyrir okkur hver stađan sé ţar sem viđ ţekkjum gleggst til. Og kannski er hún ekki sem glćsilegust !

Margir telja ađ framgjarnir menn sćkist eftir kjöri í sveitarstjórnir, til ađ nota setu sína ţar til frekari vinninga í valdatafli. Ţeir bíđi bara eftir tćkifćri til uppsveiflu. Eftirfarandi vísa gćti bent til ţess ađ ţćr stađhćfingar hafi viđ nokkur rök ađ styđjast:

 Ég sit í sveitarstjórn

og sveifla mér í hring.

En fćri í engu fórn

og fer svo brátt á ţing !

Tilbođ frambjóđenda fyrir kosningar eru oft ótrúverđug og yfirbođ oft međ ólíkindum. Hinsvegar virđist fórnarlundin oft lítil ţegar til kastanna kemur.

Ţađ er t.d. ekkert nýtt ađ manneskja bjóđi sig fram til setu í sveitarstjórn og haldi hástemmda rćđu á frambođsfundi, telji fram allt sem hún vilji gera fyrir elsku bćinn sinn og ćtli sko aldeilis ađ láta hendur standa fram úr ermum.

Svo fćr ţessi frambćrilega manneskja góđa kosningu, út á stór orđ og yfirlýsta stefnufestu. Síđan líđur eitt ár eđa svo - ţá flytur viđkomandi persóna burt af stađnum, hefur ekkert gert og klárar ekki nema Ľ af kjörtímabili hinnar miklu ţjónustu !

Ţetta hefur mađur séđ og oftar en einu sinni. Ekki tel ég ađ ţeir sem ţannig haga sér sýni ţá breytni sem ćrleg getur talist í lýđrćđislegum skilningi.

En ţađ er sannarlega mikiđ ţjónustustarf í hugsjón og trúmennsku ađ vinna heilshugar ađ málum fyrir almenning. Ţar eru margir kallađir en fáir útvaldir.

Mig hefur eiginlega alltaf dreymt um ađ kynnast sveitarstjórnarmanni sem sinnir starfi sínu af köllun, manni sem er vakinn og sofinn í ţágu samborgara sinna. Ég hef ţá trú ađ ţađ vćri merkileg upplifun ađ hitta slíkan mann og fá ađ rćđa ađeins viđ hann um sýn hans á samfélagiđ. En ég geri mér samt fulla grein fyrir ţví ađ ég er í ţessu sambandi ađ tala um draum - ekki veruleika !

Vćri ástand mála á landsbyggđinni eins og ţađ er, ef gegnheilir ţjónustumenn fyrir hagsmunum almennings vćru í sveitarstjórnum víđasthvar....hvađ halda menn í ţeim efnum ?

Ég veit ađ ég kem vafalaust viđ einhver kaun međ ţví ađ segja mína skođun hvađ ţađ varđar, en ţađ er sannfćring mín ađ ef svo vćri, ţá vćri stađan allt önnur og betri.

Ţađ hefur oft veriđ talađ um prestsstarfiđ og lćknisstarfiđ sem köllunarstörf og vissulega međ fullum rétti - en ţurfum viđ ekki líka á ţví ađ halda ađ ţeir sem bjóđa sig fram til starfa fyrir okkur í sveitarstjórnum, séu leiddir af köllun í anda ţeirrar félagshyggju sem kennir mönnum ađ vinna saman ađ samfélagslegri ţjónustu ?

Ef fórnfýsin leiddi ţar í málum yrđi ţá fordćmiđ ekki lýsandi til eftirbreytni fyrir alla ?

Vćri andinn í ţjóđfélaginu slíkur sem hann er, ef allt vćri međ heilum formerkjum í ţeirri ţjónustu sem kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnum segjast svo gjarnan vilja inna af höndum - fyrir almenning ?

Er ekki ástćđa til ađ velta ţví svolítiđ fyrir sér ?

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 246
  • Sl. sólarhring: 282
  • Sl. viku: 1503
  • Frá upphafi: 316504

Annađ

  • Innlit í dag: 211
  • Innlit sl. viku: 1215
  • Gestir í dag: 205
  • IP-tölur í dag: 202

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband