Leita í fréttum mbl.is

Hægri verðbólga

 

Margir muna eflaust enn þá tíma þegar mikil verðbólga mældist síðast á Íslandi. Það væri vissulega efni í heillanga ritgerð að fjalla um það hvernig verðbólgan fór af stað þá og hvað olli því. En það liggur hinsvegar ljóst fyrir að hægri öflin í stjórnmálunum hérlendis hafa yfirleitt rakið alla verðbólgu til vinstri flokkanna og kennt þeim krógann.

Samkvæmt viðteknum Valhallarfræðum var nefnilega lengstum litið svo á að enginn kynni með fjármuni að fara nema innvígðir íhaldsmeistarar, tilheyrandi gamla kolkrabbaskólanum. Það hefur að vísu margt breyst síðan, enda hefur kolkrabbinn látið verulega á sjá, og aðrir hrifsað til sín helft af veldi hans.

Og af þeim sökum hafa Valhallarfræðin verið endurskoðuð lítillega - svona svipað því og þegar reglur trúfélaga tíðarandans eru sveigðar og beygðar til af hagsmunaástæðum. En samt lifir enn í gömlum glóðum og enn er flest sem afleitt þykir rakið vafningalaust til vinstri. Þar á að vera gróðrarstía allra mistaka í efnahagsstjórn þessa lands.

En nú blasir við að ýmis mistök hafa verið gerð á þessu sviði og samt er íhaldið við völd og búið að vera það lengi. Við stöndum frammi fyrir bankakreppu, þó að þjóðin hafi verið margfullvissuð um það allt fram til þessa af einkavæðingar-stjórn íhaldsins, að einkavæddir bankar myndu gera Ísland að efnahagslegu stórveldi á stuttum tíma.

Við erum með töluverða verðbólgu, sem hlýtur þá að vera útrásar verðbólga, einkavæðingar verðbólga, bankakreppu verðbólga og umfram allt hægri verðbólga !

Hvernig skyldi annars standa á því að verðbólga sprettur fram við hægra stjórnarfar þegar hún á samkvæmt Valhallarfræðunum að koma frá vinstri í öllum tilfellum ?

Það er eitthvað dularfullt við það og samt er ekkert talað af hálfu stjórnarliðsins um mistök eða slæma efnahagsstjórn? Það er bara yppt öxlum og vísað á fjármálalegar umgangspestir frá útlöndum !

Nokkrir leiðindapúkar eins og Þorvaldur Gylfason hafa að vísu verið að tala um skort á fjárhagslegri fyrirhyggju og varað við ýmsu, en það hefur náttúrulega ekkert verið hlustað á þá og allra síst af gúrúunum í Seðlabankanum.

Nú er sem sagt verðbólgan bara eitthvað ósköp eðlilegt mál sem á að ganga yfir á nokkrum dögum eða kannski vikum eins og kvef eða niðurgangur.

En það var aldrei talað þannig þegar verðbólgan var sögð vinstrisinnað fyrirbæri.

Þá var verðbólga samkvæmt Valhallarfræðum bein afleiðing af slæmri stjórn efnahagsmála.

En í munni talsmanna íhaldsins er hægri verðbólga bara ósköp venjuleg og eiginlega hálf saklaus innanskömm sem ekki þarf að taka neitt alvarlega, en vinstri verðbólga er hreint og beint voðalegt fyrirbæri.

En hinsvegar er niðurstaða mála oftast með einum hætti þegar pólitíkusarnir hafa siglt málum þjóðarbúsins í strand. Þá fara hrokafullir menn allt í einu að taka upp á því að verða smeðjulegir.

Það er farið að tala um þjóðarsátt - en það þýðir á mæltu máli, að þjóðin eigi að borga brúsann, borga mistökin, borga alla vitleysuna sem búið er að gera.

Þegar þannig er komið málum sameinast allir flokksvitleysingar - jafnt til hægri og vinstri - í því verkefni að velta kosnaðinum yfir á almenning.

Og meðan er verið að setja á fólk drápsklyfjarnar, fær það klapp á vangann og því er svo tilkynnt ósköp elskulega, að það sé þar með komið í hina einu og sönnu stuðningsfjölskyldu þjóðarsáttarinnar og megi gleðjast yfir því sem ábyrgir þjóðfélagsþegnar.

En á hitt er ekkert minnst, að á sama tíma og almennt fólk á að borga slíka blóðpeninga undir fölskum þjóðarsáttarstimpli, liggur fyrir að sumir eru leystir út í kerfinu með himinháum fjárupphæðum, einkavæðingarvinir, bankagúrúar, kvótagreifar og allskyns ríkisspenasugur -  eða í stuttu máli sagt - allt sérgæðingahyskið upp til hópa !

Þannig er Ísland í dag - hægri verðbólga í umferð, vaxandi misrétti í gangi með niðurbroti félagslegrar uppbyggingar fyrri ára, jafnvel möguleikar gjafsóknar fyrir almenning í lagaréttarmálum á förum fyrir  atbeina Valhallar-valdsins í þeim málaflokki.

Þjóðin getur ekki og má ekki styðja hægri öflin í þessu niðurrifsstarfi, sem þegar hefur valdið allt að því óbætanlegum skaða á því velferðarkerfi sem áður hafði tekist að byggja upp í landinu af félagshyggjuflokkunum - þrátt fyrir að varðhundur sérgæskunnar - Sjálfstæðisflokkurinn - hafi verið sígeltandi allan þann tíma !

Komum frjálshyggjuliðinu frá völdum og hefjum nýja velferðar og mannréttinda sókn í öllum málum þar sem almenningur fær að vera með.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 133
  • Sl. sólarhring: 477
  • Sl. viku: 1542
  • Frá upphafi: 315523

Annað

  • Innlit í dag: 129
  • Innlit sl. viku: 1255
  • Gestir í dag: 129
  • IP-tölur í dag: 129

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband