Leita í fréttum mbl.is

Sjómannadagurinn á Skagaströnd

Sjómannadagurinn er mikill dagur á Skagaströnd eins og reyndar víđasthvar um landiđ. Kemur ţar margt til, en ţó stendur ţađ upp úr ađ hann er sannarlega  orđinn sérstakur dagur vináttu og brćđralags í hinum dreifđu byggđum landsins.

Já, dagur vináttu og brćđralags, ekki bara sjómanna, heldur allra ţeirra sem búa í hinum litlu ţorpum út um landiđ sem eru svo miklu íslenskari og ţjóđmenningarlegri á flestan hátt en sjálfur höfuđstađur ţjóđarinnar.

Á Skagaströnd kemur fólk saman á ţessum degi til ađ heiđra fortíđina, njóta líđandi stundar og horfa í sameiginlegri vongleđi til framtíđar. Ţau eru mörg handaböndin og fađmlögin ţennan dag ţegar gamlir vinir og félagar hittast og  ekki vantar umrćđuefniđ. Einn segir viđ annan : " Manstu ţegar........? og hinn svarar á svipstundu: " já, hvort ég man....!

Og ţađ er margs ađ minnast, ekki síst hjá ţeim sem komnir eru yfir miđjan aldur og sóttu sjóinn á Björgunum okkar í gamla daga. Ţá voru ţćr ţrjár hér viđ bryggjur - Ásbjörg, Auđbjörg og Ađalbjörg. Ţćr heyra nú sögunni til eins og stóru bjargirnar í landi, Hólanes, Rćkjuvinnslan og Skagstrendingur.

En Skagaströnd er ennţá Skagaströnd og Borgin er enn jafn fríđ sem forđum -  Höfđinn sýnir sitt tignarbragđ og ekki vantar náttúrulega gyllingu í ţá umgerđ sem sjálfur Höfuđsmiđurinn lagđi um ţennan mannlífsreit viđ ysta haf.

Og ţó ađ Bjargirnar okkar kljúfi ekki lengur öldur Ćgis, eru kappróđrabátarnir okkar enn viđ lýđi og ţađ er sannarlega sami glćsti stíllinn yfir ţeim.

Gustur og Gola hafa nú í sextíu ár ţjónađ sem farkostir ţeirra sem árarnar spenna í glađbeittri róđrarkeppni dagsins. Ţeir eru orđnir margir sem hafa haldiđ ţar um árar allt frá miđri síđustu öld. Gustur og Gola - bátarnir okkar, eiga ţađ sameiginlegt međ örkinni frćgu, ađ vera smíđađir af Nóa.

Og ţađ virđist svo sem sama gilda međ ţá skipasmiđina gamla Nóa og Nóa bátasmiđ á Akureyri, báđir kunnu vel til verka á sinni tíđ og smíđuđu međ sínu starfsliđi virkilega flóđheld för.

Og ţó ađ Gustur og Gola hafi kannski í fyrsta sinn búiđ viđ visst öryggisleysi í húsnćđismálum ţetta síđasta ár, er varla nokkur vafi á ţví ađ ţađ stendur til bóta, enda eru ţessir bátar međal gersema okkar Skagstrendinga og vonandi falla ţeir ekki ađ gildi ţó fallbyssan sé komin.

Annars tala menn nú ekki lengur um fallbyssu heldur hallbyssu ţví ţađ er íslensk málvenja ađ kenna hvađeina til síns fađernis og er ţađ ekki slćmur siđur.

Ég óska öllum Skagstrendingum og sjálfum mér ţar međ til hamingju međ Sjómannadaginn og megi hann endurnćra allt sem gott er í fari okkar og aka ţví  á bug sem bágara er.

Ţađ er bjart yfir ţessum degi í huga okkar og ţannig á ţađ líka ađ vera. Látum ţví fagnađaróp fylla loftiđ eins og gjalli viđ ţórdunur fallbyssuskothríđar af Hólsnefinu sem bergmáli fram um allar sveitir.

Megi lífsgleđi ćtíđ verđa eitt af ţví sem aldrei verđi af skornum skammti í vopnabúri Skagstrendinga.

Til hamingju međ daginn !

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 13
  • Sl. sólarhring: 333
  • Sl. viku: 1263
  • Frá upphafi: 316653

Annađ

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 991
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 12

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband