Leita í fréttum mbl.is

Davíđssálmur 151 - Sálmur flokksins.

 

Davíđ - viđ dýrkum ţig öll,

slík dásemd er atgervi ţitt.

Ţú ert burgeis í bankahöll

og bendir á ţetta og hitt !

 

Sem véfrétt í voldugum stíl

ţú valdiđ ţitt auglýsir hér.

Ţađ sér ekki á dökkan díl

á drifhvítum skildi hjá ţér !

 

Ţín hugsun er háleit og snjöll,

ţú hrćđist ei neina raun.

Svo Geir og viđ elskum ţig öll,

ţú átt okkar hollustulaun !

 

Í ţjóđmálum leikur ţú laus

viđ línur á bak viđ tjöld.

Ţađ fćr enginn haldiđ haus

sem hundsar ţín alrćđisvöld !

 

Menn finna ţađ sífellt og sjá

međ sanni ađ hlýđa ţér ber.

Ţví flokkist ţér einhver frá,

sá fćr nú á baukinn hjá ţér !

 

Ţín Valhallar vegsemd er slík

ađ víđa hún kallar á fórn.

Ţú rćđur í Reykjavík

og rćđur á ţingi og í stjórn !

 

Ţar vald ţitt svo ćđislegt er

og orkan í kringum ţađ römm,

- ađ seint mun ţinn " sjálfstćđi her "

sálast úr innherja skömm !

 

Ţó asnar viđ Austurvöll

séu ađ ergjast viđ mótmćlapuđ,

ó, Davíđ - viđ dýrkum ţig öll,

ţú ert dýrlingur flokksins og guđ !!!

  

                                              


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Höfundur

Rúnar Kristjánsson
Höfundur er húsasmiður og býr á Skagaströnd.

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 423
  • Sl. sólarhring: 425
  • Sl. viku: 1612
  • Frá upphafi: 314899

Annađ

  • Innlit í dag: 332
  • Innlit sl. viku: 1246
  • Gestir í dag: 310
  • IP-tölur í dag: 309

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband